Loksins sigur hjá Tottenham

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Omar Marmoush fagnar mikilvægu marki sínu fyrir Tottenham í kvöld.
Omar Marmoush fagnar mikilvægu marki sínu fyrir Tottenham í kvöld. Getty/Justin Setterfield/

Tottenham fagnaði í kvöld sínum fyrsta sigri í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á þessu tímabili þegar liðið vann 3-1 heimasigur á nýliðum Coventry.

Tottenham var án sigurs í fyrstu sex leikjum sínum í deildinni en hafði náð í stig í þremur af síðustu fjórum leikjum, þar á meðal í jafntefli við Manchester United í síðasta leik fyrir landsleikjahlé. Nú kom sigurinn loksins sem var lífsnauðsynlegt fyrir alla í og í kringum félagið.

Tottenham sat í botnsæti deildarinnar fyrir leikinn en hoppar upp um fjögur sæti og upp úr fallsæti með þessum langþráða sigri. Coventry er sæti neðar og því síðasta fyrir ofan fallsætin.

James Maddison kom Tottenham í 1-0 strax á 14. mínútu með frábæru skoti fyrir utan teig eftir sendingu frá Mohammed Kudus.

Jack Rudoni jafnaði metin fyrir Coventry snemma í síðari hálfleik en heimamenn svöruðu fyrir sig fljótlega eftir það.

Omar Marmoush skoraði þá sitt fyrsta mark fyrir Tottenham en hann var keyptur frá Manchester City í sumar. Marmoush snéri sér fram hjá Milan van Ewijk við vítateigslínuna og þrumaði boltanum af krafti í netið. Mikilvægt mark, bæði fyrir hann og liðið.

Varamaðurinn Ben Davies skoraði síðan þriðja markið í uppbótartíma og gulltryggði sigurinn eftir smá pressu frá Coventry undir lokin.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira