Fleiri fréttir

Félag bókagerðarmanna samþykkir

Félag bókagerðarmanna hefur samþykkt nýja kjarasamninga við Samtök atvinnulífsins, samkvæmt talningu atkvæða í gærkvöld. Tæplega tólf hundruð voru á kjörskrá en aðeins um það bil fjórðungur greiddi atkvæði. Af þeim var yfirgnæfandi meirihluti fylgjandi samningnum.

Dómur fallinn í Landssímamálinu

Dómur féll í Landssímamálinu svokallaða í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan 14. Sveinbjörn Kristjánsson, fyrrverandi aðalgjaldkeri Landssímans og höfuðpaurinn í málinu, var dæmdur í óskilorðsbundið fjögurra og hálfs árs fangelsi.

Stálpípuverksmiðja í Helguvík

Gert er ráð fyrir að hafist verði handa við byggingu stálpípuverksmiðju í Helguvík innan fjögurra til fimm mánaða. Bandaríski stálpípuframleiðandinn International Pipe and tube er á lokastigum fjármögnunar vegna byggingar verksmiðjunnar.

Sýning tileinkuð íslenska hestinum

Ljósmynda- og minjasýning, tileinkuð íslenska hestinum, verður opnuð á Hellu á morgun. Myndirnar eru úr bókinni Íslenski hesturinn, stærsta yfirlitsriti sem út hefur komið um íslenska hestinn.

Árni Þór áfrýjar dómnum

Árni Þór Vigfússon, fyrrverandi sjónvarpsstjóri Skjás Eins, mun áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í Landssímamálinu svokallaða sem kveðinn var upp síðdegis, að sögn lögmanns hans, Gests Jónssonar.

Kaldaljós fær verðlaun í Slóvakíu

Hilmar Oddsson hlaut aðalverðlaun kvikmyndahátíðarinnar Art Film Festival fyrir bestu leikstjórn fyrir kvikmyndina Kaldaljós í Slóvakíu í gærkvöld.

Hrefnuskip bönnuð í Grundarfirði

Hafnarstjórn Grundarfjarðar hefur bannað komu hrefnuveiðiskipa til Grundarfjarðar að því er fram kemur á vestfirska fréttavefnum, Bæjarins besta. Höfnin hefur verið markaðssett sem spennandi viðkomustaður skemmtiferðaskipa og koma hrefnuveiðiskipa í höfnina virðist ekki talin samræmast þeirri markaðssetningu.

„Afsturlunarte“ á Jónsmessunótt

Jónsmessunótt er í nótt. Af því tilefni munu einhverjir velta sér naktir upp úr dögg en fleira stendur til boða. Til dæmis verður Miðnætur- og Ólympíuhlaup í Laugardalnum klukkan 21 í kvöld og líkt og undanfarin ár munu kynngimagnaðir atburðir eiga sér stað í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.

Handtekinn með 60 g af kannabis

Snemma í morgun handtók lögreglan á Ísafirði karlmann á átjánda ári og fann í fórum hans tæplega 60 grömm af kannabisefnum. Maðurinn var handtekinn á Ísafjarðarflugvelli en hann var að koma með áætlunarvél frá Reykjavík.

Dalvíkingur í dollarasmygli

Dalvíkingur á fertugsaldri hefur undanfarið rúmt ár tapað fjórum milljónum eftir að hann reyndi að aðstoða Nígeríumann og Suður-Afríkana við að ná 20 milljón dollurum út af bankareikningi og koma þeim undan til Kanada.

Banaslysið á Þingeyri

Banaslys varð á Þingeyri í gærkvöldi þegar karlmaður á áttræðisaldri drukknaði í höfninni. Maðurinn sem lést hét Guðmundur Friðgeir Magnússon, til heimilis að Brekkugötu 2 á Þingeyri. Hann var 77 ára gamall, ókvæntur og barnlaus.

