Allir á brott innan fimmtán mánaða 12. júní 2004 00:01
Ísraelsstjórn mun greiða þeim landtökumönnum sem flytja sjálfviljugir frá Gaza bætur frá og með ágústmánuði. Þeir landnemar sem verða ekki horfnir á braut ári síðar verða reknir burt með valdi samkvæmt tímaáætlun sem hefur verið lögð fram um brotthvarf Ísraela frá landnemabyggðum á Gaza. Birting tímaáætlunarinnar gefur til kynna að Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, ætli ekki að láta neitt koma í veg fyrir að landtökubyggðirnar á Gaza verði lagðar niður, og það fljótt. Binyamin Netanyahu fjármálaráðherra sagði ekki endanlega ákveðið hversu háar bætur þeir landtökumenn fengju sem hverfa á braut áður en lokafrestur til þess rennur út 14. ágúst á næsta ári. Ekki hefur heldur verið ákveðið hvar þeim verður komið fyrir. Palestínumenn hafa tekið áætluninni um brotthvarf með miklum fyrirvara og telja hana aðeins hugsaða til þess að tryggja stöðu Ísraela á Vesturbakkanum. Forystumenn Trúarlega þjóðarflokksins, sem situr í Ísraelsstjórn og er alfarið á móti því að gefa landtökubyggðir eftir, þykja eftir þetta líklegri en áður til að segja sig úr stjórninni. "Þetta er mjög alvarlegt og gengur þvert á það sem var samþykkt," sagði Nissan Slomiansky, þingmaður flokksins, og vísaði til samþykktar stjórnarinnar frá því um síðustu helgi.
Erlent Fréttir Mest lesið Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Innlent Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Mesti snjór í New York í fjögur ár Erlent Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Erlent Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Innlent Þrír létust í óveðrinu Erlent Líkamsárás í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Í deilum við nágrannann vegna trjáa Mesti snjór í New York í fjögur ár Þrír létust í óveðrinu Ræðir uppfærða friðaráætlun við Trump í dag Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Fjórir göngumenn látnir eftir snjóflóð í Grikklandi Brenndu rangt lík Leita í rústum íbúðahúsa Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Semja aftur um vopnahlé Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Minnst fimmtán særðir eftir hnífa- og efnaárás í Japan Mun funda með Trump „í náinni framtíð“ Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Sjá meira