Refurinn er erfiður 15. desember 2004 00:01 "
Við erum farin að sjá ljósglætu," segir Björn Halldórsson, formaður Sambands íslenskra loðdýraræktenda sem nú er staddur í Kaupmannahöfn ásamt Guðna Ágústssyni og föruneyti. Loðdýraræktendur hafa um langt skeið átt nokkuð erfitt uppdráttar. Er tilgangur fararinnar að sýna Guðna uppboðshús loðskinna, sem íslenskir loðdýrabændur hafa átt mikil viðskipti við. Björn segir að verð á skinnum hafi verið gott undanfarin tvö ár, en gengið á dollaranum hafi nú verið að stríða þeim. "Skinnin eru seld í dollurum og gengið hefur verið óvenju lágt að undanförnu." Björn segir það 100 til 150 milljónir sem loðdýrabændur á Íslandi fengju meira ef gengi dollara væri eðlilegt. "Það er ágætis verð á minknum, en refurinn er erfiður." Björn segir horfurnar ekki góðar fyrir refinn, sérstaklega vegna þess að ekki hefur tekist að koma refaskinni eins mikið inn í tískuna og minkinn. "Refurinn er önnur týpa af skinni, sem endist ekki eins lengi. Það hefur líka verið offramleiðsla á skinnum, til dæmis í Finnlandi." Tiltölulega fá refabú eru starfandi á Íslandi og tveir loðdýraræktendur hættu refaframleiðslu á árinu. Minkabændur eru hins vegar um 30 og mikil bjartsýni í greininni. "Við erum að reyna að ná niður fóðurverði og skipuleggja okkur aðeins betur," segir Björn. Þetta tvennt er meðal þess sem Guðni Ágústsson telur að íslenskir loðdýraræktendur geta lært af hinum dönsku. "Faglega og viðskiptalega getum við lært mikið af Dönunum. Það hefði verið gott að vinna með þeim í upphafi þegar þessi loðdýrarækt fór af stað á Íslandi," sagði Guðni. "Þetta er þróaður atvinnuvegur hjá þeim og markviss." Hann segist sérstaklega hafa tekið eftir hve samvinna loðdýrabænda í Danmörku er fagleg og í samræmi við góða viðskiptahætti. Á síðasta sölutímabili, frá desember 2003 til september 2004 náðist næst hæsta verð í Evrópu fyrir íslensk minkaskinn. Aldrei áður hafa íslenskir loðdýraræktendur náð jafn góðum árangri.
Fréttir Innlent Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Fleiri fréttir Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Sjá meira