Fleiri fréttir

Tjónið tugir milljóna

Tugmilljóna tjón varð í bruna í verslun Nóatúns, í JL-húsinu, síðastliðna nótt. Allt sem í versluninni var er ónýtt, vörur, raftæki og innréttingar.

Dioxín eitrun

Orsök hinnar dularfullu veiki sem Júsénkó, forsætisráðherra Úkraínu hefur þjáðst af undanfarnar vikur, er díoxíneitrun. Líklegt er að honum hafi verið byrlað eitur. Íslenskur eiturefnasérfræðingur segir efnið bráðdrepandi í mjög litlum skömmtum.

Var málið rætt 18. mars?

Íraksmálið komst óvænt á dagskrá á Alþingi í gær, skömmu áður en alþingismenn fóru í sex vikna jólafrí. Forsætisráðherra sagði þá að Íraksmálið hefði verið rætt á ríkisstjórnarfundi 18. mars 2003 og sendiráði Bandaríkjanna tilkynnt um stuðning Íslands við hernaðaraðgerðir í framhaldi af því.

Hagnaðurinn nam 5 milljónum

Tónleikarnir sem haldnir voru fyrir Félag krabbameinssjúkra barna skiluðu félaginu tæpum fimm milljónir króna. Tónleikahaldarinn segir að umfjöllunin dragi ekki úr honum kjark til þess að halda áfram.

Þrjú skip hér á landi

Fastafloti NATO á Atlantshafi verður stóreflldur á næstu árum, og verður þá tilbúinn til átaka hvar sem er, í heiminum. Þrjú herskip úr flotanum verða til sýnis í Sundahöfn, um helgina.

Framsókn fengi engan mann kjörinn

Framsóknarflokkurinn fengi engan mann kjörinn ef flokkurinn biði fram einn og sér í borgarstjórnarkosningum, samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem Gallup gerði fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Sjálfstæðismenn fengju sex menn kjörna eins og þeir hafa nú. Oddviti Framsóknar í borginni segir könnunina endurspegla fylgisleysi Sjálfstæðismanna öðru fremur.  

Óvíst með bæjarstjóra

Framsóknarmenn og sjálfstæðismenn í Kópavogi hófu í gær viðræður um hver taki við starfi bæjarstjóra í kjölfar andláts Sigurðar Geirdal.

Viðskiptabankar vísa á skattaskjól

Mörg dæmi eru um það hér á landi að stofnuð séu fyrirtæki í erlendum skattaparadísum til að koma tekjum einstaklinga og fyrirtækja undan skatti hér á landi. Í úttekt á umfangi skattsvika, sem nefnd á vegum Alþingis gerði, kemur í ljós að íslenskir bankar hafi liðsinnt félögum og einstaklingum í viðskiptum við lönd með vafasamar skattareglur.

Rafmagnsreikningar hækka um áramót

Rafmagnsreikningar höfuðborgarbúa munu væntanlega hækka um rúm tíu prósent um áramótin. Stjórnir OR og Hitaveitu Suðurnesja taka ákvörðun fyrir áramót. Ástæðan er sögð ný raforkulög. </b />

Tillögur Sharon samþykktar

Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, fékk vilja sínum framgengt á fundi Likud-flokksins í gærkvöldi en þar voru greidd atkvæði um hugmyndir hans um þjóðstjórn með Verkamannaflokknum. Tillagan hlaut afgerandi stuðning enda hafði Sharon hótað að boða annars til kosninga, sem hefði getað leitt til þess að Likud-flokkurinn missti völdin í landinu.

Grét og flúði aðbúnaðinn á Grund

Magnús Benjamínsson, rúmlega áttræður vistmaður á Elliheimilinu Grund, gekk í gærkvöldi út af elliheimilinu ásamt dóttur sinni og tengdsyni. Magnús hefur verið á Grund í nokkra mánuði og hefur á þeim tíma þurft að flytja sig tvisvar um herbergi. Auk þess hafi fárveikir menn komið og farið úr herbergi hans.<font face="Helv"></font>

Eftirlifandi kindur skoðaðar

Dýralæknir mun í dag skoða betur það fé, sem lifði af þegar gólf í stórri kró í fjárhúsi í Mývatnssveit gaf sig í gær með þeim afleiðingum að um hundrað fjár steyptist ofan í ískalda meters djúpa forina fyrir neðan. Tuttugu kindur drápust, en með aðstoð nágranna, björgunarsveitarmanna og lögreglu tókst að bjarga 80 kindum.

