Leik lokið: KR - Fram 2-2 | Gestirnir jöfnuðu á síðustu stundu

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Ernir20260508_DSF8085
Vísir/Ernir

KR og Fram gerðu 2-2 jafntefli er liðin mættust í sjöundu umferð Bestu-deildar karla í knattspyrnu í kvöld.

Þrátt fyrir að fyrri hálfleikur hafi ekki beint boðið upp á mörg færi var hann hin mesta skemmtun. Bæði lið buðu upp á mikinn hraða og skiptust á að sækja að marki andstæðinganna.

Heimamenn í KR voru líklega ögn líklegri til að brjóta ísinn í leik kvöldsins. Það voru þó gestirnir í Fram sem urðu fyrri til þegar Brasilíumaðurinn Fred fékk boltann á miðjum vallarhelmingi KR-inga og fékk að skokka óáreittur inn á teig. Hann þakkaði pent fyrir sig með því að leggja boltann í fjærhornið og koma Fram í forystu á 41. mínútu.

Forysta Framara entist þó ekki lengi því aðeins fimm mínútum síðar voru heimamenn búnir að jafna metin. Boltinn barst þá inn á teiginn þar sem Viktor Freyr Sigurðsson, markvörður Fram, sló hann út. Þar tók Aron Sigurðsson snyrtilega við honum og vippaði boltanum svo skemmtilega yfir Viktor sem kom í úthlaupið.

Staðan því 1-1 þegar flautað var til hálfleiks og liðin gengu til búningsherbergja.

Síðari hálfleikur bar svo nokkuð svipaður þeim fyrri, að því leyti að hvorugu liðinu gekk vel að skapa sér færi.

Liðin skiptust á að koma sér í stöður í kringum vítateig andsætðinganna og lengi vel voru Framarar líklegri til afreka, En KR-ingar sóttu í sig veðrið eftir því sem leið á leikinn.

Þriðja mark leiksins leit svo loksins dagsins ljós á 84. mínútu þegar Amin Cosic dansaði með boltann meðfram endalínunni og renndi honum fyrir markið. Þar mætti Luke Rae einn og óvaldaður á fjærstöngina og skilaði boltanum í autt markið.

Við þetta þurftu Framarar að færa sig framar á völlinn til að reyna að stela í það minnsta stigi. Gestunum tókst að jafna metin á síðustu mínútu venjulegs leiktíma þegar Sigurjón Rúnarsson kom boltanum yfir línuna eftir darraðardans á teignum.

Niðurstaðan því 2-2 jafntefli í hörkuleik. Líklega sanngjörn niðurstaða, en hvorugt liðið ánægt.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira