Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Davíð og Powell funda Davíð Oddsson, utanríkisráðherra, situr nú á lokuðum fundi í bandaríska utanríkisráðuneytinu með Colin Powell, fráfarandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, þar sem þeir ræða framtíð Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli. 16.11.2004 00:01
Óvissa annan daginn í röð Starfsemi grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu var í uppnámi annan daginn í röð. Einungis var full kennsla í 7 skólum af 34. Aðeins helmingur kennara sá sér fært að mæta til vinnu, en þeir eru sagðir verða fyrir þrýstingi og áreiti af hálfu hinna, sem heima sátu. 16.11.2004 00:01
Þrýstingurinn eykst Enn eykst þrýstingurinn á samninganefndir sveitarfélaga og kennara um að þær nái samningum. Kennarar búast við fjöldauppsögnum, komi til þess að gerðardómur ákvarði kaup þeirra og kjör. 16.11.2004 00:01
Tugir hafa sagt upp Tugir grunnskólakennara hafa sagt upp störfum í dag. Sérstök vinnumiðlun kennara hefur verið stofnuð og fjöldi hefur þegar skráð sig, þótt starfsemin sé ekki formlega hafin. 16.11.2004 00:01
Vanvirðing við Alþingi Ríkisstjórnin var sökuð um að sýna Alþingi lítilsvirðingu þegar formaður Samfylkingarinnar mælti fyrir þingsályktunartillögu um að Ísland drægi stuðning sinn við Íraksstríðið til baka. Enginn ráðherra var viðstaddur. 16.11.2004 00:01
Stjórnvöld sofandi? Bryndís Hlöðversdóttir alþingismaður spurði á Alþingi í dag hvort íslensk stjórnvöld flytu sofandi að feigðarósi í málefnum útlendinga. Hún var málshefjandi í utandagskrárumræðum um niðurstöður nýrrar könnunar um viðhorf til útlendinga. 16.11.2004 00:01
Enginn samningur við Esso Forstjóri Samkeppnisstofnunar vísar því algjörlega á bug að samkomulag hafi verið gert við Essó við rannsókn samráðsmálsins. Hann segir ummæli stjórnarformanns Essó um annað, ranga. 16.11.2004 00:01
Stórt skref í átt að áframhaldi Davíð Oddsson segir stórt skref hafa verið stigið í þá átt að varnarliðið í Keflavík verði áfram hér á landi á fundi hans og Colin Powell, sem lauk í utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna fyrir stundu. 16.11.2004 00:01
Allt í lagi í stað „okey" Silja Aðalsteinsdóttir hlaut verðlaun Jónasar Hallgrímssonar í dag, á Degi íslenskrar tungu. Og Pétur Pétursson þulur færði þjóðinni gjöf í tilefni dagsins. Hann ætlar ásamt fleirum að heimsækja leikskóla og kenna börnum að segja „allt í lagi" í stað „ókei". 16.11.2004 00:01
Uppsagnir kennara Fimm af níu kennurum grunnskólans á Hólmavík hafa sagt upp störfum sem og allir fimmtán kennarar grunnskóla Fáskrúðsfjarðar. Skólastjórar skólanna segja að líta megi á uppsagnirnar sem þrýstiaðgerðir. Kennurum sé þó full alvara. 16.11.2004 00:01
Stefnt á samninga í dag Sveitarfélögin á höfðuborgarsvæðinu hafa leitað sameiginlegrar lausnar á deilu kennara og sveitarfélaganna. Sigurður Geirdal bæjarstjóri Kópavogs segir að reynt verði til þrautar að semja í dag: "Hvort tekst að semja er ekki hægt að segja til um fyrir fram. Ef ekki semst gerist ekki annað en að það verður einn dagur enn." 16.11.2004 00:01
Angólsk kona í fangelsi Angólsk kona var í Héraðsdómi Reykjaness dæmd í tveggja mánaða fangelsi fyrir þrjú skjalafalsbrot. 16.11.2004 00:01
