Tónlist

Grétar segist strax hafa orðið sjúkur í Siggu Beinteins

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Sigga og Grétar hafa þekkst í rúm þrjátíu ár.
Sigga og Grétar hafa þekkst í rúm þrjátíu ár. Stöð 2

Stjórnin hefur skemmt landanum í yfir þrjátíu ár. Margir tengja hvert lag við ákveðið tímabil, staðsetningu eða viðburð og eru sumarsmellirnir orðnir fjölmargir. Fylgst var með Stjórninni í Íslandi í dag í gærkvöldi og var þessari spurningu velt upp: Hversu vel þekkja Sigga og Grétar í Stjórninni hvort annað eftir að hafa verið „par“ í rúm þrjátíu ár og haldið tæplega þúsund tónleika saman?

Hljómsveitin verður með tónleika á Stöð 2 í kvöld og segist Grétar Örvarsson, hljómsveitarmeðlimur, halda að þetta hljóti að vera þúsundasta skiptið sem sveitin stígi á stokk en þó þurfi alltaf að æfa fyrir tónleika. „Það er svo langt síðan við höfum spilað! Þetta er fyrsta Covid-giggið okkar, eins og við segjum.“

Stjórnin hefur skemmt landanum í rúma þrjá áratugi og eiga fjöldan allan af smellum.Stöð 2

Eins og gefur að skilja verða engir áhorfendur í kvöld en svona tónleika hefur stjórnin aldrei tekið áður. „Nei, ekki mikið. Maður spilaði náttúrulega mikið í sjónvarpi en þá ertu kannski að taka bara eitt lag. En að spila kannski heila tónleika, það verður örugglega svolítið skrítið, því maður hefur aldrei gert það fyrir framan tómt hús,“ segir Sigríður Beinteinsdóttir, söngkona sveitarinnar.

Eins og fyrr segir hefur sveitin verið starfandi í rúm þrjátíu ár og segir Grétar þetta allt hafa byrjað eftir að hann nálgaðist Siggu. „Algjörlega sjúkur í hana, það fór ekki á milli mála,“ segir hann og sker upp hlátrasköll Siggu. „Ég var með stjórnina á Hótel Íslandi. Alda var að hætta, við vorum búin að vera með Stjórnina í nokkra mánuði, Sigga var að syngja í sýningu á Hótel Íslandi og ég bað hana að koma í hljómsveitina. Rest is history.“

Stjórnin mun spila fyrir tómum sal í kvöld en nóg verður af áhorfendum heima í stofu.Stöð 2

Sigga segist ekkert hafa þurft að hugsa sig um og í ljós kom að þau voru frábært teymi. Sveitin naut strax mikilla vinsælda og segir Grétar að þau hafi byrjað að finna fyrir vinsældunum eftir að Landslagið kom út. Þá hafi þau byrjað að fara út um allt land að spila og vinsældirnar farið að aukast. „Ég tala nú ekki um eftir að við tókum þátt í Eurovision 1990. Það var okkar aðal stökkpallur,“ segir Grétar.

„Þetta var æðislega skemmtilegur tími og bara að taka þátt í þessari keppni var bara æðislegt og maður lærði mikið af þessu, fékk mikla reynslu í gegn um þetta allt saman. Að fá að kynnast þessu öllu eins og þetta var gert úti var bara flott. Svo að koma hérna heim og það var tekið á móti okkur með blómum og ég veit ekki hvað og hvað. Við fórum beint að spila um leið og við komum heim,“ segir Sigga.

Margir vonuðust til á sínum tíma að Sigga og Grétar væru par.Stöð 2

Margir héldu, og þá sérstaklega til að byrja með, að Sigga og Grétar væru par. Þau segjast hafa fundið fyrir þeirri pressu og Sigga segir að margir hafi haldið að þau væru par. „Það voru margir mjög svekktir þegar þeir föttuðu að við værum það ekki,“ segir Sigga.

„Í sjálfu sér þurftum við ekkert að leiðrétta þetta mikið,“ segir Grétar. „Þetta var bara okkar til að vita og annarra til að komast að seinna.“

Eftir þrjátíu ára vináttu þekkjast þau vel og voru þau spurð spjörunum úr til að komast að því hversu vel þau þekktust í raun. Keppnin fór þannig að Grétar fékk fimm stig og Sigga þrjú. Mælt er eindregið við því að horft sé á keppnina í spilaranum hér að neðan, enda eru þau Sigga og Grétar stórskemmtileg.

Dagskráin á tónleikunum í kvöld verður blönduð og munu þau bæði taka ný og gömul lög í bland. Þau segja að jafnvel verði eitthvað farið „út fyrir Stjórnarprógrammið.“

Þá segir Sigga að toppnum sé enn ekki náð: „Ég held að toppnum sé aldrei náð. Maður vill alltaf gera betur og reyna það allaveganna, þannig að ég vona að við séum ekki búin að ná toppnum.“

Hvað sumarið varðar er ekki ljóst hvort Stjórnin eða aðrar hljómsveitir geti skemmt á böllum en það verður sannarlega ball í kvöld heima í stofu. 

Uppfært. Stjórnin tróð upp á Stöð 2 og Vísi með miklum glæsibrag. Hægt er að horfa á Stjórnarballið hér fyrir neðan.

Klippa: Stjórnarball á Stöð 2

Tengdar fréttir

Bubbi í beinni á Vísi í kvöld

Bubbi Morthens hefur staðið fyrir tónleikum í beinni á Vísi í hádeginu á föstudögum undanfarnar vikur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×