Uppgjör: ÍA-Stjarnan 0-3 | Stjarnan upp í þriðja sætið eftir sigur á botnliðinu Pálmi Þórsson skrifar 22. júní 2025 21:20 Stjörnumenn gerðu góða ferð upp á Skaga og unnu botnliðið örugglega. Vísir/Diego Stjarnan gerði góða ferð á Akranes er þeir lögðu Skagamenn 3-0 í fjörugum leik. Eins og hefur verið ritað um þá var Jón Þór Hauksson látin taka pokann sinn sem þjálfari ÍA fyrir helgi og Lárus Orri Sigurðsson ráðin. Hins vegar var það Dean Martin sem stýrði Skaganum í kvöld. Leikurinn fór hægt af stað. Stjarnan hélt í boltann með ÍA beitti góðum skyndisóknum þegar þeir unnu boltann eða fóru strax leið eitt sem ýmislegt gat komið upp úr en engin alvöru færi í aðra hvora áttina. En síðan á 41. mínútu kom sending inn á teig beint á Benedikt Warren sem var aleinn og kláraði virkilega vel og staðan 0-1 rétt fyrir hálfleik. Skagamenn komu út með látum úr hléi og sóttu stíft að marki Stjörnumanna. Ómar byrjaði á því að spæna upp kantinn. Henda svo í þríhyrnings spil við Marko Vardic en setti boltann framhjá markinu. Stuttu seinna átti Rúnar Már Sigurjónsson frábæran bolta fyrir en bjargað var á línu. Tvö dauðafæri og voru Skagamenn orðnir líklegir að jafna leikinn. Stjarnan fór síðan í sókn hinu megin, Benedikt Warren með góðan bolta fyrir sem Árni Marino ákveður að hoppa út og kýla en það endaði ekki betur en svo að boltinn fór í Baldvin Þór og í markið. Staðan því orðin 0-2 og svo 0 -3 einungis þremur mínútum seinna. Þetta reyndust vera lokatölur þó svo að Skagamenn hafi reynt að koma til baka. Atvik leiksins Atvik leiksins verða að vera kaflinn sem réði úrslitum leiksins. Það er að Skagamenn liggja í sókn strax í fyrri hálfleik en fá svo tvö mörk á sig í staðin. Stjörnur og skúrkar Það er erfitt að nefna eina Stjörnu í kvöld. Benedikt Warren var frábær á kantinum. Árni Snær átti mjög góðan leik í markinu á meðan að Samúel Kári stýrði spilinu í hafsentinum. En skúrkurinn að þessu sinni er Árni Marino því þegar hann kýlir boltann í Baldvin Þór og þeir fá á sig annað markið þá kastaði hann leiknum í tunnuna. Dómarar Gunnar Freyr átti fínan leik á flautunni. Kristján Már og Eysteinn voru með flöggin en Helgi Mikael var aðallega í því að róa niður bekkinn hjá Skagamönnum. Stemming og umgjörð Stemmingin á vellinum var allt í lagi en þeir sem sjá um umgjörðina voru mest svekktir yfir því að ekki var hægt að spila leikinn á laugardegi eða föstudegi og smalað öllum keppendum á Norðurálsmótinu á völlinn. Jökull Elísabetarson er þjálfari Stjörnunnar.Vísir/Diego Jökull: Vitum nákvæmlega á hvaða leið við erum Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, var hæstánægður með sigurinn í kvöld „Vorum að koma í erfiðan leik. Það er mikið varið í þetta Skagalið. Þannig ég átti von á erfiðum leik. Við vorum lengi að brjóta þá. Við komumst í einhver færi og vorum svona að ógna en við vorum lengi að brjóta þá eins og ég sagði. Var bara erfitt. Við þurftum að hafa mikið fyrir þessu. Við þurftum að verja markið okkar. Þeir komust í góð færi líka. Þótt þetta hafi endað í 3 - 0 og við fengið svona mörg dauðafæri í lokin þá var meirihlutinn af leiknum ekki þannig og ég er mjög ánægður með þennan sigur,” sagði Jökull. Leikurinn var einmitt í járnum þangað til að annað og þriðja markið kom og þá voru úrslitin eiginlega ráðin. „Þegar það er komið í 3-0 þá er þetta auðvitað erfitt fyrir þá. En það var mikið eftir og við vorum smá kærulausir. Gabríel gerir frábærlega þarna í einu skipti og hefði getað skorað. Virkilega flottur og öflugur leikmaður. En auðvitað erfitt líka á svona velli að sækja þetta. Þannig mér fannst þetta komið í 3-0 en samt erfiður leikur,” sagði Jökull. Eftir þennan sigur eru Stjarnan í þriðja sæti sex stigum frá toppnum og halda áfram að safna punktum án þess að mikið hafi farið fyrir því. „Við vitum nákvæmlega á hvaða leið við erum og mikill stígandi í liðinu. Mikil gæði í þessu liði og mikil liðsheild. Þetta er bara uppskrift af liði sem getur gert vel,” sagði Jökull. Dean Martin var búinn að vinna tvo fyrstu leikina sem hann stýrði í sumar.@ia_akranes Dean Martin: Þetta er mjög súrt Dean Martin stýrði Skagaliðinu í kvöld en hann var svekktur með súrt tap. „Bara eins og þessi vika er búin að vera. Mjög sorglegt að tapa 3-0 á heimavelli er ekki í boði,” sagði Dean Martin. „Þetta er mjög súrt. Við fáum tvö góð færi strax eftir fyrri hálfleik. Mér Fannst við koma mjög vel út í seinni hálfleik. En það gerist í þessari stöðu þegar þú klárar ekki færin á móti liði eins og Stjörnunni sem er mjög vel spilandi lið. Þér er bara refsað,” sagði Dean. En eins og hann sagði strax að þá hefur þessi vika verið mjög súr. Jón Þór Hauksson látin fara og Lárus tekur við og stýrir liðinu í næsta leik. Hvernig horfir restin af sumrinu við Skagamönnum? „Það verður bara að koma í ljós. Búið að vera mikið að gera síðustu daga. Búið að vera upp og niður. Við verðum bara að koma til baka. Við verðum bara að vera sterkari og gera okkar besta,” sagði Dean Martin að lokum, Besta deild karla ÍA Stjarnan