Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
20 milljónir vegna ópíumfíkla Samkomulag hefur náðst á milli SÁÁ og heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins um greiðslur vegna lyfjakostnaðar við meðferð ópíumfíkla sem SÁÁ sinnir. Samkvæmt því greiðir ráðuneytið SÁÁ 20 milljónir króna á tveimur árum vegna þrjátíu fíkla. 14.1.2005 00:01
Í sjálfheldu á Gjábakkavegi Björgunarsveitir voru kallaðar út með skömmu millibili upp úr hádegi til að aðstoða fólk sem sat í sjálfheldu í bílum sínum á Gjábakkavegi og komst ekkert vegna hálku. Útlendingar voru í öðrum jeppanum en jeppinn sem var sendur þeim til hjálpar lenti líka í vandræðum. Ekkert amaði að fólkinu. 14.1.2005 00:01
Þreyttir jafnhættulegir og ölvaðir Læknar sem eru útkeyrðir af vinnuálagi eru jafnhættulegir í umferðinni og þeir sem keyra undir áhrifum áfengis. Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar rannsóknar sem náði til 2800 lækna í Bandaríkjunum. Þeir vinna iðulega meira en tuttugu klukkutíma án hvíldar sem gerir þá jafnhættulega og ölvaða ökumenn þegar heim er ekið. 14.1.2005 00:01
Reyna að græða á hamförunum Dollaramerki glampa nú í augum gráðugra hóteleigenda á kínversku eyjunni Hainan undan ströndum Víetnams og skammt austan við hamfarasvæðin við Indlandshaf. Þar er loftslag og aðstæður mjög áþekk og á ferðamannaströndunum sem nú eru í rúst og reyna hóteleigendur á Hainan nú að laða til sín ferðamenn sem ella hefðu farið til Taílands eða Indónesíu. 14.1.2005 00:01
Hættustigi aflýst á Patreksfirði Aflýst hefur verið hættustigi vegna snjóflóðahættu við Urðargötu á Patreksfirði og er íbúum sem þurftu að rýma heimili sín í morgun heimilt að fara heim á ný. Snjóeftirliti verður þó haldið áfram og fylgst grannt með snjóalögum. 14.1.2005 00:01
Jón skipaður slökkviliðsstjóri Stjórn slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins skipaði í morgun Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóra svæðisins. Hann var settur í starfið þegar Hrólfur Jónsson, fyrrverandi slökkviliðsstjóri, varð yfirmaður framkvæmdasviðs Reykjavíkurborgar. Jón Viðar, sem var svo skipaður í morgun, hefur verið varaslökkviliðsstjóri síðan í desember árið 1991. 14.1.2005 00:01
Mikið álag á spítölum Fresta hefur þurft skurðaðgerðum á Landspítala-háskólasjúkrahúsi vegna mikils álags þar um þessar mundir. Mikið hefur verið um veikindi undanfarna daga og inflúensan sem gengið hefur yfir landsmenn er nú í hámarki. Á fimmtudag þurfti að leggja 50 sjúklinga inn á bráðadeildir Landspítalans umfram skráð rúm. 14.1.2005 00:01
Snjóflóðahætta á Patreksfirði 17 íbúum í sex íbúðarhúsum við Mýrar og Urðargötu á Patreksfirði var gert að rýma heimili sín í gær vegna snjóflóðahættu. 14.1.2005 00:01
Kanadískur ráðherra segir af sér Ráðherra yfir málefnum útlendinga í Kanada hefur sagt af sér í kjölfar þess að upp komst um tvö atvik þar sem hann þykir hafa misnotað vald sitt. Í fyrra skiptið var um að ræða rúmenska nektardansmær sem ráðherrann veitti atvinnuleyfi eftir að stúlkan hafði starfað að kosningabaráttu ráðherrans. 14.1.2005 00:01
Neituðu að mæta ASÍ Fulltrúar Impregilo höfnuðu því að mæta fulltrúum verkalýðshreyfingarinnar fyrir félagsmálanefnd Alþingis í gærmorgun og bað nefndin því fulltrúa ASÍ því um að koma frekar á þriðjudaginn. 14.1.2005 00:01