Forsætisráðherra hótað lífláti

Hryðjuverkamaðurinn Abu Musab al-Zarqawi, sem tengdur er al-Kaída hryðjuverkasamtökunum, hefur opinberlega hótað tilvonandi forsætisráðherra Íraks, Iyad Allawi lífláti. Morðhótunin kom fram á hljóðupptöku sem talið er að komi frá al-Zarqawi.

Enginn þrýstingur vegna hvalveiða

Bandaríska viðskiptaráðuneytið telur Íslendinga grafa undan verndarstefnu Alþjóða hvalveiðiráðsins með hvalveiðum í vísindaskyni. Bandarísk stjórnvöld ætla ekki að beita Íslendinga pólitískum þrýstingi til að fá þá ofan af því að veiða hvali.

Rafstöð frá Heklu vegna tónleika

Nú er allt að verða klárt fyrir tónleika Deep Purple hér á landi, í kvöld og annað kvöld. Heilmikill búnaður fylgir hljómsveit sem þessari og í mörg horn að líta. Eins og margir muna enduðu tónleikar hljómsveitarinnar hér fyrir 33 árum fremur snubbótt þegar rafmagnið fór af Laugardalshöll.

Eruð þið ekki með eyru spyr Baldur

"Þarf ég að skutla ykkur heim? Eruð þið ekki með eyru? Ég vil ekki tala við ykkur," sagði Baldur Ágústsson forsetaframbjóðandi afundinn við útsendara DV þegar þeir hugðust fylgjast með Baldri í heimsókn í sjónvarpsþættinum 70 mínútur.

Árni Þór og Kristján áfrýja

Sveinbjörn Kristjánsson hefur ekki ákveðið hvort hann uni dómi Héraðsdóms, en Árni Þór Vigfússon og Kristján Ragnar Kristjánsson hafa báðir ákveðið að áfrýja til Hæstaréttar. Auður Harpa Andrésdóttir, eini sakborningurinn sem var sýknaður, segir þessi málalok mikinn létti.

Magalenti á Siglufjarðarflugvelli

Dornier flugvél Íslandsflugs, TF-ELH, með tvo flugmenn innanborðs magalenti á flugvellinum á Siglufirði í kvöld. Mennina sakaði ekki.

Hótaði að myrða mig segir tengdó

"Hann hótaði mér morði, og litla barnabarni mínu mánaðargömlu líka," segir María G. Andrésdóttir, tengdamóðir Fannars Magga Birgissonar, sem stendur nágrannastríði í Jórufelli 12.

Bretarnir í Íran fá frelsi

Átta breskum sjóliðum, sem haldið hefur verið föngnum í Íran síðan á mánudag, verður sleppt í dag eða á morgun. Yfirvöld í Íran hættu við að sækja mennina til saka fyrir að fara inn í íranska landhelgi eftir að ljóst var að þeir höfðu einfaldlega villst.

Framlengja samstarfssamning

Össur hf. og Íþróttasamband Fatlaðra (ÍF) hafa framlengt samstarfssamning sinn sem er til fjögurra ára. Um er að ræða fjárhagslegan styrk sem er ætlaður til styrktar ÍF meðal annars við undirbúning og þátttöku á Ólympíumóti fatlaðra í Peking 2008.

Veitir 200 manns atvinnu

Bandaríski stálpípuframleiðandinn IPT hefur tilkynnt bæjaryfirvöldum í Reykjanesbæ að fyrirtækið sé á lokastigum í samningum við stóran evrópskan banka um að leiða lánsfjármögnun stálpípuverksmiðju í Helguvík. Um verður að ræða atvinnu fyrir nær 200 manns.

Aftaka fordæmd

Þjóðarleiðtogar víðs vegar um heiminn fordæmdu í gær morðið á suður-kóreska gíslinum Kim Sun-il í Írak. Stjórnvöld í Japan og Ástralíu, sem staðið hafa við bak Bandaríkjamanna síðan ráðist var inn í Írak, hrósuðu suður-kóreskum stjórnvöldum fyrir að neita að mæta kröfum mannræningjanna um að hætta yrði við fyrirhugaðan flutning hersveita til Íraks.

