Fleiri fréttir

Sjö létust í sprengingu á Spáni

Sjö manns fórust í sprengingu í stórri vörugeymslu í spænsku borginni Burgos í norðurhluta Spánar í morgun. Í húsinu voru meðal annars geymdar vinnuvélar og eldsneyti, samkvæmt upplýsingum borgarstjórans í Burgos. Ekkert er enn vitað um orsakir sprengingarinnar.

Tíu látnir í bruna í Íran

Að minnsta kosti tíu börn og kennarar eru látin í barnaskóla í Íran sem enn stendur í björtu báli. Óttast er að mun fleiri muni farast þar. Slökkviliðsmenn berjast nú við eldinn og björgunarmenn koma börnum og kennurum til hjálpar. Ekki er greint frá að sprenging hafi orðið áður en eldurinn braust út.

Hermaður seldi einkennisbúninginn

Bandaríkjaher segir sölu hermannabúninga í Kolaportinu geta þýtt að stríð þeirra gegn hryðjuverkum sé unnið fyrir gýg. Ólafur Ólafsson, sem selur búningana, segir íslenska stúlku sem seldi honum einkennisbúning amerísks kærasta síns hafa skömmu seinna hringt í ofboði og beðið um að nafn kærastans yrði tekið af búningnum. Ella blasti við fangelsi.

Ósáttur við ofurlaun Halldórsmanns

Jón E. Böðvarsson flugvallarstjóri á Keflavíkurflugvelli er með tvöföld mánaðarlaun Björns Inga Knútssonar sem hann er að leysa af í eitt og hálft ár. Jóni var ýtt til hliðar í Ratsjárstofnun til að rýma fyrir Ólafi Erni Haraldssyni framsóknarmanni. Davíð Oddsson er óánægður með embættisfærslu Halldórs Ásgrímssonar í málinu.

Kapteinn Kókaín á Hauki ÍS

Tveir sjómenn af togaranum Hauki ÍS-847 sitja nú í gæsluvarðhaldi í Bremerhaven vegna tilraunar til smygls á metmagni af kókaíni. Skipstjóri skipsins, Ómar Örvarsson, sat 10 mánuði í fangelsi í Karabíska hafinu fyrir smygl á tæpum 15 kílóum af kókaíni. Ómar er fyrir rétt í dag vegna tæplega 200 kannabis-plantna sem funudst hjá honum árið 2002.

Vísitala neysluverðs hækkar

Vísitala neysluverðs í janúar 2005 er 239,2 stig og hækkaði um 0,08% frá fyrra mánuði, að því er fram kemur á vef Hagstofu Íslands. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 229,2 stig og lækkaði um 0,56% frá því í desember.

Hestar hlupu fyrir lest í Danmörku

Tveir hestar hlupu fyrir járnbrautarlest á Jótlandi snemma í morgun og drápust báðir. Dráttarvagn lestarinnar skemmdist svo mikið að hann varð óökuhæfur en engan í lestinni sakaði. Lausaganga búfjár er því víðar vandamál en á Íslandi en síðast var bíl ekið á hest hér á landi í fyrradag skammt frá Akureyri.

Ástralar gefa mest

Ástralar, sem heitið hafa hæstri upphæð allra þjóða til hjálparstarfsins í Asíu, gefa líka langmest ef tekið er tillit til hlutfalls upphæðarinnar af vergri landsframleiðslu. Þeir tæplega 50 milljarðar íslenskra króna sem ríkisstjórn Ástralíu hefur heitið til hjálparstarfsins eru nærri 0,15 prósent af vergri landsframleiðslu þjóðarinnar.

Svikulir teppahreinsarar í Osló

Eldri borgarar í Osló hafa verið varaðir við tveim svindlurum sem hafa haft stórfé af gömlu fólki fyrir teppahreinsanir. Þeir rukkuðu m.a. gamla konu um sem nemur 212 þúsund íslenskum krónum fyrir teppahreinsun í íbúð hennar.

Atvinnuleyfi verði afgreidd fljótt

Forstjóri Vinnumálastofnunar býst við því að atvinnuleyfi sem Impregilo sótti um fyrir 54 Kínverja verði afgreidd síðar í dag eða á morgun. Forstjóri Vinnumálastofnunar situr nú á fundi með fulltrúum Impregilo vegna málsins. Talsmaður fyrirtækisins segir að það hafi greitt tæpan milljarð í skatt hér á landi.

