Fleiri fréttir

Leitað að léttari rifflum

Íslenska friðargæslan leigir öll vopn sem sveitin notar. Hún leitar nú að léttari rifflum en notaðir hafa verið til þessa því þeir þykja of stórir og of kraftmiklir. Hecler og Koch riflarnir sem friðargæslan notar núna eru stórir og fyrirferðamiklir að sögn Arnórs Sigurjónssonar, yfirmanns friðargæslunnar.

Berlusconi sýknaður

Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, var síðdegis í dag sýknaður af ákæru um mútugreiðslur. Annar liður ákærunnar um mútugreiðslur var látinn niður falla þar sem of langt er liðið frá meintum brotum. Berlusconi var sakaður um að hafa mútað dómurum á níunda og tíunda áratug síðustu aldar og þannig keypt sér hagstæðan úrskurð í málum sem snertu Fininvest-veldi hans.

Eru að drukkna í óskum um kaup

Íslendingar, sem búa í Bandaríkjunum eru að verða gráhærðir yfir kvabbi, að heiman, um að kaupa þetta og kaupa hitt. Það er lágt gengi dalsins, sem veldur þessu fjarstýrða innkaupaæði.

Nýr skóli í Norðlingaholti

Nýr 350 nemenda grunnskóli í Norðlingaholti verður tekinn í notkun næsta haust. Skólinn mun fyrst um sinn vera með kennslu í færanlegu húsnæði. Stefán Jón Hafstein, formaður fræðsluráðs, segir ekki ákveðið hvenær framkvæmdir við sjálfa skólabygginguna hefjist.

Tjónið nemur einni milljón

Tjónið sem varð í fjárhúsunum við bæinn Víðihlíð við Mývatn á fimmtudaginn nemur líklega allt að einni milljón króna. Bóndinn telur að tryggingarnar bæti ekki nema lítinn hluta tjónsins. </font /></b />

Fréttblaðið mest lesið

Fréttablaðið er mest lesna dagblað landsins samkvæmt nýrri könnun IMG Gallup. Að meðaltali lesa 68,5 prósent fólks blaðið daglega sem er nákvæmlega sama hlutfall og sagðist lesa blaðið í könnun Gallup fyrir mánuði síðan.

Ríkislögreglustjóri rannsakar

Tæknideild lögreglunnar í Reykjavík fór vestur í Saurbæjarhrepp í Dölum í gær til að rannsaka vettvang atviks sem varð þar í fyrradag. Þá eyðilagði maður lögreglubíl með hjólaskóflu þegar gert var hjá honum fjárnám og einnig leikur grunur á að hann hafi reynt að kveika í íbúðarhúsi sínu.

Útiloka ekki íkveikju

Lögreglurannsókn vegna brunans á Sauðarkróki um síðustu helgi þar sem ungur maður lést hefur litlu skilað enn sem komið er. Björn Mikaelsson, yfirlögregluþjónn á Sauðárkróki, segir að beðið sé eftir niðurstöðum úr sýnatöku tæknideildar lögreglunnar í Reykjavík.

Norðursnjáldri í Kelduhverfi

Norðursnjáldri fannst í landi bæjarins Fjalla í Kelduhverfi. Þetta er annar hvalurinn á aðeins einum mánuði sem rekur þar á land. Hlynur Ármannsson, líffræðingur hjá Hafrannsóknarstofnun, segir hvalinn líklega ungt kvendýr.

Áhyggjur vegna fasteignaskatts

Verði kirkjum gert að greiða fasteignagjöld kemur það væntalega í hlut þeirra rúmlega 280 safnaða að greiða þau, segir Guðmundur Þór Guðmundsson, framkvæmdastjóri kirkjuráðs þjóðkirkjunnar.

Bílveltur

Flutt með sjúkrabíl Kona, ökumaður bíls, slasaðist við bílveltu á Suðurlandsvegi á móts við bæinn Mæri. Hún var flutt ásamt farþega með sjúkrabíl á heilsugæslustöðina á Selfossi.

Gjöld hækka í Mosfellsbæ

Framsóknarmenn í Mosfellsbæ gagnrýna að skuldir á hvern bæjarbúa verði komnar yfir 600 þúsund og að heildarskuldir bæjarins verði um 4,3 milljarðar króna á næsta ári.

