Fleiri fréttir

Fuglar á ferð

Fuglar eins og endur og gæsir eru núna og næstu vikur á vappi yfir Hafnarfjarðarveg og vill lögregla í Kópavogi minna fólk á að hafa varann á. Nokkur dæmi eru um að árekstrar hafi orðið vegna þessa en fuglarnir eru ýmist að koma sér í Kópavoginn eða Fossvoginn frá varpstöðum sínum.

Sakaður um samráð við stríðsherra

Vangaveltur um hvort Hamid Karzai, forseti Afganistans, vinni að kosningasamkomulagi við öflugustu stríðsherra landsins hafa ágerst eftir að hann hitti höfuðpaura Norðurbandalagsins að máli. Karzai neitar öllum sögusögnum um að samkomulag hafi verið gert.

Sextán ekki með bílbelti

Lögreglan á Akureyri hefur verið með átak í umferðareftirliti í og við bæinn síðustu daga. Fimmtán ökumenn og einn farþegi voru teknir fyrir að vera ekki með bílbelti á miðvikudag. Sex voru teknir fyrir hraðakstur norðan við Akureyri á milli klukkan sex og níu í fyrrakvöld. Þá eru enn einhverjir sem ekki hafa tekið nagladekkin undan bílum sínum.</font />

88 % sögðu já

Starfsmenn Sjúkrahúss og heilsugæslustöðvarinnar á Akranesi sem skráðir eru í verkalýðsfélag staðarins samþykktu kjarasamning Starfsgreinasambands Íslands og fjármálaráðuneytis í annarri tilraun á mánudag.

Vaka semur

Starfsmenn Heilbrigðisstofnunarinnar á Siglufirði sem eru félagsmenn verkalýðsfélagsins Vöku samþykktu stofnanasamning sjúkrahússins í gær í annarri tilraun, síðast sjúkrahúsa. Signý Jóhannesdóttir, formaður Vöku, segir óvenjulega leið hafa verið farna við samningsgerðina.

Yfir 10% hækkun á tveim árum

Eftir fyrirhugaða 2,6 prósenta hækkun á orkuverði næstu mánaðamót hefur Orkuveita Reykjavíkur á tveimur árum hækkað raforkuverð um sem nemur 10 prósentum og verð á heitu vatni sem nemur rúmum 13 prósentum, samkvæmt upplýsingum Hagstofu Íslands.

Vísað frá fyrir Hæstarétti

Hæstiréttur hefur vísað frá skaðabótarmáli því er Austurbakki hf. höfðaði gegn fyrrverandi eigendum útivistarverslunarinnar Nanoq í Kringlunni en áður hafði Héraðsdómur Reykjavíkur dæmt mennina til greiðslu skaðabóta að upphæð 9,2 milljónir króna.

Ákærður fyrir þrjár líkamsárásir

Stefán Logi Sívarsson hefur verið ákærður af ríkissaksóknara fyrir þrjár líkamsárásir sem hann framdi á tveimur dögum í apríl síðastliðnum. Ein líkamsárásin er sögð hafa verið sérstaklega hættuleg. Hinar tvær líkamsárásirnar framdi Stefán Logi í félagi við mann á þrítugsaldri sem einnig er ákærður.

Eldur í nýbyggingu

Allt tiltækt slökkvilið var kallað út að nýbyggingu Háskólans á Akureyri við Sólborg rétt fyrir klukkan níu í gærkvöld. Eldurinn kom upp þegar kviknaði í þakdúk í turni rannsóknarhúss og steig mikill reykur frá byggingunni.

Barnshafandi með þúsundir e-taflna

Barnshafandi kona sem reyndi að smygla hingað til lands 5.005 e-töflum var úrskurðuð í tveggja vikna gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Töflurnar fundust við venjubundið eftirlit Tollgæslunnar á Keflavíkurflugvelli í bakpoka konunnar þegar hún kom hingað til lands frá París á fimmtudaginn.

