Fleiri fréttir

Sektaður fyrir fíkniefnabrot

Fertugum manni var, í Héraðsdómi Reykjaness í gær, gert að greiða 35 þúsund krónur í sekt fyrir fíkniefnabrot og þjófnað. Verði sektin ekki greidd innan fjögurra vikna kemur átta daga fangelsi hennar í stað.

Með kíló af kókaíni innvortis

Tæplega þrítugur Ungverji situr í gæsluvarðhaldi eftir að hann var tekinn í Leifsstöð með tæpt kíló af kókaíni innvortis þegar hann kom til landsins í lok síðasta mánaðar. Er þetta mesta magn sem vitað er til að maður hafi komið með innvortis hingað til lands. Nígeríumaður var handtekinn í Reykjavík síðastliðinn fimmtudag í tengslum við málið.

Vill málsókn vegna logins faðernis

Jón Eiríksson, 77 ára verslunarmaður, taldi sig eiga þrjár dætur með Heiðbjörtu Guðmundsdóttur. Í ljós kom að engin dætranna var hans, heldur hafði Heiðbjört eignast þær með öðrum mönnum. Jón ól dæturnar upp og borgaði síðan meðlag, en fær það ekki endurgreitt.

Taka upp eðlilega lífshætti

Íbúar á hamfarasvæðunum í Asíu reyna hvað þeir geta að taka upp eðlilega lífshætti. Mest áhersla hefur verið lögð á það á þeim svæðum sem urðu verst úti að líf barna verði sem fyrst því sem næst eðlilegt á ný. Hjálparstarf er farið að bera sýnilegan árangur.

Staða Abbas fallvölt

Staða Mahmouds Abbas, nýkjörins forseta Palestínu, þykir fallvölt en hans bíður afar erfitt verkefni að halda aftur af hryðjuverkahópum svo hægt verði að ganga til friðarsamninga við Ísraelsmenn. Abbas er raunsær hófsemdarmaður og telja margir að kosning hans marki þáttaskil í friðarumleitunum fyrir botni Miðjarðarhafs.

Stuðla að betra málfari

Ekki segja „ókei“, heldur allt í lagi, ekki segja „bæ, bæ“, heldur „veriði bless“. Þetta er meðal þess sem Pétur Pétursson þulur og Eyjólfur Jónsson sundkappi, ásamt fleirum, ræddu við börnin á Barónsborg í dag.

Átti fótum fjör að launa

Johan Svensson, forstjóri Íslenska járnblendifélagsins, átti fótum sínum fjör að launa þegar hann lenti í flóðbylgjunni í Taílandi. Hann segist breyttur maður eftir þá reynslu.

Tólf tíma málflutningur í olíumáli

Málflutningur olíufélaganna fyrir áfrýjunarnefnd samkeppnismála vegna úrskurðar samkeppnisráðs um verðsamráðssektir stóð frá klukkan níu í gærmorgun til níu í gærkvöldi.

Sigríði sagt upp störfum

Sigríði Árnadóttur, fréttastjóra Stöðvar 2 og Bylgjunnar, var sagt upp störfum í gær eftir tæplega eitt ár í starfi. Sigríður segist hafa verið kölluð á fund Páls Magnússonar sjónvarpsstjóra síðdegis í gær þar sem henni var sagt upp án nokkurs formála.

Þrjú snjóflóð í gærkvöld

Þrjú snjóflóð féllu með stuttu millibili á veginn í Kirkjubotnshlíð á Ísafirði síðdegis í gær. Vegurinn, sem er milli Ísafjarðar og Súðavíkur, lokaðist í nokkurn tíma en starfsmenn Vegagerðarinnar unnu við það í gærkvöldi að ryðja hann.

Vill fækka starfsfólki

Miðað við fjárhagsáætlun meirihluta bæjarstjórnar Ísafjarðar bendir allt til þess að bæjarsjóðurinn verði tómur árið 2007 að mati Magnúsar Reynis Guðmundssonar, bæjarfulltrúa Frjálslyndra og óháðra. Bæjarins besta greinir frá því að Magnús vilji grípa til róttækra aðgerða. Meðal annars vill hann fækka stöðugildum hjá bænum um þrjátíu.