Styðja þann sem Pútín velur

Stærsti stjórnmálaflokkur Rússlands, Sameinað Rússland, ætlar að styðja hvern þann frambjóðanda sem Vladímír Pútín velur til þess að taka við af sér í forsetakosningunum árið 2008.

Tekjur gætu numi sex milljörðum

Fiskifræðingar, sjómenn og útvegsmenn anda nú léttar eftir að svo mikið af loðnu hefur fundist að ástæða er til að stór auka kvótann. Útflutningstekjur af loðnuafurðum vegna viðbótarkvótans nema um sex milljörðum króna.

Játar aðild að byltingartilraun

Mark Thatcher, sonur Margrétar Thatcher, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, hefur játað að hafa átt þátt í misheppnaðri byltingartilraun í Afríkuríkinu Miðbaugs-Gíneu á síðasta ári. Landið er mjög auðugt af olíu. Sjötíu málaliðar sitja nú í fangelsi í nokkrum Afríkuríkjum vegna þessa máls.

Skilja ensku betur en norræn mál

Skandinavísk ungmenni eiga auðveldar með að skilja ensku en norræn tungumál granna þeirra, samkvæmt viðamikilli rannsókn meðal fjölda skandinavískra unglinga og foreldra þeirra.

Mjólk tvöfalt dýrari en í Danmörku

Nýmjólk er orðin tvöfalt dýrari hér á landi en í Danmörku, en lágt verð í Danmörku er rakið til eðlilegrar samkeppni þar í landi. Verð á helstu neysluvörum hér á landi er það fjórða hæsta í 30 Evrópulöndum sem norska hagstofan kannaði.

Segir niðurstöðu koma mjög á óvart

Siv Friðleifsdóttir, fyrrverandi umhverfisráðherra, segir niðurstöðu héraðsdóms vegna álvers Alcoa í Reyðarfirði koma verulega á óvart. Hún vonar að kærufletir vegna álversins fari að verða uppurnir.

Atvinnulíf þurrkaðist út

Flóðbylgjan sem skall á löndum við Indlandshaf annan dag jóla þurrkaði út allt atvinnulíf í strandhéruðunum á Srí Lanka og víða hefur engin hjálp borist. Ingólfur Bjarni Sigfússon, fréttamaður Stöðvar 2 og Bylgjunnar, hefur verið á ferðalagi um þessi svæði undanfarna daga.

Kærir meðeigendur í Útvarpi Sögu

Arnþrúður Karlsdóttir hefur kært meðeigendur sína í Útvarpi Sögu fyrir brot á lögum um einkahlutafélög og sakar þá meðal annars um reyna að þvinga sig til að selja hlut sinn í fyrirtækinu. Einn meðeigendanna segir þetta fyndið og sakar Arnþrúði um samningsrof.

Sækir um skráningu á frumlyfi

Íslensk erfðagreining hefur sótt um að hefja klínískar rannsóknir á frumlyfinu DG041 hjá bandaríska Matvæla- og lyfjaeftirlitinu, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu. DG041 er lítil lyfjasameind af nýjum lyfjaflokki sem beint er gegn æðakölkun í fótum

Verðbólga við vikmörk Seðlabanka

Hækkun á vísitölu neysluverðs frá fyrra mánuði gengur þvert á spár greiningardeilda bankanna. Verðbólga nú 4%, sem við efri vikmörk verbólgumarkmiðs Seðlabanka Íslands, og greiningardeild Íslandsbanka telur líklegt að verðbólga fari upp fyrir vikmörkin á næstu mánuðum en hjaðni svo og verði 2,1% yfir árið.

ASÍ segir hið opinbera ábyrgt

Alþýðusamband Íslands segir að opinberir aðilar beri mesta ábyrgð á þeirri miklu verðbólgu sem blasi við, þegar horft sé framhjá hækkun húsnæðis. Á heimasíðu ASÍ er bent á að verðbólga nú í janúar mælist 4%. Hún sé því komin í efri vikmörk verðbólgumarkmiðs Seðlabanka Íslands og að neysluverðsvísitalan hafi ekki mælst meiri frá því á miðju ári 2002.

Sakfelling í 155 málum

Sakfellt hefur verið í 155 af 176 skattsvikamálum efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra á árunum 1998-2004, samkvæmt upplýsingum frá embættinu. Tuttugu mál eru nú til meðferðar fyrir dómstólum og í einu tilviki var fallið frá ákæru fyrir aðalmeðferð. Samanlögð vanframtalin velta er talin nema um þremur milljöðrum króna í málunum 176 en heildarfjárhæð skattsvikanna er talin vera um 1,3 milljarðar króna.

Kaupir skip til loðnuveiða

Samherji hefur gengið frá kaupum á nótaveiðiskipinu Högabergi FD frá E.M.Shipping í Færeyjum, eftir því sem fram kemur á heimasíðu fyrirtækisins. Þetta er gert vegna mikillar aukningar á aflaheimildum á loðnu. Í kaupsamningi um skipið er ákvæði um endursölurétt innan þriggja mánaða frá undirritun.

230 þúsund manns töldu fram 2003

Þeir framteljendur, sem voru ekki í sambúð og ekki með börn á framfæri sínu, voru um 96 þúsund talsins árið 2003. Það eru rúmlega 40 prósent allra framteljenda sem voru um 230 þúsund. Í vefriti fjármálaráðuneytisins kemur fram að stór hluti þessa hóps sé ungt fólk, en þó voru 55 þúsund 25 ára og eldri.

Annan segir smærri eyjar í hættu

Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir að eyðileggingin af völdum flóðbylgjunnar í Indlandshafi undirstriki þá hættu sem vofi yfir smærri eyjum vegna breytinga á veðurfari, en óttast er að margar eyjur kunni að fara á kaf í vatn af völdum gróðurhúsaáhrifa og hækkandi hitastigs sjávar.

Jólatrén hirt í síðasta sinn

Starfsmenn Gatnamálastofu munu annast hirðingu jólatrjáa í Reykjavík í dag í síðasta sinn í ár en þeir hafa sinnt því verki síðan á þrettándanum. Þeir borgarbúar sem vilja nýta sér þessa þjónustu eru beðnir um að setja jólatrén út fyrir lóðamörk og þau verða þá fjarlægð.

Ungar konur spenna beltin rangt

Lögreglan í Keflavík hefur orðið vör við ranga notkun bílbelta meðal ökumanna og er algengast að beltið sé ekki látið liggja yfir öxl heldur sett undir vinstri handarkrika.

Ferðamönnum fjölgar um 42 þúsund

Erlendir ferðamenn, sem komu hingað til lands á nýliðnu ári, voru um 42 þúsund fleiri en þeir sem komu til landsins árið áður, sem þó var metár. Þetta er fjölgun upp á rúmlega 13 prósent, en samtals heimsóttu 362.200 erlendir gestir Ísland á árinu 2004, samkvæmt upplýsingum frá Ferðamálaráði.

Borga með farsímum í stöðumæla

Eftir nokkra daga eða vikur verður hægt að borga í stöðumæla og miðamæla. Þjónusta tveggja fyrirtækja verður markaðssett á næstunni.

Impregilo ætlar að sanna sitt mál

Forystumenn Impregilo útskýrðu sín sjónarmið á fundi með félagsmálaráðherra í gær. Þeir telja sig fara fullkomlega eftir Virkjanasamningnum og ætla að leggja sannanir sínar fyrir ráðherra. </font /></b />

Hundruð manna á utangarðsskrá

Óljóst er hversu margir erlendir starfsmenn eru á Kárahnjúkum og hvenær og hversu lengi þeir dveljast þar. Þetta er alvarlegt með tilliti til almannavarna á svæðinu. </font /></b />

Útsvarstekjur allt að þrefaldast

Útsvarstekjur sveitarfélaganna fyrir austan hafa allt að þrefaldast vegna framkvæmdanna við Kárahnjúka. Misjafnt er hvort og þá hversu miklar tekjur sveitarfélögin hafi af starfsmönnum á utangarðsskrá. </font /></b />

Minni líkur á farsóttum

Alþjóðaheilbrigðisstofnunin segir að líkur á sjúkdómum og farsóttum fari minnkandi á hamfarasvæðunum við Indlandshaf, en flestir hafa nú aðgang að annaðhvort hreinu vatni eða hreinsitöflum. 158.000 manns eru taldir hafa látist í flóðunum og var óttast að sú tala myndi tvöfaldast ef farsóttir, sem berast m.a. með óhreinu vatni, brytust út.