Sleppt úr haldi

Átta breskum sjóliðum, sem voru í haldi íranskra stjórnvalda, var sleppt í gær.

Tekinn með hass

Karlmaður á átjánda ári var handtekinn af lögreglunni á Ísafirði með tæplega 60 grömm af kannabisefnum í gærmorgun. Hann var að koma með áætlunarvél frá Reykjavík.

Forsætisráðherra hótað

Hótað hefur verið að ráða forsætisráðherra bráðabirgðastjórnar Íraka af dögum. Þetta kom fram á upptöku sem talin er koma frá vígamanninum Abu Musab al-Zarkawi sem hefur tengsl við al-Kaída hryðjuverkasamtökin.

Miskunnarlaust vísað úr landi

Hundruðum erlendra starfsmanna sem eru á löglegan hátt í Ísrael og hafa alla tilskilda pappíra og leyfi er vísað frá landinu á hverju ári með upplognum ástæðum starfsmanna útlendingaeftirlits landsins. Þetta kemur fram í máli Dekel Muskato, sem þangað til nýverið var yfirmaður útlendingaeftirlitsins og háttsettur lögreglumaður.

Framkvæmdir hefjast í haust

Bæjarráð Fjarðabyggðar hefur samþykkt að sveitarfélagið greiði fimmtán prósent kostnaðar við uppbyggingu hjúkrunardeildar Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað. Búist er við að framkvæmdir hefjist í haust og taki um tvö ár.

Fimmtungur ætlar að skila auðu

Fimmtungur kjósenda ætlar að skila auðu í forsetakosningunum næstkomandi laugardag samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins í dag. Níu af hverjum tíu þeirra sem taka afstöðu ætla að kjósa Ólaf Ragnar Grímsson. Ungar sjálfstæðiskonur hvetja kjósendur til að skila auðu.

Ferðalög út í geim

Í kjölfar ferðar Geimflaugar eitt (SpaceShipOne) út í geiminn á mánudaginn hafa vaknað spurningar um það hvort flogið verði með ferðamenn þangað innan fárra ára. Burt Rutan, sem hannaði Geimflaug eitt, hefur efasemdir um að það gerist á allra næstu árum.

Vilja aðstöðu fyrir hjólabretti

Tveir hjólabrettadrengir, þeir Birkir Kristján Guðmundsson og Daníel Kristjánsson, gengu á fund bæjarstjórans á Seltjarnarnesi á dögunum og afhentu honum undirskriftalista til stuðnings hugmynd þeirra um hjólabrettasvæði á Seltjarnarnesi.

Fannst við rætur Heklu

Belgísk kona sem saknað hafði verið frá því á þriðjudagskvöld fannst heil á húfi snemma í gærmorgun við rætur Heklu.

Allir nýnemar fá skólavist

Fjöldi grunnskólanemenda sem sótti um framhaldsskólavist næsta vetur kom menntamálaráðuneytinu í opna skjöldu. Allt að 98% árgangsins sótti um sem er meiri ásókn en búist var við. Samkvæmt tölum hagstofunnar er það um 5-7% aukning frá árinu 2002, auk þess sem tæplega 500 fleiri skipa þennan árgang en þann síðasta.

Létti við dómsorðið

"Það var ótrúlegur léttir að heyra dómsorðið. Ég vissi að ég hafði ekki gert neitt rangt og það var léttir að dómurinn hafi séð það líka," segir Auður Harpa Andrésdóttir, sem var sýknuð af ákæru á hendur henni í Landssímamálinu, í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær, og verða málsvarnarlaun verjanda hennar greidd úr ríkissjóði.