365 heitir það heillin Íslenska útvarpsfélagið og Frétt hafa verið sameinuð undir nýju nafni, 365, sem skiptist í 365 - ljósvakamiðla og 365 - prentmiðla. 14.1.2005 00:01
Ræktarland í mikilli hættu Fyrir utan manntjónið og eyðileggingu á mannvirkjum sem flóðin í Suðaustur-Asíu hafa valdið þá er gríðarlegt flæmi ræktarlands á hamfarasvæðunum nú í mikilli hættu á að eyðileggjast. Vatnselgurinn hefur nú þegar eitrað uppsprettur og áveitukerfi víða í löndunum sem urðu fyrir flóðbylgjunni á annan í jólum. 14.1.2005 00:01
Tugþúsundir barna í reiðileysi Hjálparstofnanir og yfirvöld í viðkomandi löndum hafa miklar áhyggjur af tugþúsundum barna sem misstu foreldra sína í flóðbylgjunni í Asíu. 14.1.2005 00:01
Sinfó spilar undir hjá Domingo Samkomulag hefur tekist við Sinfóníuhljómsveit Íslands um að leika undir hjá hinum heimsþekkta óperusöngvara, Placido Domingo, í Egilshöll í mars. Þar með telja tónleikahaldarar að þeir hafi rutt síðustu tálmunum úr vegi fyrir því að halda stórtónleikana eins og áætlað var. 14.1.2005 00:01
Lög um fóstureyðingar brotin Farið verður yfir verkferla á kvennadeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri vegna konu sem gagnrýnir skort á eftirfylgni með líðan þeirra sem gangast undir fóstureyðingu. Hún fullyrðir ennfremur að lög um fóstureyðingar séu brotin hér á landi. 14.1.2005 00:01
Fimmtungur með þunglyndiseinkenni Einn af hverjum fimm unglingum í 9. og 10. bekk hefur alvarleg þunglyndiseinkenni. Þetta sýnir ný íslensk rannsókn. Skilnaðarbörn og börn sem búa í dreifbýli hafa meiri þunglyndiseinkenni en önnur börn. 14.1.2005 00:01
Í fullu starfi og á eftirlaunum Sjö fyrrverandi ráðherrar fengu samtals rúmar sautján milljónir króna í eftirlaun á liðnu ári þrátt fyrir að vera enn í fullu starfi á vegum hins opinbera. Með lögum um eftirlaun þingmanna og ráðherra, sem voru samþykkt á Alþingi í desember árið 2003, voru heimildir til töku eftirlauna rýmkaðar og aðeins einn þeirra sjö sem nú þiggja eftirlaun hafði öðlast réttindi til þeirra fyrir gildistöku nýju laganna. 14.1.2005 00:01
Alcan vill bætur frá olíufélögunum Forsvarsmenn Alcan, áður Ísal, hafa ákveðið að sækjast eftir bótum frá olíufélögunum vegna verðsamráðs þeirra. Samkvæmt lögfræðiáliti sem unnið var fyrir fyrirtækið bera olíufélögin ótvíræða skaðabótaskyldu vegna þess. Ekki hefur verið ákveðið hvort beðið verði um viðræður við félögin áður en höfðað verður skaðabótamál. 14.1.2005 00:01
Sjö ára ferðalag að skila árangri Evrópskt geimfar flaug í dag inn í lofthjúp Títans, sem er fylgitungl Satúrnusar, eftir sjö ára ferðalag frá jörðu. Títan er eitt af dularfyllstu himintunglum sólkerfisins. 14.1.2005 00:01
Tengsl slitin við stjórn Palestínu Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, fyrirskipaði í dag embættismönnum sínum að slíta öll tengsl við nýja ríkisstjórn Palestínumanna þar til hún hefði bundið enda á hryðjuverkaárásir. Sex Ísraelar voru drepnir á landamærunum að Gasa í dag. 14.1.2005 00:01
Í lífshættu vegna sambýlismanns Nálgunarbann sem sett var á ofbeldisfullan sambýlismann konu hafði lítið að segja og var hún í lífshættu af hans völdum. Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum gleymdi kæru sem hún lagði fram eftir að maðurinn beitti hana alvarlegu ofbeldi. 14.1.2005 00:01
