Hótaði að sprengja allt í loft upp 15. desember 2004 00:01
Gíslatökumaður hótaði í gærkvöld að sprengja rútu með sex gíslum innanborðs í loft upp ef yfirvöld yrðu ekki við kröfu hans um andvirði 85 milljóna króna í lausnargjald og tryggingu fyrir því að flogið yrði með hann og félaga til Rússlands. Þá höfðu þeir sleppt sautján af 23 farþegum sem þeir hnepptu í gíslingu fyrr um daginn. Gíslatökumennirnir tveir stigu um borð í rútuna í Aþenu, höfuðborg Grikklands, vopnaðir rifflum, snemma í gær og skutu nokkrum skotum í gegnum þak rútunnar. Bílstjóri rútunnar stöðvaði hana og náði að flýja ásamt miðasölumanni og einum farþeganna. Eftir voru 23 farþegar sem teknir voru í gíslingu. Talið er að gíslatökumennirnir séu Albanar sem eigi að baki glæpaferil í Grikklandi. Þeir skutu af og til að lögreglumönnum sem umkringdu rútuna, og slepptu farþegum reglulega fram eftir degi. Í gærkvöldi sagði annar gíslatökumannanna hins vegar að fleiri gíslum yrði ekki sleppt fyrr en yfirvöld yrðu við kröfu þeirra félaga. Hann gaf þeim frest til klukkan sex í morgun að íslenskum tíma til að greiða lausnargjaldið og koma honum og félaga sínum um borð í flugvél á leið til Rússlands. "Ég bíð til klukkan átta í fyrramálið, þegar bankarnir opna, og þeir færa mér bílstjóra og peninga. Ef þeir gera það ekki kveiki ég á þræðinum," sagði gíslatökumaðurinn í símaviðtali við Alter-sjónvarpsstöðina. Klukkan er sex hér á Íslandi þegar hún er átta í Grikklandi.
Erlent Fréttir Mest lesið „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Innlent Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Innlent Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Innlent Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Erlent Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Innlent Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Innlent Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Innlent Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent Fleiri fréttir Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Fölsk játning í formi lags Drífa segir nálgunarbann vannýtt úrræði Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Engar íranskar árásir gerðar á meðan sprengjuhlé Bandaríkjanna varir Þrír látnir eftir skothríð á matarhátíð í Seattle Netayahu sakar Mamdani um að „sá hatri“ Á fjórða hundrað þúsund hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Grunaður árásarmaður skotinn til bana í Berlín Fer enn huldu höfði Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Lýsa eftir þekktum öfgamanni Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Sjá meira