Tilbúinn að bjarga Tottenham: „Kranjcar, Crouchy og Defoe koma allir aftur“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. mars 2026 11:46 Harry Redknapp er enn í miklum metum hjá stuðningsmönnum Tottenham. getty/Bradley Collyer Harry Redknapp hefur enn sterkar taugar til Tottenham og er tilbúinn að koma liðinu til aðstoðar í þeirri afar erfiðu stöðu sem það er í.
Tottenham hefur tapað sex leikjum í röð í öllum keppnum og er aðeins einu stigi frá fallsæti í ensku úrvalsdeildinni. Thomas Frank var rekinn sem knattspyrnustjóri Spurs fyrir um mánuði og við tók Igor Tudor. Hagur Tottenham hefur ekkert vænkast eftir að Króatinn tók við, liðið hefur tapað öllum fjórum leikjunum undir hans stjórn og ekki er gert ráð fyrir að hann verði mikið lengur í starfi. Redknapp stýrði Tottenham á árunum 2008-12 og á Cheltenham Cup-veðreiðunum í gær var hann spurður hvort hann gæti snúið aftur til liðsins og bjargað því frá falli. „Þetta er stór áskorun. Þarf ég þessa pressu á þessum stað í lífinu? Af hverju ekki? Ég er klár. Ég er ekki of gamall og í góðu formi. Ef þeir spyrja mig tel ég að ég geti gert góða hluti,“ sagði Redknapp sem er 79 ára. „Kranjcar, Crouchy og Defoe koma allir aftur. Það verður framlínan á laugardaginn,“ bætti Redknapp við í léttum dúr. Þeir Niko Kranjcar, Peter Crouch og Jermain Defoe voru meðal þörfustu þjóna Redknapps, bæði hjá Tottenham og Portsmouth. Undir stjórn Redknapps komst Spurs í úrslit deildabikarsins 2009 og átta liða úrslit Meistaradeildar Evrópu 2011. Tottenham sækir Englandsmeistara Liverpool heim klukkan 16:30 á morgun. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn Sport. Að leik loknum verður 30. umferð ensku úrvalsdeildarinnar gerð upp í Sunnudagsmessunni.
Enski boltinn Tottenham Hotspur Mest lesið Infantino boðar neyðarfund Fótbolti Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn Mudryk fær séns til að sanna sig á ný Enski boltinn „Það er erfitt að eiga við okkur“ Íslenski boltinn „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn Sakar Infantino um fjárkúgun Fótbolti Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Íslenski boltinn Fleiri fréttir Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Arsenal nálgast kaup á Guimaraes Metfjöldi nýrra þjálfara Henderson genginn í raðir Chelsea Chelsea kaupir strákinn sem Bellingham sló og skoraði á móti Íslandi Sjáðu mörkin og kennslustundina sem Liverpool fékk frá Leeds í seinni Newcastle hafnar tilboði Arsenal í Guimaraes Mátti ekki klæða sig við hlið hinna leikmanna Man. Utd. Þjálfari Man Utd hættir mánuði fyrir mót Finnst Maresca vera fullkominn fyrir City Hló er hann var spurður út í Vinícius Júnior „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Fyrsta mark Tonali í sigri á Chelsea Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Newcastle borgar meira en einn og hálfan milljarð til að fá Jaissle Chelsea sleppur við stigafrádrátt en fær háa sekt Leikmenn Liverpool rifust um fyrirliðabandið Arbeloa sækir fyrrum lærisveina úr akademíu Real Madrid Telur að Vinícius Júnior sé að spila með Arsenal Chelsea kaupir Lacroix fyrir rúmlega fimmtíu milljónir punda Jaissle líklegastur til að taka við af Howe Howe hættur hjá Newcastle Rio Ngumoah tryggði Liverpool sigur Welbeck verður sá fyrsti í fjögur ár Enska deildin mun taka hart á platmeiðslum markvarða Dyche segir að Heiðar hafi verið sá lélegasti á æfingum Sjá meira