Lægri vextir á nýjum íbúðabréfum

Lægri vextir og frjálsara val þegar kemur að greiðslutíma lána eru meðal kosta nýrra íbúðabréfa Íbúðalánasjóðs sem taka við að húsbréfunum um næstu mánaðamót.

Fjögurra og hálfs árs fangelsi

Sveinbjörn Kristjánsson, fyrrum aðalféhirðir Landssímans, var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir um 261 milljónar króna frádrátt í starfi.

Dómurinn einsdæmi

Þetta er þungur dómur og sá þyngsti sem kveðinn hefur verið upp í auðgunarbrotamáli fram að þessu. Fjögurra og hálfs árs fangelsi er einsdæmi," segir Jón H. Snorrason, yfirmaður efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra og saksóknari í Landssímamálinu.

Ólafur getur vel við unað

Steingrímur Hermannsson, fyrrverandi forsætisráðherra, telur það ekki vera áhyggjuefni fyrir Ólaf Ragnar Grímsson þótt hlutfall auðra seðla verði hátt í forsetakosningunum á laugardaginn kemur.

Ráðherrar á faraldsfæti

Níu af tólf ráðherrum ríkisstjórnarinnar eru erlendis eða á leið til útlanda fyrir helgina. Ráðherrar fara auðvitað í sín sumarfrí einsog aðrir landsmenn en óvenju margir eru fjarverandi þessa dagana.

Blessun yfir samruna

"Þetta kemur okkur ekki á óvart í sjálfu sér, en við erum þó mjög ánægðir með þessa niðurstöðu," sagði Skarphéðinn Berg Steinarsson, stjórnarformaður Norðurljósa, um þá niðurstöðu samkeppnisráðs, að ekki sé ástæða til íhlutunar vegna hugsanlegra samsteypuáhrifa af samruna Fréttar við Norðurljós.

Enn margir á biðlista

Tæplega 150 unglingar eru enn á skrá eftir atvinnu hjá Vinnumiðlun ungs fólks í Reykjavík þrátt fyrir að langt sé liðið á sumar en alls sóttu rúmlega 2.700 unglingar um í vor.

Fasteignamat hækkar um milljónir

Fasteignamat íbúða og íbúðalóða í Fjarðabyggð mun hækka um 25% frá og með 1. september næstkomandi, um tæpa tvo milljarða króna. Þetta er niðurstaða endurmats sem Fasteignamat ríkisins hefur gert og byggist á kaupsamningum síðustu missera í sveitarfélaginu.

Þyngsti dómur í fjársvikamáli

"Þetta er þungur dómur og sá þyngsti sem kveðinn hefur verið upp í auðgunarbrotamáli fram að þessu. Fjögurra og hálfs árs fangelsi er einsdæmi," segir Jón H. Snorrason, yfirmaður efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra og saksóknari í Landssímamálinu.

Ákvörðun um skólagjöld pólitísk

Deildarforsetar við Háskóla Íslands segja skólann ekki hafa fjármagn til að kenna öllum þeim nemendum sem sækja nám við skólann. Eigi að setja skólagjöld við Háskólann sé það hins vegar pólitísk ákvörðun og ekki rétt að þvinga skólann til að eiga frumkvæði að slíkri gjaldtöku.

Húsfyllir á tónleikum Deep Purple

Mikill mannfjöldi sótti tónleika hljómsveitarinnar Deep Purple í Laugardalshöll í kvöld og varð lögregla vör við talsverða ölvun á svæðinu enda var selt áfengi á tónleikunum. Gerðu gestir góðan róm að gömlu hetjunum sem flestir eru komnir vel yfir miðjan aldur en tóku engu að síður góða spretti á sviðinu.

Upplausnarástand fyrir valdaafsal

Fjórir bandarískir landgönguliðar voru felldir í launsátri í borginni Ramadi vestur af Bagdad í Írak í gær og einn hermaður féll í sprengjuárás í höfuðborginni.

Sjá næstu 50 fréttir