Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Nýjar myndir af Bigley Arabíska sjónvarpsstöðin Al Jazeera sýndi í dag nýja myndbandsupptöku af Bretanum Ken Bigley sem mannræningjar í Írak hafa hótað að afhöfða. Á myndbandinu endurtekur Bigley, innilokaður í búri, kröfur mannræningja um að Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, láti leysa kvenfanga í írökskum fangelsum úr haldi. 29.9.2004 00:01
Grunur um íkveikju á Blönduósi Talið er víst að rekja megi eldsvoðann á Blönduósi í fyrrakvöld til íkveikju. Þá brann fjögur þúsund fermetra iðnaðarhús við Efstubraut til grunna. Í fréttatilkynningu lögreglunnar á Blönduósi segir að rannsókn tæknideildar lögreglunnar í Reykjavík á vettvangi eldsvoðans hafi leitt í ljós rökstuddan grun um um íkveikju. 29.9.2004 00:01
Ákvörðun ráðherra kom ekki á óvart Eiríkur Tómasson, lagaprófessor og annar af hæfustu umsækjendum um stöðu dómara við Hæstarétt að mati dómara réttarins, segir að skipan Jóns Steinars Gunnlaugssonar komi honum ekki á óvart. Jón Steinar hefur samkvæmt tillögu Geirs H. Haarde, setts dómsmálaráðherra verið skipaður hæstaréttardómari frá og með 15. október næstkomandi. 29.9.2004 00:01
39 karlmenn og 2 konur Jón Steinar Gunnlaugsson er fertugasti og fyrsti einstaklingurinn sem er ráðinn dómari við Hæstarétt Íslands. Hann er jafnframt þrítugasti og níundi karlmaðurinn sem ráðinn hefur verið í dómarastöðu frá upphafi. 29.9.2004 00:01
Jón ekki einn um pólitík Skipan Jóns Steinars Gunnlaugssonar hæstaréttarlögmanns og prófessors í lögum við Háskólann í Reykjavík er ekki óvenjuleg ef einungis er borið saman við starfsferil núverandi og fyrrverandi dómara við réttinn. 29.9.2004 00:01
Opna skrifstofu í Færeyjum Samskip hafa opnað nýja skrifstofu í Þórshöfn í Færeyjum. Í fréttatilkynningu frá félaginu segir að í kjölfar þessa verði siglingaáætlunin endurskoðuð en skipið hefur siglt vikulega þangað síðan í sumar. 29.9.2004 00:01
2 mánuðir og 17 milljónir Rúmlega fimmtugur maður var dæmdur til tveggja mánaða fangelsisvistar í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag og til greiðslu rúmlega 17 milljóna króna fyrir að hafa ekki staðið skil á greiðslu virðisaukaskatts og staðgreiðslu opinberra gjalda á árunum 2001 og 2002. 29.9.2004 00:01
Netumferð minnkar um 40% Gagnaumferð á Netinu hér á landi hefur minnkað um 40% eftir aðgerð lögreglunnar og samtaka höfundarrétthafa í gær þar sem hald var lagt á tölvur og gögn í tólf húsleitum. 29.9.2004 00:01
Vissi af sviptingu Kristins Magnúsi Ólafssyni, formanni kjördæmissambands Framsóknarflokksins, var tilkynnt fyrir þingflokksfund Framsóknarflokksins í gærkvöld að til stæði að svipta Kristin H. Gunnarsson öllum nefndarsetum á vegum flokksins. Hann sagði í samtali við fréttastofu að honum hefði jafnframt verið sagt að Kristni yrði tilkynnt þessi ákvörðun fyrir fundinn. 29.9.2004 00:01
ADSL notkun hrundi Notkun á ADSL-neti Símans dróst saman um 50 til 60 prósent eftir að menn frá ríkislögreglustjóra lögðu hald á tölvur og tölvubúnað tólf einstaklinga í húsleitum í fimm lögregluumdæmum á þriðjudag. 29.9.2004 00:01
Fartölvum stolið Brotist var inn í þrjá bíla í Reykjavík í fyrrinótt og gærmorgun. Fartölvum var stolið úr tveimur bílanna, sem voru í Þingholtunum. 29.9.2004 00:01
