Fleiri fréttir

Sjálfstæðu leikhúsin í sókn

Bandalag sjálfstæðra leikhúsa fær jafn marga gesti og Þjóðleikhúsið, Borgarleikhúsið, Leikfélag Akureyrar, Íslenska óperan og Íslenski dansflokkurinn til samans.

Samkomulag á síðustu stundu

Það þurfti fimm tilraunir en á síðustu stundu náðist loks samkomulag um hvernig kveðið skyldi á um völd Íraksstjórnar og samskipti hennar við fjölþjóðlega herliðið sem verður áfram í Írak eftir að hernámi þess lýkur formlega um næstu mánaðamót.

Kerry með 51 prósent

John Kerry, forsetaframbjóðandi demókrata, fengi 51 prósent atkvæða en George W. Bush Bandaríkjaforseti 44 prósent ef forsetakosningarnar í Bandaríkjunum færu fram nú og úrslit hennar yrðu í samræmi við skoðanakönnun Los Angeles Times.

Mannfall í sprengjutilræðum

Tvær bílsprengjur urðu fjórtán óbreyttum borgurum og einum bandarískum hermanni að bana í Írak í gærmorgun. Önnur sprengingin varð í borginni Mosul í norðurhluta landsins þegar bílalest með háttsettum embættismönnum ók hjá.

Dregur úr kjörsókn

Bretar og Hollendingar urðu fyrstir til að greiða atkvæði um hverjir sitja á þingi Evrópusambandsins næstu fimm árin þegar Evrópukosningar fóru fram í löndunum tveimur í gær. Fram á sunnudag ganga svo íbúar hinna 23 aðildarríkja Evrópusambandsins að kjörborðinu.

Stofnanamálið burt

Borgaryfirvöld í Vínarborg í Austurríki hafa gefið út leiðbeiningar til embættismanna borgarinnar þar sem þeim er kennt að breyta stofnanamáli í venjulega þýsku.

Vilja ekki Orkuveituna

Kópavogsbær íhugar að hætta að kaupa rafmagn af Orkuveitu Reykjavíkur og leitar samninga hjá Orkuveitu Suðurnesja. "Við höfum skrifað Orkuveitu Suðurnesja bréf um að kaupa rafmagn af þeim. Við erum fyrst og fremst að leita að betra verði og þjónustu," segir Gunnar I. Birgisson.

Bush gagnrýndur

Staða mála í Miðausturlöndum var í brennidepli á leiðtogafundi átta stærstu iðnríkja heims. George W. Bush Bandaríkjaforseti lagði áherslu á að vinna stefnu sinni í Írak og hugmyndum um lýðræðisvæðingu Miðausturlanda fylgis en varð lítið ágengt, sérstaklega í Íraksmálum. Frakkar og Þjóðverjar neita sem fyrr að senda herlið til Íraks.

Dæmdur í fangelsi fyrir vopnað rán

Tuttugu og fimm ára maður var dæmdur í átján mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær, fyrir vopnað rán og önnur þjófnaðarbrot. Fjórar ákærur á hendur manninum voru sameinaðar.

ILO gagnrýnir stjórnvöld

Þing Alþjóðavinnumálastofnunarinnar, ILO, hefur staðfest niðurstöðu Félagafrelsisnefndar vegna kæru ASÍ um endurtekin afskipti stjórnvalda af gerð kjarasamninga. Kæran fólst í að lög á verkfall sjómanna vorið 2001 brytu gegn grundvallarsamþykktum ILO og þjóðréttarlegum skuldbindingum Íslands.

Skotnir til bana

Tveir lögregluþjónar voru skotnir til bana í norðurhluta Spánar í gær. Skotið var á lögregluþjónana þegar þeir reyndu að stöðva ökumann bifreiðar sem gerst hafði sekur um umferðarlagabrot.

Sautján særðust

Sautján særðust þegar sprengja sprakk við eina af verslunargötum Kölnar í Þýskalandi í gær. Talið er að sprengjan hafi verið full af nöglum þar sem mikill fjöldi trésmíðanagla lá á víð og dreif í kringum sprengjustaðinn.

Einhleypir karlar skulda mest

Einhleypir karlar skulda hlutfallslega mest þeirra sem leituðu ráðgjafar til Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna á síðasta ári. Alls sóttu 823 um slíka ráðgjöf. Flestir voru einstæðar mæður eða þriðji hver umsækjandi.

Verjandi fær að sjá gögn

Lögreglustjóranum í Reykjavík hefur verið gert að veita verjanda eins þriggja útlendinga sem eru í haldi lögreglu aðgang að rannsóknargögnum málsins.

Engar upplýsingar

Umboðsmaður Alþingis telur Ríkisútvarpið skorta lagaheimildir til þess að vinna efni sérstaklega fyrir vef stofnunarinnar og birta þar auglýsingar, að því er fram kom í fréttum Sjónvarpsins í gær.