Eimskip kaupir tvö frystiskip

Eimskipafélag Íslands hefur gert samninga um smíði tveggja frystiskipa og er kaupverð þeirra samtals um tveir milljarðar króna. Skipin verða smíðuð í Noregi og afhent haustið 2005 og í júní 2006, en stefnt er að því að þau verði í vikulegum áætlanasiglingum milli Noregs, Bretlands og Íslands.

Íslenskumælandi talgervill í síma

Í sumarlok er von á íslenskumælandi talgervli í farsíma sem gagnast getur blindum og sjónskertum. Með hjálp búnaðarins geta blindir og sjónskertir þá nýtt sér til fulls þá kosti sem farsímatæknin hefur í för með sér, svo sem SMS eða MMS smáskilaboð sem síminn les þá upphátt fyrir notandann.

Annar laus úr gæsluvarðhaldi

Annar af tveimur mönnum um þrítugt sem úrskurðaðir voru í gæsluvarðhald á föstudaginn í síðustu viku er laus úr haldi. Hann hafði verið úrskurðaður í gæsluvarðhald í eina viku og rann sá tími út í gær.

Mómælum komið á framfæri

Íslensk stjórnvöld hafa komið á framfæri mótmælum fjölmargra hér á landi vegna mannréttindabrota á föngum í herstöð Bandaríkjamanna í Guantanamo á Kúbu. Það gerði Sturla Böðvarsson í apríl og Halldór Ásgrímsson svo aftur í maí á fundi hans með sendiherra Bandaríkjanna hér á landi.

Ekki ástæða til innrásar

Flestir Bandaríkjamenn eru þeirrar skoðunar að ekki hafi verið ástæða til að ráðast inn í Írak. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun dagblaðsins Los Angeles Times. Flestir telja þó að úr því sem komið er beri að ljúka verkefninu þar.

Skoða þarf svigrúmið

Hjálmar Árnason, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, telur lækkun virðisaukaskatts eina leið til þess að bregðast við aukinni verðbólgu.

Milljóna-Svíinn dæmdur

Sænski ferðalangurinn sem handtekinn var í Leifsstöð 21. maí síðastliðinn með tvær milljónir króna í reiðufé í vösunum var dæmdur til fjögurra mánaða fangelsisvistar í gær. Hann hafði játað á sig fjársvik við yfirheyrslu og birti sýslumannsembættið á Keflavíkurflugvelli honum ákæru í gær.

Hryðjuverkum fer fjölgandi

Bandarísk stjórnvöld eru að tapa stríðinu sem þau hófu árið 2001 gegn hryðjuverkum í heiminum en tölur fyrir árið 2003 sýna mikla aukningu hryðjuverka hvarvetna. Hefur bandaríska utanríkisráðuneytið dregið til baka skýrslu sem sýndi hið gagnstæða eftir að í ljós kom að hún var full af staðleysum og beinlínis röng í sumum atriðum.

Bandaríkjastjórn eyðir eiturefnum

Bandarísk stjórnvöld hafa ákveðið að láta eyða öllum birgðum sínum af VX eiturgasinu. VX er baneitrað og var grunur um að Írakar ættu slík efni sem var ein af ástæðunum sem nefnd var til stuðnings innrás í Írak.

Dagmömmur ósáttar

Ég hef fjórum sinnum hringt og beðið um að þetta verði lagað og alltaf segja menn að þeir komi eins og skot, en ekkert gerist," segir Linda Björk Friðriksdóttir, dagmamma í Bústaðahverfi í Reykjavík. Henni og öðrum dagmömmum í hverfinu blöskrar bág aðstaða á leikvöllum í hverfinu og segja leiktæki vera almennt sjúskuð og jafnvel slysagildrur.

Enn lítið af rjúpu

Uppsveifla hefur orðið í rjúpnastofninum samkvæmt rjúpnatalningu á vegum Náttúrfræðistofnunar Íslands í vor. Mat Náttúrufræðistofnunar er að ekki sé hægt að hverfa frá ákvörðun um þriggja ára veiðibann að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá stofnuninni.