Morgunblaðshúsið selt

Stjórn Árvakurs, sem gefur út Morgunblaðið, hefur ákveðið að selja allar eignir félagsins í Kringlunni, þar sem blaðið hefur verið til húsa í tuttugu ár og flytja alla starfssemi að Hádegismóum við Rauðavatn, þar sem ný prentsmiðja blaðsins er risin. Söluverð er rúmir tveir milljarðar og er kaupandi fasteignafélagið Klasi.

Hermaður féll í Írak í gær

Bandarískur hermaður féll í gær í árás uppreisnarmanna í Írak, en talsmenn hersins vilja ekki greina frá kringumstæðunum. Nú liggur jafnframt fyrir að sjötíu hermenn fórust í áhlaupinu á Fallujah í síðasta mánuði, og átök standa þar enn á stöku stað. Í borginni Ramadi virðast uppreisnarmenn sækja í sig veðrið.

Árni Johnsen þjófkennir Steingrím

Árni Johnsen hefur bæði í bók og Kastljósi Ríkissjónavrpsins staðhæft að Steingrúmur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, hafi stolið fágætu fiðrildi af skrifstofu þáverandi umhverfisráðherra og fært Steingrími Hermannssyni að gjöf. Athyglisvert vegna þess að sjálfur hefur Árni verið dæmdur í fangelsi fyrir að stela eigum hins opinbera.<font face="Helv"></font>

Grunaðir um stuld á skartgripum

Tveir menn eru í haldi lögreglunnar í Reykjavík, meðal annars grunaðir um að hafa stolið skartgripum fyrir eina og hálfa milljón króna úr úra- og skartgripaverslun við Laugaveg í fyrrinótt. Upphaflega voru mennirnir handteknir í nótt út af öðrum málum, en það leiddi til þess að lögregla fann tösku falda utandyra.

Allt fé skorið vegna riðu?

Yfirdýralæknir mun á næstunni funda með bændum í Biskupstungum um hugsanlega nauðsyn þess að skera allt fé á svæðinu eftir að riða greindist í fé frá bænum Austurhlíð. Áður en það kom í ljós, var fé aðeins eftir á sjö bæjum í héraðinu eftir niðurskurð á öðrum bæjum vegna riðu.

Olíuverð lækkar líklega

Olíuverð mun að líkindum hækka á heimsmarkaði eftir fund olíumálaráðherra OPEC-ríkjanna í dag, þar sem ræða á hvort að rétt sé að draga úr offramleiðslu með hliðsjón af lækkun heimsmarkaðsverðs á olíufati undanfarið.

Samkynhneigðir í hjónaband

Samkynhneigðir geta nú staðfest samvist sína á Nýja-Sjálandi eftir að þing landsins samþykkti lög þess efnis. Hundruð söfnuðust fyrir utan þinghúsið til að fagna niðurstöðinni, en lögin gera þó ekki ráð fyrir að samkynhneigðir geti gengi í hjónaband. Slíkt samband er á Nýja-Sjálandi aðeins á milli karls og konu.

Bandaríkjamönnum fækkar

Hátt gengi dollars hefur þegar dregið eitthvað úr heimsóknum bandaríkjamanna hingað til lands, að sögn Steins Loga Björnssonar sölu- og markaðsstjóra Icelandair. Bandarískum ferðamönnum hefur fjölgað hlutfallslega meira hér á landi en í nágrannalöndunum undanfarin misseri, eða eftir að Bandaríkjamenn fóru aftur að ferðast til Evrópu eftir áfallið 11. september 2001.

Þúsund deyja á hverjum degi

Þúsund manns týna lífi á hverjum degi í Kongó. Ástæðan er borgarastyrjöld sem heldur áfram þrátt fyrir að friðarsamkomulag hafi verið undirritað fyrir einu og hálfu ári. Þrjár milljónir og 800 þúsund hið minnsta hafa látist í landinu undanfarin sex ár, sem þýðir að borgarastyrjöldin er mannskæðasta stríð frá Seinni heimsstyrjöldinni.

Hermaður fundinn sekur um morð

Bandarískur hermaður var í herrétti í dag fundinn sekur um morð, fyrir að hafa skotið óvopnaðan íraskan borgara í í Bagdad í ágúst.Maðurinn sagðist hafa skotið hann til að lina þjáningar hans. Refsingin hefur ekki verið ákveðin, en lögmenn mannsins hafa samið um að hún verði ekki þyngri en tíu ára fangelsi. Annars hefði verið hægt að krefjast lífstíðardóms.

Lögregla rannsakar æðiskast

Sýslumaðurinn í Dalasýslu hefur óskað eftir því að Ríkislögreglustjóri rannsaki atvikið sem varð á bæ í Dölunum í gær, þegar æði rann á heimilisföðurinn og hann stórskemmdi lögreglubíl embættisins með stjórri hjólaskóflu.

Öll starfsemi flutt að Hádegismóum

Stjórn Árvakurs, sem gefur út Morgunblaðið, hefur ákveðið að selja allar eignir félagsins í Kringlunni, þar sem blaðið hefur verið til húsa í tuttugu ár og flytja alla starfssemi að Hádegismóum við Rauðavatn, þar sem ný prentsmiðja blaðsins er risin. Söluverð er rúmir tveir milljarðar og er kaupandi fasteignafélagið Klasi.

Var hætt kominn þegar gólfið féll

Bróðir húsfreyjunnar að Geiteyjarströnd í Mývatnssveit var hætt kominn þegar gólf í fjárhúsinu brast og hann féll ásamt hundrað kindum niður í metra djúpa og ískalda haug- og hlandforina í kjallaranum.

Svæðið bara girt af

Ólíklegt er að frekar verði aðhafst á jörðinni Sjónarhóli á Vatnsleysuströnd, þar sem miltisbrandseitrun kom upp, annað en að girða smitsvæðið af um alllanga framtíð. Embætti yfirdýralæknis hefur borist upplýsingar um að miltisbrandur leynist í jörð á að minnsta kosti áttatíu stöðum víðs vegar um landið.

Allir vilja nýta sér lágan dollar

Sögulegt lágmark dollarans tekur á sig ýmis birtingarform. Til dæmis hafa Íslendingar sem starfa í Bandaríkjunum fundið fyrir miklu áreiti skyldmenna, kunningja og samstarfsfólks um það að kaupa hitt og þetta á síðustu vikum. Allir vilja nýta sér lágt gengi dollarans.

Berlusconi dæmdur í dag?

Búist er við að dómur verði kveðinn upp í dag yfir Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, vegna mútumála. Berlusconi, sem er margfaldur milljarðamæringur, er sakaður um að hafa mútað nokkrum dómurum á níunda og tíunda áratug síðustu aldar og þannig keypt sér hagstæðan úrskurð í málum sem snertu Fininvest-veldið hans.

Krabbamein í börnum eykst

Krabbamein í evrópskum börnum hefur farið hratt vaxandi á undanförnum árum og áratugum. Þetta sýnir ný rannsókn sem birtist í fagtímaritinu The Lancet. Alþjóðleg mistöð fyrir krabbameinsrannsóknir skoðaði tíðni krabbameins í börnum í 19 Evrópulöndum. Í ljós kom að tíðnin jókst um eitt prósent á ári hjá börnum og eitt og hálft prósent hjá unglingum á síðustu þremur áratugum.

Wangari fær nóbelsverðlaun í dag

Umhverfisverndarsinnin Wangari Maathai tekur við friðarverðlaunum Nóbels í Osló í dag. Maathai er frá Kenía og fyrsta konan frá Afríku sem hlýtur verðlaunin. Hún er forsvarsmaður hreyfingar sem kallast Græna beltið og hefur látið gróðursetja þrjátíu milljónir trjáa víðs vegar í Afríku.

Brottflutningurinn tryggður?

Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, hefur boðið stærsta stjórnarandstöðuflokknum í Ísrael, Verkamannaflokknum, að mynda með sér þjóðstjórn. Takist það eru áætlanir Sharons um að brotthvarf Ísraelsmanna frá Gazasvæðinu taldar tryggðar.

Bandaríkjamönnum fækkar á Íslandi

Óvenju hátt gengi krónunnar gagnvart dollar er þegar farið að draga úr heimsóknum bandaríkjamanna hingað til lands, enda þykir bandaríkjamönnum verðlagið á íslandi vera orðið óheyrulega hátt. Þetta segir Steinn Logi Björnsson sölu- og markaðsstjóri Icelandair.

Lyfjastofnun tekur ekki þátt

Lyfjastofnun er ekki aðili að máli því sem Lyfjafræðingafélags Íslands hefur rekið gegn Landspítala háskólasjúkrahúsi vegna ráðningar yfirmanns lyfjasviðs þar, segir Rannveig Gunnarsdóttir forsstjóri Lyfjastofnunar.

Aðeins einn viðurkenndur

Aðeins einn einstaklingur hefur verið viðurkenndur sem flóttamaður hér á landi síðustu ár, þrátt fyrir að fjöldi hælisleitenda hafi aukist verulega. Mannréttindaskrifstofa Íslands, í samvinnu við Rauða kross Íslands, eflir til málþings í Norræna húsinu í dag þar sem meðal annars verða ræddar þær alþjóðlegu reglur sem gilda um hælisleitendur og meðferð mála þeirra.

Prozac hættulegt börnum

Lyfjaeftirlit Evrópusambandsins telur þunglyndislyfið Prozac hættulegt börnum, þvert á það sem forsvarsmenn lyfjaiðnaðarins í Bretlandi hafa haldið fram. Hátt í 200 þúsund börn og unglingar undir 18 ára aldri taka hin ýmsu þunglyndislyf að staðaldri í Bretlandi og að undanförnu hefur því verið haldið fram að Prozac sé öruggast slíkra lyfja fyrir börn.

Á milli 20 og 40 heimilislausar

Talið er að á milli tuttugu og fjörutíu konur í höfuðborginni séu heimilislausar. Konukot, athvarf fyrir heimilislausar konur var opnað í dag á 80 ára afmæli Rauða Kross Íslands. Athvarfið er rekið af Reykjavíkurdeild Rauða krossins að Eskihlíð 4. Þar eru rúm fyrir átta konur auk hreinlætis- og þvottaaðstöðu.

7 létust í sprengingu í Pakistan

Að minnsta kosti sjö eru látnir og nokkrir slasaðir eftir sprengingu við herjeppa í suð-vesturhluta Pakistan í morgun. Fjögurra kílógramma sprengju var komið fyrir á reiðhjóli og hún sprakk við herjeppann með þeim afleiðingum að nokkrir létu lífið samstundis og nokkrir til viðbótar létust eftir að þeir höfðu verið fluttir á sjúkrahús.

4 slasaðir eftir sprengingu

Fjórir Ísraelsmenn slösuðust í morgun þegar palestínskir uppreisnarmenn skutu með sprengjuvörpu á fjölbýlishús á Gaza-ströndinni í morgun. Að minnsta kosti einn mannanna er í lífshættu.

Kostnaðurinn óeðlilegur?

Fjarskiptayfirvöld Evrópusambandsins hafa hafið rannsókn á því hvort kostnaður símtala úr farsímum á milli landa sé óeðlilega hár. Sem stendur er kerfið þannig að farsímar finna sér samband í símakerfi þess lands sem hringt er í, en eigi að síður er kostnaður símtala úr farsímum á milli landa töluvert hærri en ef hringt er innanlands.

Niðurstaða rannsókna brátt ljós

Forsetaframbjóðandinn úkraínski, Viktor Júsjenkó, fær væntanlega að vita það í dag hvort eitrað hafi verið fyrir honum í aðdraganda forsetakosninganna umdeildu í Úkraínu. Niðurstöður blóðrannsókna á Júsjenkó munu brátt liggja fyrir og kemur þá í ljós hvers vegna útlit stjórnarandstæðingsins hefur tekið stakkaskiptum á aðeins nokkrum vikum.

Fyrrverandi SS-foringi ákærður

Dómstóll í Danmörku hefur gefið út ákæru á 83 ára gömlum fyrrverandi dönskum SS-foringja, sem nú býr í Þýskalandi. Manninum, sem einnig hefur þýskt ríkisfang, er gefið að sök að hafa fyrirskipað morð á dönskum blaðamanni árið 1943.

Ný stjórn í Ísrael

Ný stjórn er í fæðingu í Ísrael sem er sammála um að eftirláta Palestínumönnum Gazasvæðið, og flytja þaðan á brott alla Ísraelsmenn. Vonir um frið hafa glæðst.

Geri sér grein fyrir áhættu

Fjármálaeftirlitið hyggst herða eftirlit með fasteignalánum og útlánum sem fela í sér markaðsáhættu. Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, segir að bankarnir verði að gera sér grein fyrir þeim áhættum sem fylgi þeirri þróun sem átt hafi sér stað.

Samningur við Samskip framlengdur

Vegagerðin hefur framlengt samning við Samskip um rekstur Sæfara til næstu tveggja ára en félagið hefur séð um rekstur ferjunnar frá árinu 1996. Sæfari siglir milli Dalvíkur, Grímseyjar og Hríseyjar. Rekstur ferjunnar er sagður hafa gengið vel og flutningar aukist ár frá ár.

Óska eftir stöðumælum

Íbúar við Bárugötu, Ránargötu eða Öldugötu í Reykjavík hafa óskað eftir því við Bílastæðasjóð að settir verði stöðumælar í göturnar til að auka aðgengi að bílastæðum á daginn.

Sjá næstu 50 fréttir