Verðið lækkar með aukinni notkun

Ríkisvaldið hefur ekki uppi ráðagerðir um að beita sér fyrir breytingum á verði gagnaflutninga um Farice sæstrenginn. Forsvarsmenn fyrirtækisins benda á að verð gagnaflutninga um strenginn muni lækka með auknum viðskiptum.

Sæstrengir í stuttu máli

Sæstrengirnir tveir sem til landsins liggja tryggja stafræna gagnaflutninga til og frá landinu. Strengirnir eru í raun fjöldi ljósleiðara sem lagðir eru saman í þykkum kapli, en um ljósleiðarana fara svo hvers konar stafræn gögn, sama hvort þar er um að ræða hljóð- eða myndsendingar, eða gagnastreymi Internetsins.

Hvetur til aukinna matvælavarna

Bandaríkjamenn eyða næstum tug milljarða á ári í að verja matvæli hryðjuverkaárásum. Hættan á slíkum árásum er hins vegar nær engin. Forstjóri Bandarísku lyfjamálastofnunarinnar (FDA) segir sömu rök gilda um viðbúnaðinn og um varnir gegn kúariðu.

Stórum veiðisvæðum lokað

Talið er að ákvörðun Evrópusambandsins um að loka stórum veiðisvæðum í Norðursjó, Írlandshafinu og út af vesturströnd Skotlands muni leiða til sextíu prósenta samdráttar í síldveiðum, 34 prósenta í þorskveiðum og 27 prósenta samdráttar í makrílveiðum.

Eigendur sjávarjarða vilja fiska

Samtök eigenda sjávarjarða ætla að stefna ríkinu til að fá aftur útróðrarrétt. Ómar Antonsson, formaður samtakanna, segir að eigendur sjávarjarða hafi haft þennan rétt frá ómunatíð og hafi meðal annars greitt af því fasteignagjöld.

Ameríkanar á slóð gamalla sanninda

Bandarískir vísindamenn þykjast hafa fundið nýjan sannleik varðandi eldingar í gosstrók eldgosa. Íslenskur vísindamaður hjá Veðurstofu Íslands telur kollega sína ef til vill hafa gleymt gömlum sannindum um rafhleðslu gufu sem myndast við hvellsuðu.

Ljósagangur af eldingum síðustu daga

Síðustu daga hefur gengið mikið þrumuveður suður og suðaustur af landinu. Þórður Arason, jarðeðlisfræðingur á sérþjónustudeild veðursviðs Veðurstofunnar, segir mesta veðrið hafa verið á fimmtudag.

Sameining MS og MBF

Sameining Mjólkurbús Flóamanna (MBF) og Mjólkursamsölunnar (MS) er á dagskrá, að því er fram kemur í fulltrúaráðum félaganna. Taka á ákvörðun um málið í mars.

Skráningargjöldin hækkuð

Frumvarp menntamálaráðherra, um að hækka skrásetningargjöld ríkisháskólanna, var samþykkt á Alþingi í dag. Skattalækkunarfrumvarp ríkisstjórnarinnar verður afgreitt í kvöld en að fundi loknum fara þingmenn í jólaleyfi.

Vill að Mörður læri mannasiði

Gunnar I. Birgisson formaður menntamálanefndar vill að Mörður Árnason alþingismaður sæki námskeið í mannasiðum. Hann hefur kvartað við forseta Alþingis undan dónaskap þingmannsins við gesti nefndarinnar. Mörður segist ekki kannast við að hafa verið dónalegur. Hann vill að Gunnar Birgisson sæki námskeið í lýðræði.

Bændur ósáttir

Það var kurr í mörgum bændum þegar Óbyggðanefnd kvað, í dag, upp úrskurði í níu málum sveitarfélaga í Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu.

Gagnabanki um mænuskaða

Heilbrigðisráðherra undirritaði, í dag, samning við Auði Guðjónsdóttur, hjúkrunarfræðing, um stofnun alþjóðlegs gagnabanka um mænuskaða. Auður Guðjónsdóttir, skurðhjúkrunarfræðingur, kom að þessu máli eftir að dóttir hennar, Hrafnhildur Thoroddsen lamaðist fyrir neðan mitti, eftir umferðarslys, árið 1989.