Kennarar samþykktu verkfall

Kennarasamband Íslands samþykkti með 90,2% atkvæða að fara í verkfall 20. september nái samninganefnd þeirra og launanefnd sveitarfélaga ekki samkomulagi. Finnbogi Sigurðsson, formaður félags grunnskólakennara, er ánægður með afgerandi niðurstöðu kosninganna.

Madrídarárásin var mitt verk

"Madrídarárásin var mitt verk og þeir sem létu lífið sem píslarvættir eru kærir vinir mínir," sagði Rabei Osman Ahmed í símtali sem ítalska lögreglan hleraði nokkrum dögum áður en hún handtók hann.

Þingfest í næstu viku

Mál vegna líkfundar Vaidasar Jucevicius í Neskaupstað verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur miðvikudaginn 16. júní næstkomandi.

Kaupmáttur launa rýrnar

Laun landsmanna rýrna frá árinu áður samkvæmt könnun kjararannsóknarnefndar og vísbendingar eru um að lítið þurfi til að verðbólga fari aftur af stað. Landsbyggðin heldur áfram að dragast aftur úr í launum.

Hæstiréttur mildaði

Hæstiréttur dæmdi rúmlega fertugan mann í tíu mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn dóttur sinni og stjúpdóttur. Maðurinn hafði áður verið dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi í Héraðsdómi Vestfjarða í október á síðasta ári.

Vill stærra hlutverk Nató

George W. Bush Bandaríkjaforseti vill að Atlantshafsbandalagið komi með öflugri hætti að öryggisstarfi í Írak en það hefur gert hingað til. Fimmtán af aðildarríkjum bandalagsins hafa þegar sent herlið til Íraks.

Styrkir stjórnina

Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra telur að Íraksályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna verði til þess styrkja írösku bráðabirgðastjórnina og segir miklu skipta að ályktunin var samþykkt með atkvæðum allra ríkjanna sem eiga sæti í öryggisráðinu.

Eltur á 200 km hraða

Lögreglan í Kópavogi og Hafnarfirði veitti manni á fimmtugsaldri eftirför suður eftir Reykjanesbraut í fyrrinótt. Maðurinn sinnti engum stöðvunarmerkjum og ók á allt að 200 kílómetra hraða. Til að stöðva ferðir mannsins þurfti að aka einum lögreglubílnum utan í bíl mannsins á Strandarheiði.

Efni fyrir tugi milljarða

Lögregla handtók sjö manns og gerði upptæk efni sem duga til að framleiða 35 milljarða virði af fíkniefnum, þegar hún réðist til inngöngu í fíkniefnaverksmiðju í Suva, höfuðborg smáeyjunnar Fiji í Eyjaálfu.

Ríkið ræður opnunartíma

Þýsk stjórnvöld eru í fullum rétti að setja takmarkanir við því hversu lengi verslanir mega hafa opið. Þetta er niðurstaðan af málsókn einnar stærstu verslanakeðju Þýskalands sem kvað slíkar takmarkanir ósanngjarnar og vildi að lög um þær yrðu felld úr gildi.

Víti til varnaðar óróaríkjum

Innrásin í Írak hefur haft jákvæð áhrif í átt til að sporna gegn útbreiðslu gjöreyðingarvopna en neikvæð áhrif í þá átt að ýta undir hryðjuverk. Þetta segir í skýrslu Friðarstofnunarinnar í Stokkhólmi um afleiðingar innrásarinnar.

Mikill meirihluti á móti lögunum

Meirihluti þjóðarinnar hyggst greiða atkvæði gegn fjölmiðlalögum ríkisstjórnarinnar í þjóðaratkvæðagreiðslu sem ráðgert er að verði í fyrri hluta ágústmánaðar. Þetta kemur fram í skoðanakönnun sem Fréttablaðið gerði um síðustu helgi.

Kúrdar ekki sáttir

Kúrdar eru ósáttir og segja að ekki sé nægilega skýrt kveðið á um uppbyggingu Íraks sem sambandsríkis í ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Sjíaklerkurinn al-Sistani kom í veg fyrir það.

Dutroux neitar ásökunum

Belgíski barnaníðingurinn Marc Dutroux neitaði morðákærum er hann kom í síðasta sinn fyrir rétt í gær. Dutroux neitaði því alvarlegustu atriðunum sem honum eru gefin að sök en hann er meðal annars ákærður fyrir barnanauðganir, mannrán og morð.

Færði útvarpsstjóra tómatsósu

Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi er ósáttur við litla athygli fjölmiðla. Því freistaði hann þess að ná athygli þeirra með því að færa Markúsi Erni Antonssyni tómatsósu í gærdag og til að undirstrika hversu ósáttur hann er

Málið þingfest

Mál manns um þrítugt á Patreksfirði, sem ákærður hefur verið fyrir meint kynferðisbrot gegn sjö drengjum var þingfest fyrir Héraðsdómi Vestfjarða í gær.

