Erlent

Eignir Yukos á uppboði í dag

Lykileignir rússneska olíufélagsins Yukos verða seldar á uppboði í dag - að sögn fréttaskýrenda á góðu verði, finnist rétti kaupandinn.  Það er félag í eigu Yukos sem verður selt en það framleiðir stærsta hluta olíunnar sem Yukos selur og græðir á. Stjórnendur Yukos hafa reynt allt hvað þeir geta til að koma í veg fyrir söluna og reyna að þvinga verðið upp á við, en að því er virðist án árangurs. Talsmenn fyrirtækisins segja gjörning stjórnvalda jafngilda þjófnaði og að þetta sé hrein og bein hefndaraðgerð. Formælendur yfirvalda segja á móti að einungis sé verið að framfylgja lögum og sjá til þess að ríkið fái greiddar skattaskuldir með einhverjum hætti. Talið er víst að ríkisfyrirtækið Gazprom kaupi þann hluta Yukos sem verður boðinn upp og borgi fyrir brot af ætluðu virði fyrirtækisins. Þar með yrði ríkið á ný orðið umsvifamikið í olíuiðnaði. Reyndar keppa tvö önnur fyrirtæki um hituna en þau eru sögð eiga litla möguleika og fréttaskýrandi BBC segir að í Moskvu séu þau talin í samkrulli með Gazprom, í raun einungis til þess ætluð að það líti út fyrir að ekki eigi að færa Gazprom Yukos á silfurfati. Yukos er að stærstu hluta í eigu auðmannsins Mikhails Khodorkovskys og er almennt litið svo á að málið gegn Yukos sé í raun herferð stjórnvalda í Kreml með Vladímír Pútín forseta í broddi fylkingar. Tilgangurinn sé að knésetja Khodorkovsky og koma í veg fyrir að fyrirætlanir hans um afskipti af stjórnmálum nái fram að ganga.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×