Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Enginn þrýstingur vegna hvalveiða Bandaríska viðskiptaráðuneytið telur Íslendinga grafa undan verndarstefnu Alþjóða hvalveiðiráðsins með hvalveiðum í vísindaskyni. Bandarísk stjórnvöld ætla ekki að beita Íslendinga pólitískum þrýstingi til að fá þá ofan af því að veiða hvali. 23.6.2004 00:01
Rafstöð frá Heklu vegna tónleika Nú er allt að verða klárt fyrir tónleika Deep Purple hér á landi, í kvöld og annað kvöld. Heilmikill búnaður fylgir hljómsveit sem þessari og í mörg horn að líta. Eins og margir muna enduðu tónleikar hljómsveitarinnar hér fyrir 33 árum fremur snubbótt þegar rafmagnið fór af Laugardalshöll. 23.6.2004 00:01
Eruð þið ekki með eyru spyr Baldur "Þarf ég að skutla ykkur heim? Eruð þið ekki með eyru? Ég vil ekki tala við ykkur," sagði Baldur Ágústsson forsetaframbjóðandi afundinn við útsendara DV þegar þeir hugðust fylgjast með Baldri í heimsókn í sjónvarpsþættinum 70 mínútur. 23.6.2004 00:01
Árni Þór og Kristján áfrýja Sveinbjörn Kristjánsson hefur ekki ákveðið hvort hann uni dómi Héraðsdóms, en Árni Þór Vigfússon og Kristján Ragnar Kristjánsson hafa báðir ákveðið að áfrýja til Hæstaréttar. Auður Harpa Andrésdóttir, eini sakborningurinn sem var sýknaður, segir þessi málalok mikinn létti. 23.6.2004 00:01
Magalenti á Siglufjarðarflugvelli Dornier flugvél Íslandsflugs, TF-ELH, með tvo flugmenn innanborðs magalenti á flugvellinum á Siglufirði í kvöld. Mennina sakaði ekki. 23.6.2004 00:01
Hótaði að myrða mig segir tengdó "Hann hótaði mér morði, og litla barnabarni mínu mánaðargömlu líka," segir María G. Andrésdóttir, tengdamóðir Fannars Magga Birgissonar, sem stendur nágrannastríði í Jórufelli 12. 23.6.2004 00:01
Bretarnir í Íran fá frelsi Átta breskum sjóliðum, sem haldið hefur verið föngnum í Íran síðan á mánudag, verður sleppt í dag eða á morgun. Yfirvöld í Íran hættu við að sækja mennina til saka fyrir að fara inn í íranska landhelgi eftir að ljóst var að þeir höfðu einfaldlega villst. 23.6.2004 00:01
Framlengja samstarfssamning Össur hf. og Íþróttasamband Fatlaðra (ÍF) hafa framlengt samstarfssamning sinn sem er til fjögurra ára. Um er að ræða fjárhagslegan styrk sem er ætlaður til styrktar ÍF meðal annars við undirbúning og þátttöku á Ólympíumóti fatlaðra í Peking 2008. 23.6.2004 00:01
Veitir 200 manns atvinnu Bandaríski stálpípuframleiðandinn IPT hefur tilkynnt bæjaryfirvöldum í Reykjanesbæ að fyrirtækið sé á lokastigum í samningum við stóran evrópskan banka um að leiða lánsfjármögnun stálpípuverksmiðju í Helguvík. Um verður að ræða atvinnu fyrir nær 200 manns. 23.6.2004 00:01
Aftaka fordæmd Þjóðarleiðtogar víðs vegar um heiminn fordæmdu í gær morðið á suður-kóreska gíslinum Kim Sun-il í Írak. Stjórnvöld í Japan og Ástralíu, sem staðið hafa við bak Bandaríkjamanna síðan ráðist var inn í Írak, hrósuðu suður-kóreskum stjórnvöldum fyrir að neita að mæta kröfum mannræningjanna um að hætta yrði við fyrirhugaðan flutning hersveita til Íraks. 23.6.2004 00:01
Sleppt úr haldi Átta breskum sjóliðum, sem voru í haldi íranskra stjórnvalda, var sleppt í gær. 23.6.2004 00:01