Bruninn kostaði 73 milljónir Kvikmyndafyrirtækið Sögn var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær dæmt til að greiða Síldarvinnslunni 73,4 milljónir króna vegna bruna sem varð í frystihúsinu í Neskaupstað þegar myndin Hafið var tekin upp, í byrjun desember árið 2001. 16.11.2004 00:01
Strokufangi áfram í gæsluvarðhaldi Gæsluvarðhald yfir nítján ára pilti, sem ákærður er fyrir vopnað rán í Hringbrautarapóteki í byrjun september, hefur verið framlengt þar til dómur fellur en þó ekki lengur en til 4. janúar. Aðalmeðferð í málinu verður í lok mánaðarins. 16.11.2004 00:01
Lést eftir högg á kjálka Flemming Tolstrup, danski hermaðurinn, lést aðfaranótt laugardags af völdum heilablæðingar sem varð við högg á hægri kjálka samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum krufningar. Scott Ramsay, knattspyrnumaður í liði Keflavíkur, hefur játað að hafa veitt Flemming höggið á skemmtistaðnum Traffic í Keflavík. 16.11.2004 00:01
Tvær olíuskýrslur til Samkeppnisráð lét útbúa tvær útgáfur af olíuskýrslunni. Opinberu skýrsluna má nálgast á heimasíðu Samkeppnisstofnunar en hin útgáfan verður eingöngu afhent áfrýjunarnefnd samkeppnismála og dómstólum. 16.11.2004 00:01
Mildi að enginn lést í lestarslysi Ástralska lögreglan telur mikla mildi að enginn skyldi hafa látist þegar lest með 163 farþegum fór út af sporinu við bæinn Bundaberg um 400 kílómetra norður af Brisbane. 16.11.2004 00:01
Stefnir í verkfall hjá flugfreyjum Stærstu samtök flugfreyja og flugþjóna í Bandaríkjunum (AFA) ætla að sækja eftir verkfallsheimild meðal félagsmanna sinna. 16.11.2004 00:01
Hamas og Jihad neita vopnahléi Mahmoud Abbas, leiðtogi Frelsissamtaka Palestínu og einn líklegasti eftirmaður Arafats á forsetastóli, bað í gær herskáa Palestínumenn að hætta öllu ofbeldi þar til kosningar fara fram 9. janúar. 16.11.2004 00:01
Hassan tekin af lífi Íraskir gíslatökumenn hafa myrt Margaret Hassan, stjórnanda hjálparsamtakanna CARE, samkvæmt arabísku sjónvarpsstöðinni Al-Jazeera. Sjónvarpsstöðin sagðist í gær vera með myndbandsupptöku af morðinu undir höndum en birti hana ekki. 16.11.2004 00:01
Varnarliðið verður hér Stórt skref var stigið í þá átt að varnarliðið í Keflavík verði áfram hér á landi. Þetta sagði Davíð Oddsson utanríkisráðherra í viðtali við Ríkissjónvarpið eftir fund hans með Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í Washington í gær. 16.11.2004 00:01
Umdeilt dráp í mosku Bandaríski herinn er að rannsaka hvers vegna bandarískur hermaður skaut Íraka sem lá særður inni í mosku í Falluja. 16.11.2004 00:01
Óvissa í skólastarfinu Samninganefnd sveitarfélaga samþykkti 130 þúsund króna eingreiðslu til kennara í gær. Hugsanlegt er að börn verði send heim úr skólum í dag. Samningafundur hefur verið boðaður klukkan 10. 15.11.2004 00:01
Engin aukastörf Kennarar Grunnskólans í Borgarnesi hafa ákveðið að mæta til vinnu í dag eins og þeir höfðu verið beðnir um þó að umræddur dagur sé frídagur samkvæmt skóladagatali. Þeir hafna hins vegar allri málaleitan skólastjórnenda um aukið vinnuframlag og munu ekki taka að sér nein aukastörf meðan kjör þeirra eru óráðin. 15.11.2004 00:01
