Innlent

Skjálfti fannst á höfuð­borgar­svæðinu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Veðrið leit ekkert sérlega illa út við Höfða í Reykjavík í morgun.
Veðrið leit ekkert sérlega illa út við Höfða í Reykjavík í morgun. Vísir/Sigurjón

Jarðskjálfti fannst víða um höfuðborgarsvæðið nú um klukkan tuttugu mínútur í eitt eftir miðnætti. Hann fannst bæði í vesturbæ Reykjavíkur, Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði og á Álftanesi svo dæmi séu tekin.

Bjarki Friis, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir fyrstu mælingar benda til þess að skjálftinn hafi átt upptök sín austur af Kleifarvatni og hafi verið um 3,8 að stærð. Nokkrir eftirskjálftar hafi fylgt í kjölfarið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×