Misboðið vegna ofsókna

Pashar Almoallem og Þórkatla Jónsdóttir hafa verið hamingjusamlega gift í fimm ár og búsett allan þann tíma hér á landi. Hann er sýrlenskur og hún íslensk. Útlendingaeftirlitið kannar nú hvort hjónaband þeirra sé málamyndahjónaband.

Konukot opnað

Konukot, næturheimili fyrir heimilislausar konur var formlega opnað í dag á áttatíu ára afmæli Rauða krossins. Talið er að tuttugu til þrjátíu konur í Reykjavík eigi hvergi höfði sínu að halla í borginni. Í Konukoti fá þær athvarf á nóttunni og geta notað hreinlætis- og þvottaaðstöðu. 8-10 konur í einu geta fengið inni í Konukoti.

Friður er forsenda uppbyggingar

Hálft annað ár er liðið síðan ráðist var á Írak og ógnarstjórn Saddams steypt af stóli. Engu að síður er enn róstusamt í landinu og talsvert vantar upp á að þjóðlíf komist í eðlilegt horf.

Þorsti og hungur hlutskiptið

400 milljónir barna hafa ekki aðgang að hreinu vatni og um 100 milljónir búa við alvarlega vannæringu. Á meðan við undirbúum gleðileg jól hafa yngstu íbúar fátækustu landanna fátt til að hlakka til.

Frumkvæðið var okkar

"Frumkvæðið kom frá okkur um að þetta væri nauðsynlegt, eftir að við fengum mjög dökka skýrslu um ástand fiskstofnanna í árslok 1983," segir Kristján Ragnarsson, sem var formaður og framkvæmdastjóri Landssambands útvegsmanna um árabil. "Svo lengi sem ég var formaður LÍÚ talaði ég fyrir því að við ættum að fara að ráðleggingum fiskifræðinga."

Kveikt í hræjunum í dag

Kveikt verður í hræjum hrossanna fjögurra, sem ýmist drápust eða var lógað eftir að hafa smitast af miltisbrandi við bæinn Sjónarhól á Vatnsleysuströnd, um hádegisbil í dag. Hugsanlega verður einu hrossi til viðbótar lógað í varúðarskyni. Átján tonn af eldiviði hafa verið flutt á staðinn og verður slökkvilið á vettvangi.

Með réttarstöðu grunaðs manns

Ungur maður hefur fengið réttarstöðu grunaðs manns vegna lögreglurannsóknar á eldsvoðanum á Sauðárkróki á laugardag þar sem einn maður fórst. Hann er talinn hafa verið í húsinu þegar eldurinn kom upp og var sótugur á vettvangi þegar lögregla kom að, en ber við minnisleysi vegna ölvunar.

Tímasprengja orsakavaldurinn?

Tímasprengja kann að vera ástæða þess að íbúð í fjölbýlishúsi í Stokkhólmi sprakk í gærmorgun. Maður sem stal verðmætum bókum af konunglega bókasafninu í Stokkhólmi bjó í íbúðinni.

Þyrla sótti meðvitundarlausa konu

Liðlega tvítug erlend kona var flutt meðvitundarlaus með þyrlu Landhelgisgæslunnar á slysadeild Landspítalans í gærkvöldi eftir að hún hafði dottið á hálku á hlaðinu við sveitabæ, ofarlega í Hrunamannahreppi. Samkvæmt upplýsingum læknis á gjörgæsludeild er hún komin til meðvitundar og verður að óbreyttu flutt á almenna deild síðar í dag.

Japanskir hermenn áfram í Írak

Ríkisstjórn Japans samþykti í gær að framlengja dvöl japanskra hermanna í Írak í allt að eitt ár, þrátt fyrir harða andstöðu almennings í landinu. Yfir 60 prósent Japana vilja að hermennirnir fari heim á nýjan leik. Koizumi, forsætisráðherra Japans, er dyggur stuðningsmaður George Bush og hefur fórnað töluverðum vinsældum heima fyrir til þess að styðja leiðtogann í vestri.

Nýtt friðarsamkomulag á N-Írlandi

Endanlegt friðarsamkomulag á Norður-Írlandi liggur fyrir en ljósmyndir koma í veg fyrir að það sé undirritað. Talsmenn Írska lýðveldishersins segja ekki koma til greina að ljósmyndir verði teknar af því þegar vopn lýðveldishersins verða eyðilögð, og það geta mótmælendur ekki sætt sig við.