Tekinn með hass Karlmaður á átjánda ári var handtekinn af lögreglunni á Ísafirði með tæplega 60 grömm af kannabisefnum í gærmorgun. Hann var að koma með áætlunarvél frá Reykjavík. 23.6.2004 00:01
Forsætisráðherra hótað Hótað hefur verið að ráða forsætisráðherra bráðabirgðastjórnar Íraka af dögum. Þetta kom fram á upptöku sem talin er koma frá vígamanninum Abu Musab al-Zarkawi sem hefur tengsl við al-Kaída hryðjuverkasamtökin. 23.6.2004 00:01
Miskunnarlaust vísað úr landi Hundruðum erlendra starfsmanna sem eru á löglegan hátt í Ísrael og hafa alla tilskilda pappíra og leyfi er vísað frá landinu á hverju ári með upplognum ástæðum starfsmanna útlendingaeftirlits landsins. Þetta kemur fram í máli Dekel Muskato, sem þangað til nýverið var yfirmaður útlendingaeftirlitsins og háttsettur lögreglumaður. 23.6.2004 00:01
Framkvæmdir hefjast í haust Bæjarráð Fjarðabyggðar hefur samþykkt að sveitarfélagið greiði fimmtán prósent kostnaðar við uppbyggingu hjúkrunardeildar Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað. Búist er við að framkvæmdir hefjist í haust og taki um tvö ár. 23.6.2004 00:01
Fimmtungur ætlar að skila auðu Fimmtungur kjósenda ætlar að skila auðu í forsetakosningunum næstkomandi laugardag samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins í dag. Níu af hverjum tíu þeirra sem taka afstöðu ætla að kjósa Ólaf Ragnar Grímsson. Ungar sjálfstæðiskonur hvetja kjósendur til að skila auðu. 23.6.2004 00:01
Ferðalög út í geim Í kjölfar ferðar Geimflaugar eitt (SpaceShipOne) út í geiminn á mánudaginn hafa vaknað spurningar um það hvort flogið verði með ferðamenn þangað innan fárra ára. Burt Rutan, sem hannaði Geimflaug eitt, hefur efasemdir um að það gerist á allra næstu árum. 23.6.2004 00:01
Vilja aðstöðu fyrir hjólabretti Tveir hjólabrettadrengir, þeir Birkir Kristján Guðmundsson og Daníel Kristjánsson, gengu á fund bæjarstjórans á Seltjarnarnesi á dögunum og afhentu honum undirskriftalista til stuðnings hugmynd þeirra um hjólabrettasvæði á Seltjarnarnesi. 23.6.2004 00:01
Fannst við rætur Heklu Belgísk kona sem saknað hafði verið frá því á þriðjudagskvöld fannst heil á húfi snemma í gærmorgun við rætur Heklu. 23.6.2004 00:01
Allir nýnemar fá skólavist Fjöldi grunnskólanemenda sem sótti um framhaldsskólavist næsta vetur kom menntamálaráðuneytinu í opna skjöldu. Allt að 98% árgangsins sótti um sem er meiri ásókn en búist var við. Samkvæmt tölum hagstofunnar er það um 5-7% aukning frá árinu 2002, auk þess sem tæplega 500 fleiri skipa þennan árgang en þann síðasta. 23.6.2004 00:01
Létti við dómsorðið "Það var ótrúlegur léttir að heyra dómsorðið. Ég vissi að ég hafði ekki gert neitt rangt og það var léttir að dómurinn hafi séð það líka," segir Auður Harpa Andrésdóttir, sem var sýknuð af ákæru á hendur henni í Landssímamálinu, í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær, og verða málsvarnarlaun verjanda hennar greidd úr ríkissjóði. 23.6.2004 00:01
Lægri vextir á nýjum íbúðabréfum Lægri vextir og frjálsara val þegar kemur að greiðslutíma lána eru meðal kosta nýrra íbúðabréfa Íbúðalánasjóðs sem taka við að húsbréfunum um næstu mánaðamót. 23.6.2004 00:01
