Ákærður fyrir þrjár líkamsárásir 12. júní 2004 00:01
Stefán Logi Sívarsson hefur verið ákærður af ríkissaksóknara fyrir þrjár líkamsárásir sem hann framdi á tveimur dögum í apríl síðastliðnum. Ein líkamsárásin er sögð hafa verið sérstaklega hættuleg. Hinar tvær líkamsárásirnar framdi Stefán Logi í félagi við mann á þrítugsaldri sem einnig er ákærður. Ákæran var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Stefán Logi var á ný kominn úr fangelsi og var á reynslulausn þegar hann réðst á sextán ára dreng á heimili sínu. Hann sló drenginn með krepptum hnefa í andlit og maga svo drengurinn féll í gólfið. Síðan sparkaði hann í kvið drengsins þar sem hann lá á gólfinu með þeim afleiðingum að milta drengsins rifnaði. Drengurinn hlaut við árásina lífshættuleg innvortis meiðsl. Rétt rúmum sólarhring síðar réðst Stefán Logi ásamt félaga sínum á mann sem lá í sófa. Þeir slógu manninn mörg högg í höfuð og líkama. Þá sveigði Stefán Logi aftur einn fingur mannsins og beit hann í eyrað. Maðurinn sem varð fyrir árásinni hlaut bitsár, mar, bólgur og fleiri áverka. Seinna sama dag slógu þeir og spörkuðu í stúlku sem var með þeim í bíl. Stúlkan tognaði á öxl og hlaut yfirborðsáverka víða um líkamann. Þá er Stefán Logi ákærður fyrir umferðarlagabrot eftir að hafa ekið bíl réttindalaus. Bílnum ók hann á kyrrstæðan bíl sem kastaðist á annan bíl. Stefán er sakaður um að hafa keyrt viðstöðulaust á bílana. Eftir að Stefán Logi réðst á og stórslasaði sextán ára drenginn fór lögreglan í Reykjavík fram á gæsluvarðhald yfir honum en dómari taldi ekki málsástæður til þess og var honum því sleppt lausum. Rétt um sólarhring síðar framdi hann tvær líkamsárásir í félagi við annan mann. Stefán hlaut tveggja ára fangelsisdóm fyrir líkamsárás árið 2002, svokallaða Skeljagrandaárás, auk annarrar líkamsárásar sem hann framdi sama dag. Hann ásamt bróður sínum sló margsinnis fórnarlambið í andlit og líkama með krepptum hnefum og bareflum, stakk hann og skar með eggvopnum og misþyrmdi honum með öðrum hætti.
Fréttir Innlent Mest lesið Gleymdu að lækka launin og senda nú bakreikning Innlent „Kristrún eini hagfræðingur landsins sem hefur rétt fyrir sér“ Innlent Bein útsending: Lilja formaður eftir spennandi flokksþing Innlent Hildigunnur hættir strax eftir ákvörðun ráðherra Innlent Mánudagsmorgunn í Kaffistofu Samhjálpar Innlent Sakfelldar fyrir að brjótast um borð í hvalveiðiskip Innlent Veiktist er hann reyndi að afsanna Havana-heilkennið Erlent Sinueldur við Framheimilið Innlent „Við erum áratugum of sein“ Innlent Obama gefur út yfirlýsingu um mögulega tilvist geimvera Erlent Fleiri fréttir Á ekki von á neinni byltingu innan Framsóknarflokksins Földu fíkniefni í morgunkornspökkum og fengu send Nýr samfélagsmiðill bara fyrir Íslendinga Opinbera komið til móts við fimm ábendingar af 23 Óhollustuskattur hafi mest áhrif á þá tekjulægri Gunnar, Guðfinnur og Sigríður á leið úr bæjarstjórn „Alveg hræðilegt ástand“ Aldraðir stíga fram og opna sig um „hræðilega stöðu“ Ekið á gangandi vegfaranda Suðurlandsvegi lokað vegna áreksturs tveggja bíla „Þetta er sorglegur dagur fyrir lýðræðið“ „Kristrún eini hagfræðingur landsins sem hefur rétt fyrir sér“ Brynja Dan vill leiða lista Framsóknar í Garðabæ Samþykktu heimild til að svipta flóttamenn vernd Þurfa að brúa sex milljarða króna bil Formaður Pírata sækist eftir öðru til fjórða sæti Hildigunnur hættir strax eftir ákvörðun ráðherra Styrkur svifryks áfram hár í borginni Lögga ákærð fyrir leit án heimildar Yfirvöld hafi útvegað tvö ný rými og óbreytt ástand Afi sakaður um að nudda kynfæri stúlku Sakfelldar fyrir að brjótast um borð í hvalveiðiskip Arnar Eggert hafnar því að HÍ sé „vók-útungunarstöð“ Verra að vera í bíl en gangandi í svifrykinu Kristinn Jón tekur slaginn við Alexöndru Fólk sólgið í bollur og mjög opið fyrir nýjungum Óbreytt ástand á Landspítala og svifrykið hrellir borgarbúa Kallar eftir rannsókn á snjóflóðinu á Flateyri Gleymdu að lækka launin og senda nú bakreikning Guðmundur Ingi gefur ekki kost á sér Sjá meira