Árni Þór og Kristján áfrýja 23. júní 2004 00:01
Sveinbjörn Kristjánsson hefur ekki ákveðið hvort hann uni dómi Héraðsdóms, en Árni Þór Vigfússon og Kristján Ragnar Kristjánsson hafa báðir ákveðið að áfrýja til Hæstaréttar. Auður Harpa Andrésdóttir, eini sakborningurinn sem var sýknaður, segir þessi málalok mikinn létti. Þeir þrír sakborninga sem fá þyngstan dóm voru ekki viðstaddir þegar dómur var kveðinn upp og vildu ekki tjá sig um hann í dag. Helgi Jóhannesson, verjandi Sveinbjörns Kristjánssonar, er í sumarfríi erlendis og hafði ekki séð dóminn nú rétt fyrir fréttir. Í samtali við fréttastofu sagðist hann því ekki þekkja forsendur dómsins eða hvernig hann er röskstuddur. Af þeim sökum sagðist Helgi hvorki geta tjáð sig um þyngd dómsins né hvort honum verði áfrýjað. Hann hafði þó rætt málið við Sveinbjörn en þeir ekki tekið neina ákvörðun. Ásgeir Þór Árnason, verjandi Kristjáns Ragnars Kristjánssonar, segist hafa orðið undrandi á dómnum enda séu bæði Kristján og Árni Þór Vigfússon saklausir af öllum ákærum. Málinu sé alls ekki lokið heldur muni niðurstaða fást í Hæstarétti. Gestur Jónsson, verjandi Árna Þórs, segir dóminn byggðan á afar vafasömum forsendum og rökstuðningur fyrir honum gangi ekki upp. Í yfirlýsingu frá þeim segir að Árni Þór uni ekki dóminum og telji rökstuðning fyrir sakfellingunni ekki standast. Hann hafi því ákveðið að áfrýja til Hæstaréttar. Sigmundur Hannesson, verjandi Ragnars Orra Benediktssonar, sagði í samtali við fréttastofu að dómurinn hafi komið þeim algjörlega í opna skjöldu enda hefði Ragnar Orri lýst yfir sýknu og Sigmundur krafist þess fyrir dómi með sannfærandi rökum. Þeir hafi þó ekki ákveðið hvort dómnum verði áfrýjað. Einn sakborninganna fimm var sýknaður í dag, eins og fram kom hér áðan. Auður Harpa Andrésdóttir segir að þungu fargi sé af henni létt og réttlætið hafi sigrað að lokum. Hún segir málinu algjörlega lokið af sinni hálfu og að hún ætli „að fara að lifa lífinu aftur“. Þetta sé búið að taka heilt ár af ævi sinni og þó hún hafi vitað að hún væri saklaus, þá hafi valdið verið hjá dómsvöldum. Auður Harpa segist vera þakklát öllum þeim sem stóðu við bakið á henni meðan á málinu stóð.
Fréttir Innlent Mest lesið Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Fleiri fréttir „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Sjá meira