Breytingar á lánasjóði

Það er mikilvægt að kanna framtíð Lánasjóðs landbúnaðarins að mati Guðna Ágústssonar, landbúnaðarráðherra nú þegar miklar breytingar eiga sér stað á peningamarkaði. Hann hefur skipað verkefnisstjórn til þess sem á að skila tillögu fyrir lok febrúar.

Þyrlur fylgdu flugvél að landinu

Flugvél Flugmálastjórnar og þyrlur Landhelgisgæslunnar og Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli flugu til móts við eins hreyfils flugvél vestur af landinu í gær. Flugmaður vélarinnar, sem var einn um borð, sendi út neyðarkall klukkan tíu mínútur í níu í gærkvöld þegar hann var staddur um 105 sjómílur vestur af Keflavík.

Loftfar leysi Herjólf af hólmi

Hagkvæmara væri að nota loftfar til að flytja fólk og frakt til og frá Vestmannaeyjum heldur en með Herjólfi, samkvæmt könnun sem sex nemendur við Viðskiptaháskólann á Bifröst unnu í vetur.

Auglýsir fé til mannréttindamála

Dómsmálaráðuneytið auglýsti til umsóknar þær fjórar milljónir króna sem ráðuneytið hefur til ráðstöfunar vegna starfa að mannréttindamálum. Tekið er fram í auglýsingunni að fénu verði úthlutað á grundvelli umsókna, en þær verða að berast ráðuneytinu fyrir næstu mánaðamót.

Nefnd heimsækir Kína

Opinber heimsókn Halldórs Blöndal, forseta Alþingis, til Kína hefst í dag og stendur fram á þriðjudag í næstu viku.

Hálkuvarnir auknar

Samgönguráðherra hefur ákveðið að auka vetrarþjónustu og hálkuvarnir á þjóðvegum landsins, að því er fram kemur á vef ráðuneytisins.

Nýr sendiherra í Þýskalandi

Ólafur Davíðsson afhenti í gær Horst Köhler, forseta Þýskalands, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Þýskalandi.

Nýr vefur sýslumanna

Sýslumannafélag Íslands hefur í samstarfi við dóms- og kirkjumálaráðuneytið opnað nýjan vef, syslumenn.is, sem inniheldur upplýsingar um verkefni sýslumanna og ýmsar leiðbeiningar til þeirra sem til embætta sýslumanna þurfa að leita.

Búnaður vari við leka

Væntanleg er reglugerð frá samgönguráðuneytinu um búnað til að vara við leka í fiskiskipum, að því er fram kemur á vef Landssambands íslenskra útvegsmanna.

Breytingar á Hellisheiði

Ákveðið hefur verið að hafa þrjár akreinar frá Litlu kaffistofunni að Hveradalabrekku og mislæg gatnamót við Þrengslaafleggjara á Hellisheiði, að því er sunnlenska vikublaðið Glugginn greinir frá.

Vorboðinn snemma á ferðinni

"Rauðmaginn er snemma á ferðinni, vorboðinn og við höfum verið að fá mikið af honum ," sagði Óskar Guðmundsson útgerðarmaður, en rauðmagi hefur verið nefndur vorboði. "Við erum farnir að fá rauðmaga í desember."

Bíll á varnargarði

Hálfþrítugur maður slasaðist alvarlega þegar hann missti stjórn á bifreið sinni og hafnaði á sjóvarnargarði við Faxagötu í Reykjavík skömmu fyrir klukkan átta í gærmorgun.

Segir risarækjueldi áhugavert

Sveitarstjóri Reykhólahrepps segir risarækjueldi vera mjög áhugavert verkefni við fyrstu sýn og á næstunni verði það skoðað betur. Ákvörðun um næstu skref verður tekin eftir að hreppsnefnd hefur kynnt sér viðskiptaáætlun sem starfsmenn Orkuveitu Reykjavíkur hafa gert um verkefnið.