Fjögurra og hálfs árs fangelsi Sveinbjörn Kristjánsson, fyrrum aðalféhirðir Landssímans, var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir um 261 milljónar króna frádrátt í starfi. 23.6.2004 00:01
Dómurinn einsdæmi Þetta er þungur dómur og sá þyngsti sem kveðinn hefur verið upp í auðgunarbrotamáli fram að þessu. Fjögurra og hálfs árs fangelsi er einsdæmi," segir Jón H. Snorrason, yfirmaður efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra og saksóknari í Landssímamálinu. 23.6.2004 00:01
Ólafur getur vel við unað Steingrímur Hermannsson, fyrrverandi forsætisráðherra, telur það ekki vera áhyggjuefni fyrir Ólaf Ragnar Grímsson þótt hlutfall auðra seðla verði hátt í forsetakosningunum á laugardaginn kemur. 23.6.2004 00:01
Ráðherrar á faraldsfæti Níu af tólf ráðherrum ríkisstjórnarinnar eru erlendis eða á leið til útlanda fyrir helgina. Ráðherrar fara auðvitað í sín sumarfrí einsog aðrir landsmenn en óvenju margir eru fjarverandi þessa dagana. 23.6.2004 00:01
Blessun yfir samruna "Þetta kemur okkur ekki á óvart í sjálfu sér, en við erum þó mjög ánægðir með þessa niðurstöðu," sagði Skarphéðinn Berg Steinarsson, stjórnarformaður Norðurljósa, um þá niðurstöðu samkeppnisráðs, að ekki sé ástæða til íhlutunar vegna hugsanlegra samsteypuáhrifa af samruna Fréttar við Norðurljós. 23.6.2004 00:01
Enn margir á biðlista Tæplega 150 unglingar eru enn á skrá eftir atvinnu hjá Vinnumiðlun ungs fólks í Reykjavík þrátt fyrir að langt sé liðið á sumar en alls sóttu rúmlega 2.700 unglingar um í vor. 23.6.2004 00:01
Fasteignamat hækkar um milljónir Fasteignamat íbúða og íbúðalóða í Fjarðabyggð mun hækka um 25% frá og með 1. september næstkomandi, um tæpa tvo milljarða króna. Þetta er niðurstaða endurmats sem Fasteignamat ríkisins hefur gert og byggist á kaupsamningum síðustu missera í sveitarfélaginu. 23.6.2004 00:01
Þyngsti dómur í fjársvikamáli "Þetta er þungur dómur og sá þyngsti sem kveðinn hefur verið upp í auðgunarbrotamáli fram að þessu. Fjögurra og hálfs árs fangelsi er einsdæmi," segir Jón H. Snorrason, yfirmaður efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra og saksóknari í Landssímamálinu. 23.6.2004 00:01
Ákvörðun um skólagjöld pólitísk Deildarforsetar við Háskóla Íslands segja skólann ekki hafa fjármagn til að kenna öllum þeim nemendum sem sækja nám við skólann. Eigi að setja skólagjöld við Háskólann sé það hins vegar pólitísk ákvörðun og ekki rétt að þvinga skólann til að eiga frumkvæði að slíkri gjaldtöku. 23.6.2004 00:01
Húsfyllir á tónleikum Deep Purple Mikill mannfjöldi sótti tónleika hljómsveitarinnar Deep Purple í Laugardalshöll í kvöld og varð lögregla vör við talsverða ölvun á svæðinu enda var selt áfengi á tónleikunum. Gerðu gestir góðan róm að gömlu hetjunum sem flestir eru komnir vel yfir miðjan aldur en tóku engu að síður góða spretti á sviðinu. 23.6.2004 00:01
Upplausnarástand fyrir valdaafsal Fjórir bandarískir landgönguliðar voru felldir í launsátri í borginni Ramadi vestur af Bagdad í Írak í gær og einn hermaður féll í sprengjuárás í höfuðborginni. 22.6.2004 00:01