Neituðu að sitja fyrir svörum Fulltrúar Impregilo neituðu að sitja fyrir svörum hjá Félagsmálanefnd Alþingis í morgun ef fulltrúar frá verkalýðshreyfingunni yrðu viðstaddir. Gert hafði verið ráð fyrir því að þeir sætu samtímis fyrir svörum en horfið frá því að kröfu ítalska verktakafyrirtækisins. 14.1.2005 00:01
Landsfundur Samfylkingar í vor Allar líkur eru á því að landsfundur Samfylkingarinnar verði haldinn strax í vor. Þá verður komið í ljós hvort Össur Skarphéðinsson eða Ingibjörg Sólrún Gísladóttir verður formaður flokksins. 14.1.2005 00:01
Nemendur Ölduselsskóla safna Landssöfnunin „Neyðarhjálp úr norðri“ fékk öflugan stuðning frá sex til níu ára börnum í dag. Til dæmis söfnuðu börn á frístundaheimili ÍTR í Ölduselsskóla tæpum sextán þúsund krónum með sölu á bleikum pönnukökum og súkkulaðismákökum. 14.1.2005 00:01
Fróði flutti fyrirvaralaust Starfsmenn Fróða þurftu að pakka saman og flytja fyrirvaralaust í dag af Seljavegi upp á Höfðabakka. Ósamkomulag er á milli Fróða og Eikar Fasteignafélags um leigutíma núverandi húsnæðis. 14.1.2005 00:01
Eðlilegt að klára byrgðir Davíð Egilsson, forstjóri Umhverfisstofnunar, fundar með forsvarsmönnum Mjallar-Friggjar á mánudaginn, en fyrirtækið framleiðir klór í Kópavogi án þess að hafa til þess tilskilin leyfi. 14.1.2005 00:01
Netbankinn styrkir fatlaða Þjónustumiðstöð Sjálfsbjargarheimilisins hefur endurnýjað tölvubúnað sinn fyrir styrk sem Netbankinn veitti. Styrkurinn kom að góðum notum þar sem tölvukennsla og tölvunotkun er orðin vaxandi þáttur í endurhæfingarstarfi þjónustumiðstöðvarinnar. 14.1.2005 00:01
Sundabraut bíður enn Frestað var á fundi borgarráðs Reykjavíkur í vikunni afgreiðslu á tillögu borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks um Sundabraut. 14.1.2005 00:01
Fjármagn fyrir meðferð ópíumfíkla Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, segir jákvætt að fjármagn fáist frá heilbrigðis- og tryggingaráðuneytinu til að halda áfram lyfjameðferð þrjátíu ópíumfíkla. Fjörutíu ópíumfíklar eru í lyfjameðferðinni. 14.1.2005 00:01
Framkvæmdastjórar ráðnir Borgarráð samþykkti á fundi sínum á fimmtudag að ráða framkvæmdastjóra þjónustumiðstöðva borgarinnar frá og með 1. mars næstkomandi. Ráðin verða Aðalbjörg Traustadóttir, Hafdís Gísladóttir, Óskar Dýrmundur Ólafsson og Ragnar Þorsteinsson. 14.1.2005 00:01
Minna veitt en árið áður Heildarafli síðasta árs var 1.723 þúsund tonn, heldur minni en afli ársins 2003 sem var 1.979 þúsund tonn 2003. 14.1.2005 00:01
Þarf að greiða þrjátíu milljónir Maður á sextugsaldri var, í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær, dæmdur til að greiða rúmar þrjátíu milljónir í sekt og í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir brot gegn lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda og brotum um virðisaukaskatt. Eins árs fangelsi kemur í stað sektarinnar verði hún ekki greidd. 14.1.2005 00:01
Minni gjöld á fasteignir F-listinn í borgarstjórn mótmælti í vikunni hugmyndum Reykjavíkurlistans um hækkun fasteignagjalda. Listinn telur að óbreytt álagningarhlutfall fasteignagjalda leiði til of mikillar hækkunar vegna 20 prósenta hækkunar fasteignamats. 14.1.2005 00:01