Fylgi Verkamannaflokksins hrynur

Breski verkamannaflokkurinn galt afhroð í borgar- og bæjarstjórnarkosningum í Bretlandi í gær og tapaði meira en tvöhundruð borgar- og bæjarfulltrúasætum. Þetta er einhver mesti ósigur í sögu flokksins og áfall fyrir Tony Blair.

Hick fær ekki sanngjörn réttarhöld

Faðir David Hicks, Ástralans sem er í haldi Bandaríkjamanna á Guantanamo flóa á Kúbu vegna gruns um hryðjuverk, segir að sonur sinn muni ekki hljóta sanngjörn réttarhöld og verði fundinn sekur. Faðir Hick bregst þannig við ákæru Bandaríkjamanna þar sem sonur hans er grunaður um samsæri um stríðsglæpi, þar á meðal morð og að hafa hjálpað óvininum í stríðinu gegn hryðjuverkum.

Met velta á verðbréfamarkaði

Met velta var á verðbréfamarkaði í gær þegar bréf fyrir nítján og hálfan milljarð króna skiptu um eigendur. Þetta er tveimur milljörðum meiri velta en en sjöunda maí, þegar met var sett þá.

Mikil viðhöfn við útför Reagans

Útför Ronalds Reagans, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, fer fram frá dómkirkjunni í Washington í dag. Helstu leiðtogar heims munu votta forsetanum fyrrverandi virðingu sína við athöfnina. Mikil viðhöfn verður við útförina og verður opinberum stofnunum í Washington og víðar um Bandaríkin lokað á meðan hún fer fram.

Rjúpnastofninn í uppsveiflu

<font size="2"> Rjúpnastofninn er í mikilli uppsveiflu en þrátt fyrir það telur Náttúrufræðistofnun Íslands ekki ástæðu til að falla frá ákvörðun um þriggja ára veiðibann. Ástæðan er sú að þrátt fyrir uppsveifluna er tiltölulega lítið af rjúpu í landinu þar sem stofninn var orðinn mjög lítill áður en hann fór að rétta úr kútnum. </font>

Minni andstaða við fjölmiðlalög

Heldur dregur úr andstöðu almennings við fjölmiðlafrumvarpið svonefnda samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins. Af þeim sem tóku afstöðu er 71 prósent á móti lögunum en 29 prósent fylgjandi þeim.

Ástþór kærir

Ástþór Magnússon krefst þess að forsetakosningunum verði frestað, þar sem frambjóðendum sé mismunað í fjölmiðlum. Hann hefur einnig kært Ríkisútvarpið fyrir ritskoðun.

Hættir sem verjandi Jóns Ásgeirs

Helgi Jóhannesson hefur hætt sem verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar vegna rannsóknar á skattamálum Baugs. Helgi var yfirheyrður hjá Skattrannsóknarstjóra vegna hlutabréfakaupa fjárfestingafélagsins Fjárfars, en Helgi var í stjórn fyrirtæksins og um tíma stjórnarformaður.

Óráðlegt að lækka skatta

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands telur óráðlegt að lækka skatta við núverandi aðstæður í efnahagslífinu og ítrekar að ríkið verði að takast á við kerfislægan vöxt rekstrarútgjalda ríkissjóðs

Hreinsunarátak fyrir 17. júní

Reykjavíkurborg hvetur almenning til að fegra borgina fyrir hátíðarhöldin 17. júní þegar lýðveldið verður 60 ára. Hreinsunarátak Reykjavíkurbogar, Tökum til hendinni, er nú í fullum gangi en átakinu lýkur á sunnudag. Þórólfur Árnason borgarstjóri segist mjög ánægður með viðbrögð borgarbúa.

Hrefnuveiðar hefjast á ný

Fimm hrefnur hafa veiðst síðan rannsóknarveiðar hófust á ný í byrjun mánaðarins. Að sögn Gísla Víkingssonar, verkefnastjóra hjá Hafrannsóknarstofnuninni, ganga rannsóknir vel, en veiddar verða 25 hrefnur í sumar.