Sextán árekstrar á þremur tímum

Sextán árekstrar urðu í höfuðborginni í gær á þremur klukkustundum, frá klukkan 10 í gærmorgun til klukkan 13. Lögregla kennir um hálku og mikilli umferð. Engin alvarleg slys urðu á fólki.

Stefnir í góða kosningaþátttöku

Palestínumenn ganga að kjörborði í dag til að kjósa eftirmann Jassirs Arafats í embætti forseta. Flest bendir til þess að Mahmoud Abbas verði fyrir valinu en hann hefur lofað að hleypa lífi í friðarsamningana við Ísraelsstjórn.

Mikið af loðnu fyrir norðan land

Hægt verður að auka útgefinn loðnukvóta verulega miðað við mælingar rannsóknarskipsins Árna Friðrikssonar sem nú standa yfir fyrir norðan land. Mikið er af loðnu þar. Leitarsvæði rannsóknarskipsins og níu loðnuskipa nær út af sunnanverðum Vestfjörðum norður og austur um til móts við Norðfjarðarflóa.

Úlit fyrir gott ferðaveður

Það er útlit fyrir gott ferðaveður á landinu í dag, að mati Vegagerðarinnar. Á helstu leiðum er annaðhvort fært eða verið að moka. Á Vestfjörðum er verið að opna bæði í Barðastrandarsýslu, Ísafjarðardjúpi og á Ströndum.

Tamíl-tígrar æfir út í stjórnvöld

Tamíl-tígrar á Srí Lanka eru æfir vegna þess að ríkisstjórn landsins neitaði Kofi Annan, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, um leyfi til að heimsækja landssvæði Tígranna þegar hann var á ferð um Srí Lanka.

Misjafnar aðstæður á skíðasvæðum

Skíðasvæði landsmanna eru mörg hver opin í dag. Í Skálafelli er hæg austanátt og góðar aðstæður. Veður er hins vegar að versna í Bláfjöllum og aðeins diskalyftur eru opnar þar. Opið er í Hlíðarfjalli frá kl.10 til 17 í dag, en þar var norðvestan 2-4 og sjö stiga frost rétt fyrir kl. 10. Á Hengilssvæðinu var léttskýjað, 8-10 metrar á sekúndu og fjögurra stiga frost, en þar er opið til 17 í dag.

Fjórir drepnir í Sádi-Arabíu

Sádiarabískar öryggissveitir skutu fjóra menn til bana í bardaga nærri borginn Riyadh í morgun. Samkvæmt innanríkisráðuneyti landsins neituðu mennirnir, sem taldir eru vera félagar í al-Qaida, að gefast upp og skutu á öryggissveitarmenn sem svöruðu í sömu mynt með fyrrgreindum afleiðingum.

Enn sagðir týndir á hamfaraslóðum

Ellefu Íslendingar eru enn sagðir týndir á hamfarasvæðunum við Indlandshaf í öllum fréttaskeytum Reuters-fréttastofunnar þrátt fyrir að tæp vika sé síðan vitað var um ferðir flestra þeirra.

Níu létust í Danmörku og Svíþjóð

Að minnsta kosti 9 manns fórust í óveðri sem gekk yfir Danmörku og hluta Svíþjóðar í gær. Rafmagn fór af tæplega fimm hundruð þúsund heimilum í löndunum tveimur.

Segir ummæli Davíðs ömurleg

Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, segir ömurlegt að hlusta á viðbrögð utanríkisráðherra við skoðanakönnun Gallups um afstöðu almennings til Íraksstríðsins. Hann segir að forystumönnum ríkisstjórnarinnar væri nær að biðja þjóðina afsökunar.

Vel fylgst með kosningum

Palestínumenn ganga að kjörborðinu í dag til að kjósa eftirmann Jassirs Arafats í embætti forseta. Vel er fylgst með framgangi kosninganna og átta hundruð erlendir kosningaeftirlitsmenn eru á svæðinu. Ýmis ljón eru þó í veginum.