Leiðir ekki til ógildingar

"Það er grundvallaratriði að lögin eru búin að taka gildi og taka gildi þrátt fyrir synjun forseta," segir Björg Thorarensen, prófessor í stjórnskipunarrétti.

Segir dóm auka réttaröryggi

Mannréttindadómstóll Evrópu segir brotið hafa verið á Hildu Hafsteinsdóttur með ítrekuðum handtökum fyrir 12 til 16 árum síðan. Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður segir dóminn auka réttaröryggi hér því í kjölfarið taki dómarar sig á og gefi betur gaum ríkjandi sjónarmiðum hjá Mannréttindadómstólnum.

Davíð við útförina

Davíð Oddsson forsætisráðherra og Ástríður Thorarensen, eiginkona hans, verða við útför Ronalds Reagans sem var fertugasti forseti Bandaríkjanna. Hann verður jarðsettur í Washington í dag. Forsætisráðherra hefur þegar sent frú Reagan samúðarkveðju.

Deilur á norska þinginu

Mikil andstaða er innan norska stórþingsins vegna ákvörðunar sjávarútvegsráðherra landsins um að láta íslenska togarann Guðrúnu Gísladóttur liggja áfram í votri gröf sinni.

Leikskólar stytta sumarlokanir

Leikskólar Reykjavíkur verða lokaðir í hálfan mánuð í sumar. Það er helmingi styttri tími en á síðasta ári.

Andstaðan hefur minnkað

Andstaðan við fjölmiðlalögin hefur minnkað samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins, sem gerð var um síðustu helgi. Samkvæmt henni segjast um 71 prósent þeirra sem tóku afstöðu ætla að greiða atkvæði gegn fjölmiðlalögunum í þjóðaratkvæðagreiðslu en í fyrri könnunum blaðsins hefur andstaðan við málið mælst á bilinu 77 til 83 prósent.

Valdamikill og pólitískur

Málþing um pólitískt hlutverk forseta Íslands frá stofnun lýðveldis til okkar daga var haldið í gær. Prófessor í stjórnmálafræði segir Svein Björnsson hafa skapað pólitískt og valdamikið embætti. Kristjáni Eldjárn reyndist erfitt að sitja á friðarstóli.

Útvarpar á kúrdísku

Tyrkneska ríkissjónvarpið er í fyrsta skipti í sögunni farið að útvarpa og sjónvarpa efni á kúrdísku, málinu sem var um margra ára skeið bannað að notast við í Tyrklandi.

Endurbættu leiðarkerfi frestað

Nýtt leiðakerfi Strætó bs. verður ekki tekið í notkun fyrr en í fyrsta lagi í október vegna þess að ekki næst að ráðast í nauðsynlegar framkvæmdir á tilsettum tíma. Áður hafði verið stefnt að því að taka nýja leiðakerfið í notkun seinni part sumars.

Skuldum vafin ungmenni

Þess eru dæmi að ungmenni undir tvítugu skuldi vel á þriðju milljón króna og að sama upphæð sé í vanskilum, samkvæmt upplýsingum frá Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna. Fólki í þessum aldurshópi sem þarf að leita aðstoðar hjá ráðgjafarstofunni hefur farið fjölgandi á milli áranna 2002 og 2003, samkvæmt ársskýrslu stofunnar.

Breyttir jeppar ekki hættulegri

Enginn marktækur munur er á slysa- og meiðslatíðni vegna árekstra upphækkaðra jeppa og hinna venjulegu samkvæmt nýrri könnun. Fjármagn skortir til að láta fara fram vísindalegar árekstrarprófanir hér á landi.

Fjármálavandræði ungs fólks aukast

Því miður sjáum við oft mikla fjölskylduharmleiki vegna ábyrgðarmennsku," sagði Ásta S. Helgadóttir, forstöðumaður Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna, um ábyrgðir foreldra eða annarra ættingja á lántökum ungs fólks.

Meiri áhrif á næsta ári

Tillögur Hafró hafa lítil áhrif á útflutningsframleiðslu sjávarafurða í ár, en þó má búast við að hún dragist saman um 0,25 prósent, samkvæmt því sem kemur fram á vefriti fjármálaráðuneytisins. Hins vegar er gert ráð fyrir að áhrifin verði meiri á næsta ári miðað við áætlanir.

Tíundi dómurinn

Maður á fimmtugsaldri fékk átta mánaða fangelsisdóm í Hérðasdómi Reykjavíkur fyrir akstur undir áhrifum lyfja og önnur umferðarlagabrot, þjófnað, nytjastuld, gripdeildir og vopnalagabrot.

Sjá næstu 50 fréttir