Vika nægur tími Birgir Björn Sigurjónsson, formaður samninganefndar sveitarfélaga, telur að vikufrestur eigi að vera nægur tími til að ná samningum við kennara. "Ég vil að við notum þennan frest til að reyna að leysa þetta án þess að það þurfi að koma til gerðardóms." 15.11.2004 00:01
Örvænting hjá kennurum Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, er svartsýnn á að árangur náist í kennaradeilunni í dag. "Þetta mál er komið í ákveðinn farveg. Það er grábölvað að til þessa hafi þurft að koma en ég held að engum blandist hugur um að þetta var í rauninni óhjákvæmilegt. Ég held að það hafi verið fullreynt að ná samkomulagi," segir hann. 15.11.2004 00:01
Dræmt hljóðið í gærkvöldi Kennarar trúðu á lausn en hljóðið í fulltrúum sveitarfélaga var heldur dræmara fyrir samningafundinn í gærkvöldi. Fulltrúar launanefndar sveitarfélaga og borgar- og bæjaryfirvalda bættust á fundinn rétt fyrir miðnætti en vildu þó ekki meina að lausn væri í sjónmáli. </font /></b /> 15.11.2004 00:01
Óvíst hvort kennt verði í dag Óvíst er hvort kennsla verður allstaðar með eðlilegum hætti í grunnskólum landsins í dag, þrátt fyrir að samningamenn kennara og sveitarfélaga hafi rétt fyrir miðnætti undirritað viljayfirlýsingu um samkomulag. Rétt fyrir átta var enn víða óljóst með farmvindu mála. 15.11.2004 00:01
Karlmaður stunginn í nótt Karlmaður á fertugsaldri var stunginn djúpu hnífssári í heimahúsi í Reykjavík á fimmta tímanum í nótt. Annað lunga hans féll meðal annars saman en hann gat hringt á lögreglu og var hann þegar fluttur með sjúkrabíl á Slysadeild, þar sem hann gekkst strax undir aðgerð, og verður eitthvað áfram á sjúkrahúsi. 15.11.2004 00:01
Hörð átök í Fallujah Hörð átök brutust út í borginni Fallujah í Írak í nótt. Yfirmenn herliðs Bandaríkjamanna og Íraka lýstu því yfir í gær að þeir hefðu náð borginni á sitt vald og brotið að mestu niður andstöðu. Þrátt fyrir það hundelti herlið þeirra uppreisnarmenn í Fallujah í nótt og hörðum loftárásum var haldið úti á skotmörk þar sem talið var að uppreisnarmenn haldi til. 15.11.2004 00:01
Neyðarfundur vegna árásar á Abbas Helstu leiðtogar stjórnar Palestínumanna sátu neyðarfund í Gaza í gærkvöldi í kjölfar skotárásar á Mahmoud Abbas, yfirmann PLO. Þeir lögðu eftir fundinn áherslu á að halda uppi lögum og reglum í landinu og tryggja það að óöld komist ekki á. 15.11.2004 00:01
Börnum snúið frá skólum Tugum þúsunda grunnskólanemenda var snúið frá skólum sínum víða um land þegar þeir mættu þar til náms í morgun þar sem engar tilkynningar höfðu borist frá skólum eða fræðsluyfirvöldum um að skólahald félli víðast hvar niður. 15.11.2004 00:01
Norðmenn vilja ganga í ESB 56 prósent þeirra, sem tóku afstöði í skoðanakönnunn Norska útvarpsins og Aftenposten til inngöngu í Evrópusambandið, vilja aðild, en 44 prósent eru því andvíg. Þetta er mesta fylgi við aðild til þessa og auk þess eru óákveðnir færri en áður, eða um þrettán prósent. 15.11.2004 00:01
Ætla að hætta auðgun úrans Íranir hafa gefið Sameinuðu þjóðunum skriflegt loforð um að hætta að fullu auðgun úrans. Með því er allur vafi tekinn af um hvort Íranir séu að reyna að koma sér upp kjarnavopnum. Íranir leggja áherslu á að þessi ákvörðun er tekin í því skyni að efla traust alþjóðasamfélagsins en þeir líta ekki svo á að hún sé lagalega bindandi. 15.11.2004 00:01