Þarf að greiða milljóna sekt Fyrrum stjórnarformaður og framkvæmdarstjóri einkahlutafélags var í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbunið fangelsi fyrir brot á virðisaukaskattslögum. 29.9.2004 00:01
Skemmdarvargarnir ófundnir Lögreglan á Höfn í Hornafirði hefur enn ekki haft upp á skemmdarvarginum eða -vörgunum sem fóru hamförum um Byggðasafn Austur-Skaftfellinga um síðustu helgi. Hún segist vera að vinna úr vísbendingum sem borist hafa og kortleggja ferðir einstakra manna. 29.9.2004 00:01
Þekkja má tengin á skröltinu Brögð eru að því að tjaldvagnar og fellihýsi sem hér eru seld séu með röngum tengibúnaði. Hjá Umferðarstofu fengust þær upplýsingar að vitað sé til þess að umboðsaðilar hefðu fyrir mistök í einhverjum tilvikum selt hér fellihýsi með amerískum tengjum, auk þess sem einstaklingar hafi sjálfir flutt inn vagna með röngum tengjum. 29.9.2004 00:01
Til hamingju, Jón Steinar! Einn umdeildasti maður landsins hefur verið skipaður dómari við Hæstarétt. Magnús Thoroddsen segir fréttirnar ánægjulegar. Pólitísk spilling, segir Hreinn Loftsson. Hann er mikið fyrir læri með rauðkáli og grænum baunum, segir Bergþór Pálsson. </font /></b /> 29.9.2004 00:01
Lítið fór fyrir skólamjólk í gær Kjaradeila sveitarfélaga og kennara raskar hátíðahöldum í tilefni af alþjóðaskólamjólkurdeginum sem haldinn var hátíðlegur í fimmta sinn í gær. Í tilefni dagsins var boðað til teiknisamkeppni meðal fjórðubekkjarnemenda landsins. 29.9.2004 00:01
Málshöfðun í farvatninu Hjördís Hákonardóttir mun leita réttar síns af endurnýjuðum krafti, að sögn Atla Gíslasonar lögmanns sem sinnir hagsmunum Hjördísar. Sem kunnugt er var það álit kærunefndar jafnréttismála að lög hefðu verið brotin á Hjördísi þegar síðast var skipað í Hæstarétt og hefur hún átt í samningaviðræðum við dómsmálaráðuneytið um lausn þess máls. </font /></b /> 29.9.2004 00:01
Oft á öndverðum meiði Jón Steinar Gunnlaugsson hefur tjáð sig um marga dóma Hæstaréttar og gagnrýnt hann í nokkrum tilvikum. Má því ætla að sumir dóma hans hefðu fallið á annan veg ef Jón hefði klæðst svörtu skikkjunni. 29.9.2004 00:01
Var fyrirmynd að Rocky Chuck Wepner, fyrrum þungavigtarmeistari í hnefaleikum, fékk í gær staðfest lögmæti lögsóknar hans á hendur kvikmyndaleikaranum Sylvester Stallone. 29.9.2004 00:01
Tekið á stafrænum rummungum Í Bandaríkjunum er verið að herða löggjöf um höfundarréttarbrot. Stafrænn hugverkaþjófnaður er talinn vaxandi vandamál víða um heim. Spjótum er beint bæði að tölvunotendum sem skiptast á skrám og þjófum sem afrita efni til sölu. 29.9.2004 00:01
Synir og tengdasynir hólpnir Aðstoðarslökkviliðsstjóri á Keflavíkurflugvelli vísar því á bug að fjölskyldutengsl ráði um hvort menn haldi vinnunni. 17 slökkviliðsmönnum hefur verið sagt upp á tveimur mánuðum. Fjórir yfirmenn tengjast slökkviliðsmönnum fjölskylduböndum. 29.9.2004 00:01
Kárahnjúkar í netsamband Vinnubúðir Impregilo við Kárahnjúkavirkjun hafa nú verið tengdar Internetinu auk þess sem símasamband við umheiminn hefur verið bætt í kjölfar samnings fyrirtækisins við Atlassíma um rekstur samskiptamiðstöðvar fyrir starfsmenn. 29.9.2004 00:01
