Tottenham vann tíu Chelsea-menn á Brúnni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mathys Tel fagnar marki sínu á Stamford Bridge í kvöld.
Mathys Tel fagnar marki sínu á Stamford Bridge í kvöld. Getty/Mike Hewitt

Leikmenn Tottenham byrjuðu vikuna á því að vinna langþráðan sigur í ensku úrvalsdeildinni og fylgdu því eftir með 2-0 sigri á Chelsea í Lundúnaslag í kvöld.

Tottenham hoppar upp um fimm sæti og upp í tólfta sætið með þessum góða sigri. Liðið lék fyrstu sex deildarleiki sína án þess að vinna en er núna skyndilega á sigurgöngu.

Chelsea endaði manni færri þegar Cole Palmer fékk sitt annað gula spjald á 80. mínútu.

Tottenham hafði komist í 1-0 með marki þremur mínútum fyrr þegar Mike Penders skoraði sjálfsmark.

Mathys Tel innsiglaði sigurinn á 87. mínútu með hnitmiðuðu skoti fyrir utan vítateiginn.

Þetta er einnig í fyrsta sinn í átta ár sem Tottenham nær að fagna sigri á Stamford Bridge.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira