Manchester United slapp með skrekkinn

Siggeir Ævarsson skrifar
Carlton Morris skorar framhjá Andre Onana sem var kominn í skrautlega stöðu
Carlton Morris skorar framhjá Andre Onana sem var kominn í skrautlega stöðu Vísir/Getty

Luton tók á móti Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í dag. United fékk sannkallaða draumabyrjun þegar Rasmus Højlund skoraði strax á 1. mínútu og varð þar með yngsti leikmaðurinn í sögu deildarinnar til að skora í sex leikjum í röð.

Højlund var svo aftur á ferðinni sex mínútum síðar þegar hann stýrði skoti frá Alejando Garnacho í netið með bringunni en skotið virtist vera á leið framhjá. Heimamenn létu þessa byrjun United þó ekki slá sig út af laginu og strax á 14. mínútu minnkaði Carlton Morris muninn eftir glundroða í teig United.

Þrátt fyrir þessa fjörugu byrjun komu ekki fleiri mörk í þennan leik en ekki vantaði færin. Bæði lið sóttu mikið og fengu fjölmörg færi. Það verður ekki tekið af Luton að leikmenn liðsins lögðu líf og sál í þennan leik en vantaði töluvert upp á sóknargæðin til að klára sín færi.

Leikmenn Manchester United fengu nokkur sannkölluð dauðafæri til að gera út um leikinn en brást ítrekað bogalistin. Þeir hefðu eflaust nagað sig hressilega á handabökin ef Luton hefðu jafnað leikinn en sluppu með skrekkinn og öll þrjú stigin að þessu sinni. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira