Hera verður ástkona JFK Magnús Jochum Pálsson skrifar 30. mars 2026 13:04 Hera Hilmarsdóttir mun leika Ingu Arvad í þáttunum Kennedy. Íslenska leikkonan Hera Hilmarsdóttir mun leika Ingu Arvad, danskan blaðamann sem átti í ástarsambandi við JFK, í nýrri þáttaröð um uppgang Kennedy-fjölskyldunnar á síðustu öld og hvernig John F. Kennedy komst úr skugga eldri bróður síns.
Þáttaröðin mun heita Kennedy, samanstendur af átta þáttum og verður sýnd á Netflix. Danski leikstjórinn Thomas Vinterberg, sem er þekktastur fyrir að leikstýra Druk (2020), Jagten (2012) og Festen (1998), er leikstjóri og yfirframleiðandi seríunnar. Þættirnir byggja á ævisögunni JFK: Coming of Age in the American Century, 1917-1956 eftir Fredrik Logevall þar sem ævi Bandaríkjaforsetans er rakin frá uppvaxtarárum hans og fram að mislukkuðu varaforsetaframboði árið 1956. Þættirnir fjalla um ástir, deilur og harmleiki innan Kennedy-fjölskyldunnar og hvernig hjónin Joseph og Rose Kennedy klifu upp metorðastigann á fjórða áratugnum. Fasbender verður Joseph Kennedy eldri. Þýsk-írski leikarinn Michael Fassbender leikur Joseph P. Kennedy eldri og hin norður-írska Laura Donnelly leikur Rose Kennedy. Bræðurnir Joe Kennedy og Jack Kennedy eru svo leiknir af hinum minna þekktari Nick Robinson og Joshuah Melnick. Með önnur hlutverk í þáttunum fara Imogen Poots, Wyatt Russell, Patrick Fischler, Eddie Marsan og Hera Hilmarsdóttir. Hera leikur einn áhugaverðasta karakter þáttanna, dansk-bandaríska blaðamanninn Ingu Arvad sem kynntist JFK í byrjun fimmta áratugarins, átti í stuttu ástarsambandi með honum og var grunuð um að vera njósnari fyrir Þjóðverja. John F. Kennedy, nýkjörinn Bandaríkjaforseti, með fjölskyldu sinni heima hjá föður sínum.Getty Einn fárra Skandínava sem tók viðtal við Hitler Inga Marie Arvad Petersen fæddist 6. október 1913 í Kaupmannahöfn, lærði blaðamennsku við Columbia-háskóla í New York og flutti svo til Washington D.C. þar sem hún hjá Washington Times-Herald. Inga kynntist þar John F. Kennedy, þá ungum manni sem vann hjá bandaríska sjóhernum, gegnum systur hans Kathleen, sem vann við sama blað. Inga Arvad var valin Ungfrú Danmörk árið 1931.Getty Inga hafði nokkrum árum fyrr farið sem sjálfstæður blaðamaður til Þýskalands árið 1935 og skúbbað því að Hermann Göring væri að fara að giftast leikkonunni Emmy Sonnemann. Í kjölfarið fékk hún boð í brúðkaup þeirra og reddaði þar viðtali við Hitler gegnum Goebbels. Arvad var ein af fáum Skandínövum sem tók viðtal við Hitler, ræddi nokkrum sinnum við leiðtogann og var síðan gestur hans á Ólympíuleikunum 1936. Í seinni heimsstyrjöldinni var Arvad grunuð um vera nasisti og njósnari fyrir Þjóðverja en var metin saklaus eftir rannsókn Alríkislögreglunnar. Rannsóknin leiddi þó til þess að Kennedy var færður til í starfi og settur í skrifstofustarf í Suður-Karólínu. Inga varð bandarískur ríkisborgari 1945, vann sem handritshöfundur fyrir MGM og slúðurdálkahöfundur í Hollywood, giftist bandaríska vestraleikaranum Tim McCoy og eignaðist með honum tvo syni. Arvad lést árið 1973 úr krabbameini, aðeins sextíu ára gömul.
Bíó og sjónvarp Bandaríkin Danmörk Seinni heimsstyrjöldin Þýskaland Hollywood Mest lesið Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Lífið Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York Lífið Opnar sig um kvíða og þunglyndi Lífið „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Lífið Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Lífið Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Lífið Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Lífið Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls Lífið Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Lífið Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Lífið Fleiri fréttir Endurlífguðu Kilmer með gervigreind fyrir fornleifamynd „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Cruise tekur á loft í þriðja sinn Gaylord Focker deyr ekki drottni sínum Joy Harmon er látin Höfði í stóru hlutverki í æsispennandi stiklu Tæplega helmingur tilnefndra leikara til Eddunnar erlendur Leikarinn Michael Patrick látinn eftir baráttu við MND Ólétt af fyrsta barni ári eftir andlát fyrrverandi Rúrik í næstvinsælustu Netflix mynd í heimi Hugmyndir að hámhorfi um páskana Hera verður ástkona JFK Margt að sjá í nýrri stiklu fyrir þættina um Harry Potter Colbert skrifar handrit nýrrar myndar úr Hringadróttinssögu Stjarna úr Married at First Sight látin Chuck Norris er látinn Breyta Reykjavík í kvikmyndagallerí út mánuðinn Chuck Norris lagður inn á spítala Spacey sleppur við dómsalinn með sátt við þrjá menn Senn kemur Zendaya: Sturlaðar stiklur fyrir Dune III og Köngulóarmanninn Færðu Penn Óskar fyrst hann missti af hátíðinni Sjöunda jafnteflið á 98 árum Bæði fyrsta konan og svarta manneskjan til að vinna One Battle After Another bar sigur úr býtum Hulunni svipt af Taskmaster Hvernig fer Óskarinn? Teboð með Ryan Gosling og helstu skvísunum í Smárabíói Rapparar slíðruðu sverðin á galaforsýningu Stikla úr Jóhönnu af Örk Gagnrýndi Tarantino fyrir n-orðið og fékk gusuna yfir sig Sjá meira