„Hælspyrnur hér og þar og taka gríðarlega sénsa“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 17. maí 2026 21:38 Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram. Vísir/Diego Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, var nokkuð sáttur með frammistöðu sinna manna er liðið gerði 2-2 jafntefli gegn KR í 7. umferð Bestu-deildar karla í kvöld.
Framarar náðu að jafna metin á síðustu mínútu venjulegs leiktíma og Rúnar segir að niðurstaðan hafi verið sanngjörn. „Já, ég held það bara, sérstaklega eftir að þeir komast yfir. En það er skrýtið að koma hérna og vera hálf svekktur að hafa ekki unnið, en við gerðum kannski ekki nóg til þess,“ sagði Rúnar. „Mér fannst við eiga fullt af tækifærum til að særa þá meira en við gerðum og í fyrri hálfleik eigum við nokkrar mjög hættulegar skyndisóknir þar sem við náum að spila okkur í gegn, en síðasta sendingin klikkar. Í seinni hálfleik eigum við allt of mikið af feilsendingum þegar við höfum séns á að brjóta okkur í gegnum vörnina. Kannski vantaði smá upp á orkustigið til að komast í gegn. Það er svona það sem ég er fúll yfir því mér fannst við ekkert vera frábærir í kvöld.“ Hann segir engan mun á því að stilla upp leik gegn KR og öðrum liðum, þrátt fyrir að nokkrir KR-ingar hafi bent á mikinn hæðarmun þessarra liða. „Það er ekkert vandamál. Þú getur nýtt þér það til góðs og Óskar getur líka gert það með sína litlu gæja. Það er erfitt að vera stór og verjast litlum gæjum. Einhvernveginn reynir maður að jafna þetta út. Við gátum reynt að nýta föstu leikatriðin og við skorum úr einu svoleiðis í restina. Við erum með hærra lið en þeir, en þeir voru reyndar búnir að hækka sitt töluvert því það voru komnir tveir stórir gæjar inn á hjá þeim.“ „En það skiptir engu máli. Við erum stórir og sterkir og með mikinn hraða í okkar liði þannig við getum brugðið okkur í allra kvikinda líki.“ Þá var Rúnar heilt yfir ánægður með varnarleik sinna manna í kvöld, gegn KR-liði sem hafði skorað 25 mörk í fyrstu sex leikjum tímabilsins. „Þeir skapa sér voðalega lítið, en þeir eru hættulegir í sínum sóknaraðgerðum. Þeir spila boltanum inn í svæði sem kannski önnur lið eru ekki að gera. Eru að taka einhverjar hælspyrnur hér og þar og taka gríðarlega sénsa í sínum sóknarleik. Það sem ég er svekktur með er að þegar við vinnum boltann þá missa þeir marga leikmenn út úr leiknum og við eigum þá blússandi skyndisóknarmöguleika, en sendum þá lélegar sendingar og náum ekki að búa til betri skyndisóknir en við gerðum í kvöld. En þetta er bara leikur KR í sumar og í fyrra. Óskar vill spila svona. Það fara allir fram og það er þríhyrningaspil hér og þar og þeir eru frábærir í þessu. Ef þú nærð ekki að refsa þeim þá skora þeir alltaf tvö eða þrjú mörk.“ Þrátt fyrir að hafa aðeins fengið eitt stig út úr leiknum í kvöld er Rúnar þó ánægður með stigasöfnun liðsins hingað til. „Engin spurning. Við erum á fínum stað og erum að gera góða hluti. Það er gott að koma hingað og taka stig þó það sé skrýtið að vera hálf svekktur að hafa ekki unnið leikinn. En sanngjörnustu úrslitin voru kannski jafntefli.“ „Það var kannski minna um færi en í flestu leikjum þessarra beggja liða og kannski aðeins færri mörk þó þau hafi nú verið fjögur. En þú vilta ekki vera að fá á þig endalaust af mörkum. Við þurfum að loka fyrir það og það var erfitt að loka á KR í kvöld. Þú sem þjálfari ert alltaf ósáttur því fyrra markið fannst mér alveg galið að fá á okkur og seinna markið í rauninni líka. En í fyrra markinu fannst mér við eiga að gera miklu betur og fara inn í hálfleikinn 1-0 yfir. En svona er þetta, þú gerir alltaf einhver mistök á leiðinni og við getum alltaf fundið eitthvað að einhverju. En heilt yfir er eitt stig hér bara mjög gott,“ sagði Rúnar að lokum.
Besta deild karla Fram KR Mest lesið Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Sjá meira