Kosið um lögin í byrjun ágúst

Alþingi verður kallað saman mánudaginn 5. júlí þar sem ákveðið verður fyrirkomulag þjóðaratkvæðagreiðslu um fjölmiðlalögin. Þjóðaratkvæðagreiðslan mun fara fram í byrjun ágúst. Þetta kom fram í máli Davíðs Oddssonar að loknum samráðsfundi með formönnum allra stjórnmálaflokkanna í gær.

Meirihluti kennara vill verkfall

Yfirgnæfandi meirihluti kennara og skólastjóra vill boða verkfall í grunnskólum frá og með 20. september hafi kjarasamningur ekki verið gerður fyrir þann tíma. Leynilegri atkvæðagreiðslu um verkfallsboðun lauk þann 3. júní.

Lögregla afhendir rannsóknargögn

Hæstiréttur hefur dæmt lögreglustjórann í Reykjavík til að afhenda verjanda útlendings, sem er grunaður um að tengjast ólöglegum fólksflutningum til Vesturheims, rannsóknargögn í málinu. Maðurinn er í hópi þriggja útlendinga af arabískum uppruna sem sitja í gæsluvarðhaldi eftir að hafa verið handteknir með stolin og fölsuð vegabréf.

Öryggisráð Sþ samþykkir ályktun

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti ályktun um framtíð Íraks samhljóða í gær. Þetta þykir marka þáttaskil en ríkin sem skipa öryggisráðið hafa deilt hart um Íraksmálið. Vonir standa til að þetta þýði að bjartari tímar séu í vændum þar í landi.

Lénið frjálstútvarp.is keypt

Kjartan Gunnarsson framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins og Petrea Ingibjörg Jónsdóttir starfsmaður á skrifstofu flokksins hafa fest kaup á léninu frjálstútvarp.is.

Kristján Eldjárn synjaði ekki

Kristján Eldjárn fyrrverandi forseti Íslands treysti sér ekki til að synja þáverandi forsætisráðherra um að undirrita ákvörðun um þingrof, þótt formenn þriggja stjórnmálaflokka leggðu hart að honum að gera það. Þetta kemur meðal annars fram í einkaskjölum Kristjáns sem Guðni Jóhannesson sagnfræðingur hefur fengið að skoða.

Saxi með lægsta tilboð

Um 100% munur er á hæsta og lægsta tilboði í viðbyggingu við leikskólann Lyngholt á Reyðarfirði. Hæsta tilboðið var frá Íslenskum aðalverktökum í Reykjavík, rúmar 132 milljónir króna, sem er 151% af kostnaðaráætlun.

Ekkert samráð við stjórnarandstöðu

Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, segist ekki vita betur en að Davíð Oddsson forsætisráðherra hafi spurt formenn allra stjórnmálaflokka að því hvort þeir væru til í að taka þátt í því að hafin yrði endurskoðun stjórnarskrárinnar.

Kettir skrásettir á Suðurnesjum

Það getur heldur betur verið að kaupa köttinn í sekknum að þiggja gefins nokkurra vikna kassavanan sætan kettling, því að hið opinbera er farið að líta þennan ferfætta skottpening hýru auga til gjaldtöku.

Víða engin lágmarkskjörsókn

Ekki eru nein fordæmi fyrir því í nágrannaríkjum Íslands að krefjast 75 prósenta lágmarkskjörsóknar í þjóðaratkvæðagreiðslu. Víða er engrar lágmarkskjörsóknar krafist.  

Reykingabann í haust

Frumvarp um bann við reykingum á veitingastöðum, sambærilegt því sem Írar og Norðmenn hafa lögfest, verður undirbúið í heilbrigðisráðuneytinu í sumar og er stefnt að því að leggja það fram á næsta þingi.

Hernes til Danmerkur

Danskur dráttarbátur er nú lagður af stað með vikurflutningaskipið Hernes, sem strandaði í Þorlákshöfn í síðasta mánuði, áleiðis til Póllands þar sem gert verður við það.

Sjá næstu 50 fréttir