Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG

Sindri Sverrisson skrifar
Desire Doue átti ríkan þátt í sigri PSG og fagnar hér marki sínu gegn Manchester City.
Desire Doue átti ríkan þátt í sigri PSG og fagnar hér marki sínu gegn Manchester City. Getty/Ryan Pierse

Evrópumeistarar PSG unnu frábæran 4-2 útisigur gegn Manchester City í stórleik kvöldsins í Meistaradeild Evrópu í fótbolta.

PSG komst í 3-0 strax í fyrri hálfleiknum. Eftir að Rayan Cherki hafði viljað fá vítaspyrnu og Matvey Safonov verið nálægt því að skora sjálfsmark þegar hann sló boltann í þverslána á eigin marki þá settu gestirnir frá París í túrbógír.

Désire Doué skoraði fyrsta markið á 13. mínútu og lagði svo upp skallamark Ousmane Dembélé tveimur mínútum síðar. Vitinha bætti svo við þriðja markinu eftir frábæran samleik á 32. mínútu.

Þetta var í fyrsta sinn frá því í janúar 2012 sem að City er þremur mörkum undir í hálfleik á heimavelli.

Erling Haaland minnkaði muninn snemma í seinni hálfleik með frábærum skalla en Maghnes Akliouche svaraði því með skrautlegu marki. Gianluigi Donnarumma varði skot hans en boltinn fór hátt upp í loft og endaði rétt fyrir innan marklínuna.

Josko Gvardiol var hársbreidd frá því að skora annað mark City með skalla eftir hornspyrnu en Nuno Mendes bjargaði á marklínu, áður en Enzo Fernandez átti svo þrumuskot í samskeytin og framhjá. 

Haaland átti svo skalla í þverslána en tókst að skora sitt annað mark á 75. mínútu. Hann var auk þess afar nálægt því að fullkomna þrennuna á 83. mínútu þegar hann renndi sér á fyrirgjöf frá hægri en Safonov varði naumlega.

PSG fékk svo vítaspyrnu undir lokin þegar Matheus Nunes braut á Nuno Mendes en Donnarumma varði vítið auðveldlega frá Ferran Torres.

PSG hefur því unnið fyrstu tvo leiki sína í titilvörninni en City er með einn sigur og eitt tap.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira