Erlent

Börn getin til varahluta?

Yfirvöld í Bretlandi ætla að slaka á reglum varðandi það að fólki verði leyft að geta börn í þeirri von að líkamsvefir úr fóstrinu geti hjálpað veiku systkini. Hingað til hefur aðeins verið leyfilegt að skoða fósturvísa til að athuga hvort um erfðagalla sé að ræða hjá fóstrinu. Vegna máls ungabarnsins Önnu Rowbotham, sem þjáist af blóðsjúkdómi sem gæti dregið hana til dauða, var ákveðið í gær að foreldrum hennar verði leyft að geta barn í þeim tilgangi að bjarga lífi Önnu og að fósturvísar nýja barnsins verði rannsakaðir vegna þessa. Lögfræðingar segja þessa breytingu gefa foreldrum dauðvona barna nýja von á meðan andstæðingar þessa óttast að þetta leiði til framleiðslu á börnum til varahluta. Myndin er úr myndasafni og tengist ekki efni fréttarinnar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×