Snjóþekja á vegum um allt land Snjóþekja er á vegum um mest allt land og víðast hálka. Nokkuð snjóaði norðaustanlands í gær og á Akureyri í nótt, en götur þar eru þó vel færar. Ekki er vitað um alvarleg óhöpp vegna hálku í gærkvöldi og í nótt. 15.11.2004 00:01
Ekkert skólahald í mörgum skólum Erfiðlega gengur að afla upplýsinga um skólahald í grunnskólum landsins í dag vegna óánægju kennara með lagasetningu á vinnudeilu þeirra. Þó er vitað að ekki verður kennt í Hofstaðaskóla,Selásskóla, Snælandsskóla, Árbæjarskóla, Seljaskóla, Korpuskóla, Kársnesskóla, Lindarskóla, Háteigsskóla, Álftanesskóla, Smáraskóla, Langholtsskóla, Melaskóla, Salaskóla, Foldaskóla, Borgarskóla, Ingunnarskóla og grunnskólunum í Hveragerði og í Vogum. 15.11.2004 00:01
Vilja vopnasölubann frá SÞ Frakkar vilja að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna setji vopnasölubann á Fílabeinsströndina, og grípi einnig til annarra refsiaðgerða, eftir að níu franskir hermenn féllu í loftárás flughers ríkisstjórnarinnar. Frakkar brugðust við árásinni með því að sprengja allar vélar flughersins í loft upp, og varð það til þess að miklar óeirðir brutust út í landinu. 15.11.2004 00:01
Ætla að kaupa BN-bankann Íslandsbanki býðst til að kaupa öll hlutabréf í norska BN-bankanum. Tilboðið er lagt fram hálfum öðrum mánuði eftir að Íslandsbanka var veitt heimild til að kaupa Kredítbankann. 15.11.2004 00:01
Yfirmannaskipti á mánudag Yfirmannaskipti verða á flugvellinum í Kabúl á miðvikudag. Hallgrímur Sigurðsson hverfur þá frá störfum og kemur til Íslands. Hann lauk teppakaupum sínum á flugvellinum á meðan undirmenn hans lágu í sárum á sjúkrahúsi. 15.11.2004 00:01
Stór svæði í rúst Stór svæði í borginni Fallujah eru í rúst eftir harðar árásir bandarískra og íraskra hermanna sem nú hafa staðið í viku. Uppreisnarmenn í borginni veita enn mótspyrnu. 15.11.2004 00:01
Vopnuð átök í uppsiglingu Kínverskur ráðherra segir að vopnuð átök kunni að vera óumflýjanleg ef ríkisstjórn Taívans haldi áfram að ögra Kínverjum. 15.11.2004 00:01
Tugir vega lokuðust í óveðri Tugir vega lokuðust vegna skriðfalla þegar mikið óveður gekk yfir Norðvestur-Noreg um helgina. Tveggja manna er saknað og mörg byggðarlög eru einangruð. Veðrið er nú að mestu gengið niður og byrjað að ryðja vegi. 15.11.2004 00:01
Byrlað eitur? Banamein Yassers Arafats gæti hafa verið eitrun, segir fulltrúi ríkisstjórnar Palestínumanna í Frakklandi, þar sem leiðtoginn geispaði golunni. Fulltrúinn segir að í líki Arafats hafi fundist ákveðin eiturefni sem vanalega finnist ekki í veiku fólki. Þó séu engar sannanir fyrir því að eitrað hafi verið fyrir Arafat, en læknar hafi heldur ekki útilokað það. 15.11.2004 00:01
Fullkomin óvissa um framhaldið Tugum þúsunda grunnskólanemenda var snúið frá skólum sínum víða um land þegar þeir mættu þangað í morgun. Engar tilkynningar höfðu borist frá skólum eða fræðsluyfirvöldum um að skólahald félli víðast hvar niður, að hluta eða alveg. 15.11.2004 00:01
Baráttan um leikana 2012 hafin Baráttan um Olympíuleikana árið 2012 er hafin og hún kostar sitt. Þær fimm borgir sem koma til greina sem gestgjafar leikanna eru París, London, New York, Madrid og Moskva. Útlistun borganna á því hvernig þær hyggjast undirbúa og framkvæma leikanna verður skilað til Alþjóða Olympíunefndarinnar í dag. 15.11.2004 00:01