Engin röskun á framkvæmdum

Engin röskun verður á framkvæmdum við álverið í Reyðarfirði þrátt fyrir úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að Fjarðaál verði að gangast undir umhverfismat. Fyrirtækið hefur áfrýjað úrskurðinum til Hæstaréttar og þangað til hann fellir úrskurð hefur það sömu réttarstöðu og fyrir úrskurð héraðsdóms.

Stjórnarnefnd LSH fagnar hugmyndum

Stjórnarnefnd Landspítala - háskólasjúkrahúss hefur sent frá sér tilkynningu þar sem hún fagnar mjög hugmyndum ráðherra og þingmanna um fjármögnun nýs hátæknisjúkrahúss við Hringbraut.

Áttu annað erindi á heimilið

Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn í Reykjavík, segir lögregluna hafa farið að heimili konu á þrítugsaldri rétt eftir miðnætti aðfaranótt sunnudags vegna kvartana nágranna um hávaða. Vegna útkallsins hafi lögreglan átt erindi á heimili konunnar aftur aðfaranótt þriðjudags.

Annar með kókaínið

Kókaínið sem fannst um borð í Hauki ÍS í Bremerhaven var allt í ferðatösku yngri Íslendingsins sem situr nú í gæsluvarðhaldi í Þýskalandi. Hassið var falið í farangri þess eldri en mennirnir hafa báðir verið úrskurðaðir í sex mánaða gæsluvarðhald.

Bush en kokhraustur

Bandaríkjamenn hafa hætt leit að efnavopnum í Írak. Meint efnavopnaeign var meginrök Bandaríkjaforseta fyrir innrásinni. Sjónvarpsviðtal við Bush verður sýnt í bandarísku sjónvarpi í kvöld.

Fasteignaskattur ekki hækkaður

Borgarráð hefur ákveðið að draga til baka áform um að hækka álagningarhlutfall fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði. Um áramótin hækkaði fasteignamat töluvert umfram það sem gert hafði verið ráð fyrir í fjárhagsáætlun borgarinnar og því telur borgarstjóri ekki lengur þörf á að auka tekjur með hækkun álagningarhlutfalls.

Sjónarhóll enn ógirtur

Miltisbrandssýkta jörðin Sjónarhóll á Vatnsleysuströnd er enn ógirt þrátt fyrir tilmæli landbúnaðarráðherra um annað. Meira en mánuður er liðinn frá því að þrjú hross drápust á jörðinni. Eigendur Sjónarhóls vilja að jörðin verði girt vestan þjóðvegar og fyrir því þarf að leita samþykkis eigenda nágrannajarða.

Reynt að hrinda af stað styrjöld

Hryðjuverkamenn eru farnir að myrða leiðtoga sjíta í Írak og reyna að hrinda af stað borgarastyrjöld fyrir kosningarnar sem haldnar verða um næstu mánaðamót.

Fjármunir gufa stundum upp

Fjármunir, sem lofað er vegna náttúruhamfara, eiga það til að gufa upp þegar á reynir, en þetta gerist bæði vegna spillingar og vanefnda. Því hafa íbúar í sumum ríkjum Mið-Ameríku, í Bam í Íran og í Afganistan fengið að kynnast.

Klór áfram í Kópavogi

Heilbrigðiseftirlit Kópavogs taldi framleiðslu klórs lokið í fyrirtæki Mjallar-Friggjar í Kópavogi. Tveir til þrír mánuðir eru eftir af framleiðslunni sem er án starfsleyfis.

Íhuga að sanna mál sitt fyrir dómi

Verkefnastjóri Impregilo vísar á bug öllum ásökunum Alþýðusambands Íslands um brot á íslenskri vinnu- og skattalöggjöf. Hann segist nú íhuga dómsmál til að færa sönnur á mál sitt. Félagsmálaráðherra reynir þessa dagana að mynda sér skoðun á málinu en það er orð gegn orði í málflutningi forkólfa ASÍ og lmpregilo.

Stórmeistari fékk nálgunarbann

Fertugur maður kemur fyrir dóm í dag, ákærður fyrir að hafa rofið nálgunarbann. Hann hefur haft í hótunum við Helga Áss Grétarsson stórmeistara í skák, sem á í sambandi við barnsmóður hans.

Sjá næstu 50 fréttir