Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Siggeir Ævarsson skrifar 24. nóvember 2024 19:23 Kylian Mbappe fann netið í kvöld Vísir/Getty Real Madrid heldur pressunni áfram á topplið Barcelone í spænsku úrvalsdeildinni en liðið vann þægilegan 0-3 sigur á Leganés í kvöld.
Það tók gestina dágóða stund að brjóta niður varnarmúr heimamanna en á 43. mínútu brotnaði hann nokkurn veginn bókstaflega. Varnarmenn Leganés voru kærulausir með boltann rétt við eigin vítateig og endaði hann í fótum Viní Jr sem lagði upp galopið færi fyrir Mbappe sem afgreiddi boltann örugglega í netið. Federico Valverde tvöfaldaði svo forskotið á 66. mínútu og Jude Bellingham rak svo smiðshöggið á 0-3 sigur liðsins með marki á 85. mínútu eftir klaufagang í teig Leganés eftir hornspyrnu. Bellingham, sem var 19 marka maður í deildinni í fyrra, var að skora sitt annað mark það sem af er vetri. Úrslitin þýða að Real Madrid er aðeins fjórum stigum á eftir toppliði Barcelona og á leik til góða. Liðið hefur aðeins tapað einum leik það sem af er tímabili, einmitt gegn Barcelona þann 26. október þegar liðið steinlá 0-4 á heimavelli.
Spænski boltinn Fótbolti Mest lesið Benedikt í bann Körfubolti „Þetta er ástæðan fyrir því að maður er í þessu“ Körfubolti Þriðji stóri heimasigur Bournemouth á tímabilinu Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Haukar 97-104 | Fyrsti sigur Hauka í vetur staðreynd Körfubolti Orri pottþéttur gegn Berlínarrefunum Handbolti „Lið með hæfileikana til að spila í úrslitakeppni“ Körfubolti Uppgjörið: Njarðvík - Grindavík 94-87 | Njarðvíkingar stóðust áhlaup Grindvíkinga Körfubolti „Sá staður sem ég vildi mest snúa aftur til og spila áður en ég hætti“ Körfubolti Stelpurnar hans Þóris unnu Dani Handbolti „Við vorum sjálfum okkur verstir“ Handbolti Fleiri fréttir Þriðji stóri heimasigur Bournemouth á tímabilinu Fulham upp í sjötta sætið Fær Úlfaleikinn til bjarga starfinu Framkvæmdastjóraskipti hjá Val Hver snjóbolti kostaði fimmtíu þúsund Verið meiddur í fjögur og hálft ár Ronaldo skaut til baka: „Hver er þessi náungi?“ Spilaði tímamótaleik en endaði í óvinsælum hóp með Carra og Faes Nicolas Jover er nýja hetjan hjá Arsenal Fyrsta skóflustunga tekin og KR spilar á gervigrasi Ten Hag gæti orðið samstarfsmaður Klopp Liðsfélagi Alberts laus af gjörgæslu Veikindin breyttu sýn Arnórs á lífið: „Þetta var algjör viðbjóður“ Leikmaðurinn sem Ísland missti ætlar sér að vinna Gullknöttinn „Aldrei verið nein vandamál hjá okkur Pep“ „Föstu leikatriðin drápu leikinn“ Albert sneri aftur og skoraði í vítakeppninni Fyrsti sigur Villa í níu leikjum Mbappé klúðraði aftur víti og Real Madrid tapaði Hornspyrnur Arsenal gerðu gæfumuninn gegn United Rautt fyrir hártog og sami maður með tvö sjálfsmörk Loksins vann City Salah með tvö en Kelleher gaf jöfnunarmark undir lokin Stjarnan kaupir Benedikt frá Vestra Dregið í riðla fyrir HM félagsliða sem verður sýnt ókeypis Van Dijk boðinn nýr samningur „Haldið þið að ég vilji ekki nota Kevin?“ Damir spilar með liði frá Brúnei Leikmaður Man. United neitaði að klæðast regnbogalituðum jakka Fékk ekki að fara inn á út af pínlegu klúðri Sjá meira