Róttækar breytingar á CIA

Öldungadeild Bandaríkjaþings samþykkti í gær með yfirgnæfandi meirihluta að gera róttækar breytingar á leyniþjónustu landsins. Starfsemi leyniþjónustunnar hefur ekki verið breytt síðan á tímum kalda stríðsins en með tilliti til nýrrar heimsmyndar þótti rétt að nútímavæða leyniþjónustuna bandarísku.

Engisprettusveimur í Mexíkó

Þykkur engisprettusveimur liggur yfir Júkatan-skaga á Mexíkó sem stendur og veldur þar miklum usla. Stærsti sveimurinn sem sést hefur var fimm hundruð metra langur. Yfirvöld segja þó að engisspretturnar séu enn sem komið er engin ógn en bændur hafa skiljanlega miklar áhyggjur af uppskerunni sinni.

OPEC-ríkin minnki olíuframleiðslu

Sérfræðingar OPEC, Samtaka olíuframleiðsluríkja, kanna nú hvort að lækkun á olíufatinu á heimsmarkaði réttlæti að ríkin dragi úr framleiðslu sinni. Olíumálaráðherrar aðildarríkjanna hittast á fundi á morgun til að komast að niðurstöðu og segir ráðherra Írans að ekki hafi náðst samkomulag um stefnuna enn sem komið er.

Örlög Berlusconis að ráðast

Dómarar sem hafa mútumál tengt Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, á sínum borðum ráða nú ráðum sínum og segjast greina frá niðurstöðu sinni á morgun. Berlusconi er sakaður um að hafa mútað nokkrum dómurum á níunda og tíunda áratug síðustu aldar og þannig keypt sér hagstæða úrskurði í málum sem snertu Fininvest-veldið hans.

Reykingar slæmar fyrir heilann

Reykingar eru ekki aðeins slæmar fyrir lungun og hjartað heldur fara þær líka illa með heilastarfsemina. Þetta kemur fram í niðurstöðum skoskrar rannsóknar sem staðið hefur yfir í hartnær sextíu ár. Skoðað var hvernig hugarstarfsemi breyttist með aldrinum hjá tæplega 500 manns, þar af rúmlega 200 reykingamönnum.

Draga úr sæðisframleiðslu

Ungir menn ættu alls ekki að sitja með fartölvur í kjöltunni. Þetta segja sérfræðingar og benda á að töluverður hiti stafi af slíkum tölvum. Hitinn frá tölvunni getur hitað upp pung karlmanna með þeim afleiðingum að stórdregur úr sæðisframleiðslu og þær sæðisfrumur sem þó verða til eru slappari en annars.

Lántökur heimilanna aukast um 100%

Lántökur heimilanna í erlendum gjaldeyri hafa aukist um hundrað prósent á tveimur mánuðum eftir að bankarnir fóru að bjóða húsnæðislán. Lækkun krónunnar og hækkun á erlendum vöxtum gæti því aukið greiðslubyrði þeirra óbærilega.

Lét greipar sópa á Laugavegi

Þjófur lét greipar sópa í glugga úra- og skartgripaverslunar við Laugaveg undir morgun og komst undan með þýfið. Nágranni við götuna heyrði brothljóðin og lét lögreglu þegar vita, auk þess sem þjófavarnarkerfi fór í gang, en þrátt fyrir að lögreglan væri snögg á staðinn var þjófurinn horfinn með feng sinn þegar hún kom að. Þjófurinn er ófundinn.

Ekki enn vitað um smitleiðina

Ekki er enn vitað hvernig miltisbrandur barst í hrossin sem drápust á Sjónarhóli á Vatnsleysuströnd. Hræin verða brennd í dag.

2 handteknir vegna Madrídar-árása

Lögregla á Spáni handtók í morgun tvo menn í tengslum við rannsókn hryðjuverkanna í Madríd þann 11. mars á þessu ári. Mennirnir, sem eru af egypsku og sýrlensku bergi brotnir, eru sagðir hafa tengsl við sjö af þeim mönnum sem grunaðir eru um að hafa komið fyrir sprengjum í lestum í Madríd þann dag.

Sjá næstu 50 fréttir