Kvæntir menn með hærri laun Kvæntir menn í Bandaríkjunum eru með um ellefu prósent hærri laun en þeir sem ekki eru kvæntir að því er fram kemur í Sjónarhóli tímariti KPMG. 22.6.2004 00:01
Of snemmt að afskrifa loðnuna "Það er allt of snemmt að afskrifa loðnustofninn í ár, það eru engar sérstakar breytingar sem gefa í skyn að eitthvað annað hafi gerst í ár en gerðist með árganginn í hitteðfyrra," segir Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræðingur hjá Hafrannsóknarstofnuninni. 22.6.2004 00:01
Óvíst að matarverð myndi lækka "Þegar reiknaður er út svokallaður markaðsstuðningur OECD má ekki draga þá ályktun að þessi sparnaður skilaði sér í matarinnkaupum fólks á Íslandi ef landið yrði opnað upp á gátt fyrir erlendum innflutningi og styrkjum til bænda hætt," segir Sigurgeir Þorgeirsson, framkvæmdastjóri Bændasamtakanna. 22.6.2004 00:01
35 þúsund kjósa í fyrsta sinn Hagstofan hefur gefið út kjörskrárstofn vegna forsetakjörsins næstkomandi laugardag. Alls eru 213.553 kjósendur á kjörskrá samkvæmt stofninum, 107.119 konur og 106.434 karlar. Sveitarfélög semja endanlega kjörskrá upp úr kjörskrárstofni Hagstofunnar. 22.6.2004 00:01
Þurfa að viðhalda kosningarétti Íslendingar búsettir erlendis halda kosningarétti sínum í átta ár, en eftir það þarf að viðhalda honum með því að skrá sig sérstaklega á kjörskrá og gildir skráningin í fjögur ár. 22.6.2004 00:01
Hlýjast í gær Hitinn náði 20,3 gráðum í Reykjavík í gær sem er hæsti hiti í borginni í tvö ár. 22.6.2004 00:01
Ekki síðustu ótíðindin Um tuttugu manns verður sagt upp um mánaðarmótin hjá Varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli. Þeir bætast í hóp þeirra 126 sem sagt hefur verið upp frá 1. október vegna hagræðingar í rekstri Bandaríkjaflota. 22.6.2004 00:01
Segir nei við Sharon Verkamannaflokkurinn hefur sent minnihlutastjórn Ariel Sharon viðvörun um að ekki sé hægt að stóla á stuðning þeirra. Vantrauststillaga á ríkisstjórnina var naumlega felld með 55 atkvæðum gegn 50. 22.6.2004 00:01
Bætist í hóp tilnefndra Bertie Ahern, forsætisráðherra Írlands, og Jean-Claude Juncker, forsætisráðherra Lúxemborgar, bættust í gær í hóp þeirra manna sem eru orðaðir við forsetaembætti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. 22.6.2004 00:01
Ævilangt fangelsi "Þessi maður er siðblindur og ráðskast með fólk af fullu samviskuleysi og það mun aldrei breytast," sagði Michel Bourlet, saksóknari í málinu gegn barnaníðingnum og morðingjanum Marc Dutroux. 22.6.2004 00:01
Stækkun ESB til umræðu Geir H. Haarde, fjármálaráðherra, sat leiðtogafund Eystrasaltsráðsins í Laulasmaa í Eistlandi í gær af hálfu Íslands í fjarveru Davíðs Oddssonar, forsætisráðherra. 22.6.2004 00:01
Hitnar í kolunum Stjórnvöld í Kongó hafa stefnt 5.000 hermönnum til landamærahéraðanna í austurhluta landsins. Stjórnvöld segja þetta gert til að halda aftur af fyrrum uppreisnarmönnum sem eru farnir að láta á sér kræla á nýjan leik en í Rúanda óttast menn að liðsflutningarnir kunni að vera fyrirboði innrásar. 22.6.2004 00:01