Ræddi við forsetann Tómas Ingi Olrich afhenti í byrjun vikunnar Jacques Chirac, forseta Frakklands, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Frakklandi. 14.1.2005 00:01
Árekstur jeppa og fólksbíls Rétt fyrir klukkan tíu síðasta miðvikudagsmorgun lentu saman hvítur Toyota Land Cruiser jeppi og grár VW Golf fólksbíll á mótum Arnarnesvegar og Bæjarbrautar í Garðabæ. 14.1.2005 00:01
25 kíló á kjaft Sala kindakjöts jókst um 13,5 prósent milli áranna 2003 og 2004, eða um 860 tonn, samkvæmt upplýsingum frá Landssamtökum sauðfjárbænda. Sala síðasta árs jafngildir því að hver Íslendingur hafi borðað um 25 kíló af kindakjöti. 14.1.2005 00:01
Gæti borgað sjúkrahús á 12 árum Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs harmar hugmyndir um að bjóða landsmönnum nýjan Landspítala fyrir einkavæðingu Símans, en lýsir um leið fullum stuðningi við aukin fjárframlög í þágu bættrar heilbrigðisþjónustu. 14.1.2005 00:01
Græddum meira á ferðafólki Tölur Seðlabanka Íslands sýna að gjaldeyristekjur af erlendum ferðamönnum eru 2,2 milljörðum meiri fyrstu níu mánuði ársins 2004 en á sama tíma árið áður. 14.1.2005 00:01
Söfnunin nær hámarki Landssöfnunin vegna hamfaranna í Asíu á öðrum degi jóla, Neyðarhjálp úr norðri, nær hápunkti í dag. Söfnunin er ein sú umfangsmesta sem hér hefur verið ráðist í, en að henni stendur fjöldi hjálparsamtaka auk fjölmiðla, félagasamtaka, fyrirtækja og almennings. 14.1.2005 00:01
Eldsvoði í Mosfellsbæ Slökkvilið var fyrir stundu kallað að Tröllateig í Mosfellsbæ. Tilkynnt var um talsverðan eld í íbúð í nýbyggingu. Bílar frá tveimur stöðvum voru sendir á staðinn en ekki var frekari upplýsingar að hafa um eldsvoðann. 14.1.2005 00:01
Stýrir endurreisn þorps á Indlandi Íslenskur maður, Vilhjálmur Jónsson, stýrir nú hjálparstarfi og uppbyggingu í þorpinu Thazhankuda á austurströnd Indlands. Hann segir eyðilegginguna í þorpinu algjöra og íbúana í losti mörgum dögum eftir að hamfarirnar á annan dag jóla dundu yfir. 13.1.2005 00:01
Íbúarnir sátu og störðu út í tómið Vilhjálmur Jónsson frá Akureyri hefur ásamt félögum sínum tekið að sér uppbyggingarstarf í litlu þorpi á austurströnd Indlands. Mikið verk er framundan enda er eyðileggingin þar algjör. </font /></b /> 13.1.2005 00:01
Alfreð segist ekki hætta Alfreð Þorsteinsson segir kröfu um að hann víki vegna langs aldurs í pólitík út í hött og bendir á að hann hafi verið álíka lengi að og Halldór Ásgrímsson. </font /></b /> 13.1.2005 00:01
Ríkissaksóknari vill frekari gögn Að ósk ríkissaksóknara er sýslumannsembættið á Seyðisfirði að afla viðbótargagna vegna banaslyssins á virkjunarsvæðinu við Kárahnjúka aðfaranótt 15. mars í fyrra. Að þeim gögnum fengnum mun ríkissaksóknari taka ákvörðun um hvort ákært verður í málinu. 13.1.2005 00:01
Skuldir hamfaraþjóða frystar Parísarhópurinn svonefndi, sem nítján ríkustu þjóðir heims eiga aðild að, ákvað í gærkvöldi að skuldir þjóða sem urðu illa úti í hamförunum í Asíu yrðu frystar ef óskað verður eftir því. Alls hefðu þjóðirnar sem urðu fyrir barðinu á hamförunum þurft að greiða þjóðunum nítján um 300 milljarða króna í vexti og afborganir í ár. 13.1.2005 00:01