Fleiri látnir í óveðrinu

Tala látinna í óveðrinu sem gekk yfir Danmörku og suðurhluta Svíþjóðar í gær er nú komin upp í ellefu. Sjö létust í Svíþjóð og fjórir í Danmörku, flestir eftir að tré féllu á bíla þeirra. Á Bretlandseyjum, þar sem óveðrið fór líka yfir, létust þrír og tveggja er saknað.

Átta létust í sprengingu í Írak

Sjö úkraínskir hermenn og einn Kasaki létust í Wasit-hérað í Írak í dag þegar sprengja, sem þeir hugðust aftengja, sprakk. Þá særðust ellefu hermenn í sprengingunni, sjö Úkraínumenn og fjórir Kasakar, en verið var að flytja sprengjuna á öruggan stað þegar atviki varð.

Nefnd kanni stöðu sjávarútvegsins

Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra kynnti á fundi í Stykkishólmi í morgun að hann hygðist skipa nefnd sem ætlað er að gera úttekt á stöðu sjávarútvegsins í ljósi þeirrar hækkunar sem orðið hefur á gengi íslensku krónunnar og væntinga um að gengið haldist hátt um nokkurn tíma.

Kjörfundur framlengdur um tvo tíma

Yfirkjörstjórn í Palestínu hefur ákveðið að framlengja kjörfund í forsetakosningunum um tvær klukkustundir, eða til sjö í kvöld að íslenskum tíma. Þetta er gert vegna þess að einhverjir Palestínumenn hafa verið stöðvaðir við eftirlitsstöðvar Ísraelshers á leið sinni á kjörstað.

Matar- og vatnsskortur yfirvofandi

Löggjafinn á hinum afskekktu Andaman- og Níkóbareyjum í Indlandshafi, sem urðu illa úti í flóðbylgjunni annan dag jóla, segir að eftirlifendur á eyjunum séu verða uppiskroppa með mat og vatn. Hann fer fram á að flutningi á hjálpargögnum verði hraðað eins og kostur er, ella muni enn fleiri falla í valinn á eyjunum.

Neita að framfylgja reykingabanni

Eigendur veitingahúsa og kráa á Ítalíu neita að framfylgja reykingabanni sem tekur gildi á morgun. Banninu, sem upphaflega átti að taka gildi um áramót, var frestað um nokkra daga svo ítalskir reykingamenn gætu fagnað nýju ári á krám og veitingahúsum.

Blair og Brown deila

Hatrammar deilur forsætis- og fjármálaráðherra Bretlands hafa blossað upp að nýju. Í ljós hefur komið að stuðningsmenn Tonys Blairs gera ekki ráð fyrir Gordon Brown í kosningabaráttu Verkamannaflokksins fyrir þingkosningarnar í vor.

Endi bundinn á borgarastyrjöldina

Endi var bundinn á lengstu borgarastyrjöld í Afríku í dag þegar ríkisstjórn Súdans skrifaði undir friðarsamning við uppreisnarmenn í landinu. Styrjöld á milli múslíma í norðurhluta Súdans og kristinna manna í suðurhluta landsins hefur geisað í tuttugu ár og er talið að ein og hálf milljón manna hafi látið lífið.

Suðurstrandarvegur endurbyggður

Langþráð endurbygging Suðurstrandarvegar milli Grindavíkur og Þorlákshafnar er að hefjast. Vegagerðin hefur boðið út fyrsta kaflann en óvíst er um framhald verksins þar sem hluti fjárveitingar verður fluttur í mislæg gatnamót í Svínahrauni.

Sjávarútvegsráðherra skipar nefnd

Nefnd hefur verið skipuð til þess að fjalla um sjávarútveginn og hágengið. Henni er ætlað að gera úttekt á stöðu sjávarútvegsins í ljósi þeirrar hækkunar sem orðið hefur á gengi íslensku krónunnar og væntinga um að gengið haldist hátt um nokkurn tíma.

Sjá næstu 50 fréttir