Arnbjörg varaformaður þingflokks Sjálfstæðismenn gera nokkrar breytingar á skipan sinna manna í nefndum Alþingis. Þar ber hæst að Guðlaugur Þór Þórðarson verður formaður umhverfisnefndar í stað Sigríðar Önnu Þórðardóttur sem hefur tekið við starfi umhverfisráðherra. Þá hefur Arnbjörg Sveinsdóttir verði kjörin varaformaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins. 29.9.2004 00:01
Bílstjórar veittu enga hjálp Margir ökumenn keyrðu framhjá konu sem lá alvarlega slösuð á akrein í Sidcup í Bretlandi án þess að koma henni til aðstoðar. Sumir ökumannanna beygðu jafnvel yfir á næstu akrein til að keyra ekki á konuna en létu alveg vera að nema staðar til að huga að henni. 29.9.2004 00:01
Aftur út í geiminn SpaceShipOne varð fyrsta geimfarið, byggt alfarið af einkaaðilum án aðkomu ríkisvaldsins, til að fljúga tvisvar út í geiminn þegar því var flogið í rúmlega hundrað kílómetra hæð yfir jörðu. 29.9.2004 00:01
Takmarkað byggingaleyfi gefið út Byggingafulltrúi gaf síðdegis í gær út takmarkað byggingarleyfi vegna framkvæmda við nýtt hótel í Eimskipafélagshúsinu. Eigendur húss í nágrenninu töldu að ráðist hefði verið í framkvæmdir, sem hófust á mánudag, í leyfisleysi. 29.9.2004 00:01
Réðist með öxi á flugmenn Litlu mátti muna að norsk farþegaflugvél færist þegar farþegi réðist á tvo flugmenn og einn farþega með exi. Flugmennirnir misstu stjórn á vélinni við árásina enda fleygði maðurinn sér yfir stjórntæki flugvélarinnar. Við það tók vélin dýfu og var aðeins þrjátíu metrum yfir haffletinum þegar flugmennirnir náðu loks að rétta hana af. 29.9.2004 00:01
Vara við Pútín Lýðræðinu í Rússlandi hefur hrakað frá því Vladimír Pútín varð forseti landsins fyrir tæpum fjórum árum segir í bréfi hundrað fræðimanna og stjórnmálamanna til vestrænna þjóðarleiðtoga þar sem þeir vara við tilraunum Pútíns til að auka völd sín. 29.9.2004 00:01
Lýst látin en andaði þó Yfirvöld í bænum Pozarevac í Serbíu voru ekkert að tvínóna við að boða ættingja hinnar 62 ára gömlu Jelenu Mladenovc á fund til að ganga frá erfðafjárskiptum. Reyndar voru þau svo snemma á ferðinni að Jelena var enn sprelllifandi þegar skipta átti eignum hennar til eftirlifandi ættingja. 29.9.2004 00:01
Bush leiðir fyrir fyrstu kappræður George W. Bush, Bandaríkjaforseti og forsetaefni repúblikana, hefur átta prósentustiga forskot á demókratann John Kerry samkvæmt nýrri skoðanakönnun Pew. Samkvæmt henni fengi Bush 48 prósent atkvæði en Kerry 40 prósent. 29.9.2004 00:01
Pettersson allur Síðasta vonin um að leysa gátuna á bak við morðið á Olof Palme, fyrrum forsætisráðherra Svíþjóðar, kann að hafa fjarað út í gær þegar Christer Pettersson andaðist á Karolinska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi. Þar hafði hann dvalið í tæpar tvær vikur eftir að hann var lagður inn með alvarlega höfuðáverka eftir að hafa dottið heima hjá sér. 29.9.2004 00:01
Evrópa verður að aðstoða "Evrópuríki verða að koma að fjármögnun og aðstoða við flutninga afrískra friðargæsluliða sem á að senda til Darfur", sagði Jan Pronk sem hefur tekið saman skýrslu um ástandið í Darfur-héraði í Súdan fyrir öryggisráð Sameinuðu þjóðanna. 29.9.2004 00:01
Lausnargjald líklega greitt Ítalar fagna því að tvær ungar konur, sem haldið var í gíslingu í Írak í þrjár vikur, eru komnar heim heilar á húfi en velta því fyrir sér hvort stjórnvöld hafi greitt mannræningjum lausnargjald til að bjarga lífi þeirra. 29.9.2004 00:01
Fann afskorið höfuð í ruslapoka Lögreglan í Helsinki hóf morðrannsókn eftir að ung stúlka sem var úti að ganga með hundinn sinn fann afskorið höfuð konu í ruslapoka. Fleiri líkamshlutar fundust í kjölfarið en aðrir hafa enn ekki fundist. 29.9.2004 00:01
Ósammála skipan hæstaréttardómara Stjórnarflokkarnir voru ósammála um skipan hæstaréttardómara og segist Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra ekki leyna þeirri skoðun sinni að það hefði styrkt Hæstarétt verulega hefði Eiríkur Tómasson verið valinn í embættið. 29.9.2004 00:01
Hæstiréttur gekk fulllangt Lagaprófessorarnir Eiríkur Tómasson og Stefán Már Stefánsson stóðu að mati Hæstaréttar öðrum umsækjendum töluvert framar að hæfni, en ráðherra segir dóminn hafa gengið fulllangt í mati sínu. 29.9.2004 00:01
Einn handtekinn í viðbót Einn maður til viðbótar var handtekinn í morgun vegna rannsóknar á umfangsmiklu smygli á fíkniefnum til landsins. Hann hefur lítið komið við sögu fíkniefnamála áður. Fjórir sitja í gæsluvarðhaldi vegna málsins hér á landi og tveir til viðbótar eru í haldi lögreglu í Hollandi. 29.9.2004 00:01
Ítalir átaldir vegna lausnargjalds Lausnargjald var greitt fyrir tvo ítalska gísla sem haldið var í Írak. Gleði ríkir á Ítalíu vegna heimkomu þeirra en ítölsk stjórnvöld eru átalin fyrir að hafa reitt lausnargjaldið af hendi. 29.9.2004 00:01
Trúnaðarbrestur orsökin Formaður Framsóknarflokksins segir að samstarfsörðugleikar og trúnaðarbrestur hafi valdið því að flokkurinn hafi ekki viljað að Kristinn H. Gunnarsson tæki sæti í þingnefndum. 29.9.2004 00:01
Flugfreyjur ráða sig ekki að nýju Þrjátíu og fjórar flugfreyjur og flugþjónar hjá Iceland Express sem var sagt upp störfum í gær ætla ekki að þiggja endurráðningu hjá Astraeus, bresku flugrekstrarfélagi. Forsvarsmenn Iceland Express buðu fólkinu endurráðningu á sambærilegum kjörum og áður en með lengri vinnuskyldu og breyttum vaktatíma. 29.9.2004 00:01
Íkveikja á Blönduósi Kveikt var í atvinnuhúsinu sem brann á Blönduósi aðfaranótt þriðjudags. Tæknideild lögreglunnar í Reykjavík rannsakaði brunarústirnar og komst að þessari niðurstöðu. Enginn er grunaður um verkið að svo stöddu og er rannsókn málsins á frumstigi. 29.9.2004 00:01
Flugfreyjurnar vinna of lítið Uppsagnir íslenskra flugfreyja hjá Iceland Express eru siðlausar og grafa undan réttindum þeirra, segir formaður Flugfreyjufélagsins. Talsmaður Iceland Express segir flugfreyjurnar vinna of lítið. 29.9.2004 00:01
Vestfirðingar sviptir áhrifum Sveinn Bernódusson, formaður Framsóknarfélagsins í Bolungarvík, segir að þingflokkur Framsóknarflokksins hafi svipt Vestfirðinga eina talsmanninum sem þeir hafi átt í þingliðinu. 29.9.2004 00:01
Grandi vill fjöregg Vopnafirðinga Þreifingar standa nú yfir milli Granda hf og Tanga hf á Vopnafirði um kaup þeirra fyrrnefndu á meirihluta í Tanga. Vopnafjarðarhreppur og heimamenn hafa nú meirihlutavald í fyrirtækinu eftir kaup á hlut Eskju hf í fyrirtækinu fyrir rúmu ári. Grandi gæti þar með verið kominn mjög nærri svokölluðu kvótaþaki. Nánar í DV í dag. 29.9.2004 00:01
Vegið að réttarkerfinu Ráðherra hefur í tvígang hunsað umsögn Hæstaréttar við skipan hæstaréttardómara. Eiríkur Tómasson telur vegið að réttarkerfinu og vill að reglum um skipan dómara verði breytt. 29.9.2004 00:01