Innlent

Sendiráði Breta ekki lokað

Breska sendiráðið á Íslandi er ekki eitt af þeim sem Bretar ætla að loka vegna niðurskurðar. Greint var frá því í mars að sendiráðið væri ofarlega á lista yfir þau sem loka ætti. Nú hefur listinn verið birtur og eru það níu sendiráð sem verður lokað, í Afríku og Asíu. Auk þess verður nokkrum ræðismannsskrifstofum lokað. Spara á með þessu sem svarar 740 milljónum íslenskra króna, sem verða notaðar að mestu leiti í verkefni sem tengjast baráttu gegn hryðjuverkum. Sendiherra Breta á Íslandi segir að niðurskurðurinn muni engin áhrif hafa hér á landi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×