Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Börn í dagvistun í grunnskólanum Verkfallsstjórn Kennarasambands Íslands gerir alvarlega athugasemd við fyrirhugaða notkun Súðavíkurhrepps á grunnskólanum undir dagvistun barna. Börnunum verður boðið í skólann frá átta til tólf á hádegi í verkfalli kennara.</font /> <font face="Helv"></font> 29.9.2004 00:01
Dómarar velji ekki samstarfsmenn "Hæstaréttardómarar eiga ekki að geta valið sér sína samstarfsmenn í réttinum," segir Geir H. Haarde, settur dómsmálaráðherra er skipaði Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardómara í gær. 29.9.2004 00:01
Algjör trúnaðarbrestur Algjör trúnaðarbrestur milli forystu Framsóknarflokksins og Kristins H. Gunnarssonar er ástæða þess að honum var neitað um setu í þingnefndum fyrir flokkinn. Kristinn segir að það hljóti eitthvað að vera að hjá forystu flokksins. Þessi umskipti þýða að tveir yngstu þingmennirnir taka við mikilvægum forystuhlutverkum í nefndum Alþingis. 29.9.2004 00:01
Þingflokkur sýnir tennurnar Guðni Ágústsson segir að stjórn þingflokksins hafi ekki lagt í veturinn nema að sýna tennurnar á þann hátt sem hún gerði er hún útilokaði Kristin H. Gunnarsson frá fastanefndum Alþingis. Vestfirðingar eru orðlausir og vilja að forustan útskýri fyrir þeim hvernig byggja eigi flokkinn upp á ný. </font /></b /> 29.9.2004 00:01
Þarf ekki að afsaka skipunina Geir H. Haarde, settur dómsmálaráðherra, skipaði Jón Steinar Gunnlaugsson í stöðu hæstaréttardómara í gær. Geir segist hafa ákveðið að leggja til grundvallar reynslu viðkomandi af lögmannsstörfum og málflutningi, þörf sé á því í réttinum. 29.9.2004 00:01
Segir Kristin hafa fengið viðvörun Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra segir að Kristinn hafi fengið viðvörun. Hann rekist ekki í flokknum. Framsóknarmenn segja Kristin lagðan í einelti, athæfi þingflokksins sé refsivert og aðgerðirnar harkalegar. Aðeins sé einn sannleikur í Framsókn. </font /></b /></font /></b /> 29.9.2004 00:01
Grefur undan réttinum "Ráðherrar hafa nú í tvígang virt algjörlega að vettugi álit Hæstaréttar um umsækjendur um stöðu hæstaréttardómara," segir Eiríkur Tómasson, lagaprófessor og einn umsækjenda um stöðuna. 29.9.2004 00:01
Grefur undan réttinum "Ráðherrar hafa nú í tvígang virt algjörlega að vettugi álit Hæstaréttar um umsækjendur um stöðu hæstaréttardómara," segir Eiríkur Tómasson, lagaprófessor og einn umsækjenda um stöðuna. 29.9.2004 00:01
Afsakanir sagðar ófullnægjandi Skiptar skoðanir eru meðal fulltrúa á þingi Verkamannaflokksins um hvort Tony Blair hafi gert hreint fyrir sínum dyrum varðandi Íraksmálið í ræðu sem hann hélt á þinginu í fyrradag. 29.9.2004 00:01
Samson herðir tökin í Straumi Samson, félag Björgólfsfeðga og Magnúsar Þorsteinssonar, treysti tök sín í fjármálalífinu þegar Landsbankinn og Burðarás eignuðust fjórðungs hlut í Straumi fjárfestingarbanka. Samhliða varð Straumur stærsti einstaki hluthafinn í Íslandsbanka. 29.9.2004 00:01
Jón ákærður Ríkissaksóknari hefur ákært Jón Ó. Ragnarsson fyrrverandi framkvæmdastjóra Lykilhótela fyrir að hafa veðsett Hótel Valhöll vegna láns upp á 37 milljónir króna, sem hann tók hjá Framkvæmdasjóði Íslands, en var ótengt rekstrinum í Valhöll. Hann er sakaður um að hafa misnotað aðstöðu sína og að hafa notað lánið til að greiða upp gjaldfallnar skuldir, ótengdum Valhöll. 28.9.2004 00:01
Strandaglóparnir heim í dag Um það bil 150 farþegar Osloarvélar Icelandair, sem urðu strandaglópar í Noregi í gær, vegna verkfalls flugumferðarstjóra í Suður Noregi, komast væntanelga heim fyrir hádegi. Vélin lenti í Bergen í gær, þar sem flugumferð í Oslo var komin í hnút og að sögn farþega áttu þeir í mesta basli við að fá nánari upplýsingar um framhaldið hjá flugfélaginu. 28.9.2004 00:01
Mikill bruni á Blönduósi Tugmilljóna tjón varð í stórbruna á Blönduósi í nótt þegar stærsta hús á staðnum brann að stórum hluta. Slökkviliðinu á Blönduósi, Skagaströnd og Hvammstanga, sem kölluð voru til aðstoðar tókst um klukkan sjö að ráða niðurlögum eldsins, en áfram er verið að slökkva í glæðum. 28.9.2004 00:01
Bush með 8% forskot Munurinn á fylgi George W. Bush og John Kerrys er nú átta prósent samkvæmt nýjustu könnunum, þegar aðeins um mánuður er í forsetakosningarnar. Bush, Bandaríkjaforseti hefur 52% fylgi samkvæmt nýrri könnun CNN en Kerry er með 44% fylgi. Ralp Nader hefur hins vegar 3% fylgi. 28.9.2004 00:01
Ekkert lát á olíuhækkun Verðið á olíumarkaði í New York er nú það hæsta í 21 ár eða frá því viðskipti á þeim markaði hófust. Verðið á olíufatinu komst upp í 50 dollara og 35 sent í morgun. Þessa hækkun núna á olíumarkaði má að mestu rekja til átaka á milli uppreisnarmanna í Nígeríu og stjórnvalda. 28.9.2004 00:01
Afkoma kúabænda á niðurleið Afkoma kúabænda var heldur lakari á síðasta ári en árið 2002. Hagnaður fyrir laun eiganda sem var tæplega 2 milljónir króna á árinu 2002 lækkaði í tæplega 1,9 milljónir króna árið 2003 eða um 5%. Ástæðan er fyrst og fremst sú að meðalafurðir drógust saman um sem nemur 3.000 lítrum mjólkur á bú. 28.9.2004 00:01
Tveir breskir hermenn drepnir Tveir breskir hermenn létu lífið í Basra í morgun, í árásum uppreisnarmanna. Uppreisnarmennirnir skutu á Land Rover jeppa hermannanna með þeim afleiðingum að þeir særðust og létust síðar af sárum sínum á sjúkrahúsi. Þar með hafa 25 breskir hermenn látið lífið í bardögum í Írak. 28.9.2004 00:01
Ekkert vitað um starfsmann CNN Ekkert er vitað um örlög fréttaframleiðanda frá fréttastöðinni CNN sem rænt var á Gasa-ströndinni í gær. Palestínskar öryggissveitir leita mannsins sem byssumenn rændu aðeins nokkrum klukkustundum eftir að hann kom til Gasa. 28.9.2004 00:01
Rannsókn miðar vel Rannsókn á innbroti og skemmdarverkum í Byggðasafni Austur-Skaftfellinga um helgina miðar vel að sögn lögreglunnar á Höfn. Enginn hefur þó enn verið handtekinn, að sögn lögreglu, þótt rannsóknin teljist í góðum farvegi. Að öðru leiti vill hún ekki tjá sig að svo stöddu. 28.9.2004 00:01
Fuglaflensa smitast milli manna Flugflensa er talin hafa smitast á milli manna á Tælandi nýlega. Tilvikið hefur valdið felmtri í landinu enda væri slíkt smit til marks um breytingar á sjúkdómnum, sem hingað til hefur einungis smitast úr fiðurfé. 28.9.2004 00:01
Ekki vitað um eldsupptökin Enn er allt á huldu um eldsuptök í stórhýsinu sem eyðilagðist í eldsvoða á Blönduósi í nótt. Það sem enn stendur uppi af rústunum, verður rifið niður. Tugmilljóna tjón varð í brunanum þegar húsið, sem er stærsta húsið á staðnum brann að stórum hluta. 28.9.2004 00:01
ETA með hótanir Aðskilnaðarsamtökin ETA ætla að halda áfram hryðjuverkum til þess að berjast fyrir sjálfstæði sínu. Þrír grímuklæddir skæruliðar frá hreyfingunni tilkynntu þetta á myndbandsupptöku sem barst dagblaði í Baskalandi í gær. Að sögn Baskanna í ETA snýst baráttan um að verja rétt Baska til þess að ráða eigin örlögum. 28.9.2004 00:01
Stefán ráðinn fjármálastjóri Baugs Stefán Hilmarsson endurskoðandi hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjármálasviðs Baugs Group. Gunnar Sigurðsson sem verið hefur fjármálastjóri félagsins hefur tekið við stöðu framkvæmdastjóra erlendra fjárfestinga, með aðsetur í London. 28.9.2004 00:01
Tónlistarkennarar lýsa stuðningi Tónlistarskólakennarar hafa lýst yfir stuðningi við kjarabaráttu grunnskólakennara. Á svæðisþingi tónlistarskóla á Suðurlandi, Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu, sem haldið var í Reykjavík 24. september sl., var eindregnum stuðningi við launakröfur grunnskólakennara lýst yfir. 28.9.2004 00:01
Sekt fyrir brottkast Héraðsdómur Vesturlands dæmdi í gær útgerðarmann og skipstjóra til greiðslu einnar milljónar króna sektar hvorn fyrir brottkast. Í einni veiðiferð köstuðu þeir fimm og hálfu tonni af þorski aftur í hafið. 28.9.2004 00:01
Fuglaflensa berst milli manna Fuglaflensa er talin hafa smitast á milli manna á Tælandi nýlega og valdið dauða konu. Tilvikið hefur valdið felmtri í landinu enda væri slíkt smit til marks um breytingar á sjúkdómnum, sem hingað til hefur einungis smitast úr fiðurfé. 28.9.2004 00:01
Strandaglóparnir komnir heim Vél Icelandair, sem varð innlyksa í Noregi í gær, lenti í Keflavík á tólfta tímanum. Önnur vél fór til Óslóar í morgun, en ekki er ljóst hvort hún tefst, þar sem enn er mikil óreiða á Gardemoenflugvelli. 28.9.2004 00:01
Áratugur frá því Estonia sökk Áratugur er í dag liðinn frá farþegaferjan Estonia fórst á Eystrasalti, og enn liggur ekki fyrir hvers vegna. Eftirlifendur krefjast rannsóknar, en yfirvöld í Svíþjóð eru mótfallnir því að kafarar kanni flakið. 28.9.2004 00:01
Hátt verð á olíu hefur áhrif víða Aldrei í sögunni hefur olíuverð verið hærra en nú. Það fór yfir fimmtíu dollara á fatið á markaði í New York. Áhrifanna gætir hér á landi. 28.9.2004 00:01
Sveitastjórnarmenn í málið Kennarar telja að sveitarstjórnarmenn geri sér ekki alveg grein fyrir kröfum grunnskólakennara og skýli sér um of á bak við samninganefnd sveitarfélaganna. Þeir telja að sveitarstjórnarmenn gætu liðkað fyrir lausn verkfallsins. 28.9.2004 00:01
Deilur útgerðarmanna og sjómanna Það er víða hart deilt vegna kjaramála. Sjómenn eru með lausa samninga og reyna að semja við útgerðarmenn, en þeir hafa ekki samið með hefðbundnum hætti í meira en áratug. Útgerðarmenn segja samninga sjómanna tuttugu árum á eftir en sjómenn saka tiltekna útgerðarmenn á móti um að virða réttindi þeirra að vettugi. 28.9.2004 00:01
Minnihlutinn vill úrskurð Minnihluti bæjarstjórnar í Vestmannaeyjum hefur óskað eftir því við félagsmálaráðuneytið að það úrskurði um lögmæti frestunar bæjarstjórnarfundar þann 16. þessa mánaðar og um lögmæti afgreiðslu miðnæturfundar, sem haldinn var að kvöldi sama dags. 28.9.2004 00:01
Þjónusta lá niðri í 3 tíma Þjónusta Reiknistofu bankanna við hraðbanka, heimilisbanka og þjónustusíma lá niðri þrjár klukkstundir í gær. Að sögn Helga Steingrímssonar forstjóra Reiknistofunnar varð bilun í diskakerfi fyrirtækisins. Hann segir að búið sé að lagfæra bilunina og allt sé nú eins og það á að vera. 28.9.2004 00:01
Rándýrum demöntum stolið Tveimur demöntum að andvirði nálægt eins milljarðs króna var stolið af forngripasýningu í París í gær. Ræningjarnir létu til skarar skríða þegar öryggisvörður brá sér frá og hirtu demantana tvo, en hvor þeirra um sig er hátt í 500 milljón króna virði. 28.9.2004 00:01
Frakkar myndu hafna Tyrkjum Skoðanakannanir í Frakklandi benda til þess að almenningur þar í landi myndi hafna aðild Tyrklands að ESB. 56% Frakka eru á móti inngöngu Tyrkja í Evrópusambandið nú, en 63% gætu hugsað sér að Tyrkir fengju inngöngu ef mannrættindi yrðu bætt í landinu og refsilöggjöfin endurnýjuð. 28.9.2004 00:01
Spænskir guðsmenn ósáttir Rómversk-Kaþólska kirkjan á Spáni hefur gagnrýnt fyrirætlanir ríkisstjórnar Spánar um að lögleiða hjónabönd samkynhneigðra. Búist er við að hjónabönd samkynhneigðra verði lögleidd á Spáni strax á næsta ári, nokkuð sem fellur kirkjunnar mönnum vægast sagt illa í geð. 28.9.2004 00:01
Ummæli Bush standast ekki Í morgun voru tveir breskir hermenn drepnir af skæruliðum í Írak. Þar með hafa 25 Breskir hermenn látið lífið í bardögum í Írak og þar af 17 síðan George Bush lýsti því yfir í maí 2003 að átökum í landinu væri að mestu lokið. 28.9.2004 00:01
Vargöld á Haiti Vargöld er á Haítí eftir flóð og fellibylinn Jeanne. Friðargæsluliðar þar ráða ekkert við æstan múg sem ræðst á þá og slæst um matarpakka sem dreift er til bágstaddra. Yfirmaður friðargæslusveitanna segir þörf á helmingi fleiri friðargæsluliðum. Þeir hafa þurft að skjóta upp í loft til að bægja fólki frá flutningabílum með hjálpargögn, og óeirðir hafa ítrekað brotist út þar sem fólk bíður þess að fá matvæli og hreint drykkjarvatn, en mikill skortur er á hvortveggja. 28.9.2004 00:01
Hákarl á grunnsævi í Massachusetts Skarar fólks hafa flykkst til að skoða hvítháf sem svamlar um í grunnsævi í Massachusetts. Hákarlinn er heilir fimm metrar á lengd og talinn vega heilt tonn. Vísindamenn vita ekki hvað hákarlinn er að flækjast við strendur Massachusetts, en vona að hann syndi á brott á næsta fulla tungli. 28.9.2004 00:01
Blair truflaður Tony Blair hafði varla hafið ræðu sína á flokksþingi Verkamannaflokksins í Brighton, þegar mótmælendur stríðsins í Írak hófu hróp úr salnum. Meðal þess sem var hrópað að Blair var að hendur hans væru blóðugar. Blair brást hinn spakasti við og svaraði: „Þú hefur þinn rétt til að mótmæla herra minn, þökkum fyrir það að við búum í lýðræðisríki og þú hafir þennan rétt." 28.9.2004 00:01
Mannfall íraskra borgara mikið Bandaríska hernámsliðið í Írak reynir nú að knésetja uppreisnarmenn víða um landið en búast má við að saklaust fólk verði sem fyrr illa úti í þeim átökum. Engar opinberar tölur liggja fyrir um mannfall óbreyttra borgara síðan ráðist var inn í landið í fyrra en talið er að minnsta kosti tíu þúsund manns hafi látið lífið. 28.9.2004 00:01
Stöð samkynhneigðra í Frakklandi Íþróttafréttamaðurinn er kynskiptingur í pilsi, og á hverju kvöldi klukkan sjö er þáttur um undrakonuna Wonder Woman. Seinna um kvöldið er svo boðið upp á töluvert djarfara efni fyrir homma, lesbíur og tvíkynhneigða. Þetta er grunnurinn að dagskrá Pink TV, fyrstu sjónvarpsstöðvarinnar sem ætluð er samkynhneigðum í Frakklandi. 28.9.2004 00:01
120 lögmenn styðja Jón Steinar Listi með 120 nöfnum þeirra lögmanna sem vilja að Geir H. Haarde virði umsögn Hæstaréttar um val á dómara við réttinn að vettugi og taki sjálfstæða ákvörðun um ráðninguna var afhentur ráðherranum í gær. 28.9.2004 00:01
Vald ráðherra mikið við dómaraval Fyrirkomulag við skipan dómara í hæstarétt er margvíslegt í nágrannalöndunum. Samanburðurinn er flókinn en þó verður ekki betur séð en að ráðherra hafi meira vald hér á landi en tíðkast annars staðar. </font /></b /> 28.9.2004 00:01
Miðausturlönd í forgang Tony Blair segir að friðarviðræður í Mið-Austurlöndum verði settar í forgang eftir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum í nóvember. Blair segir að langvarandi friður á milli Ísrael og Palestínu myndi hafa meiri áhrif í baráttunni við hryðjuverk en byssur einar og sér geti nokkru sinni haft. 28.9.2004 00:01