Tónlist

Palestínumaðurinn Bashar Murad keppir í Söngva­keppninni

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Bashar Murad keppir í Söngvakeppni sjónvarpsins.
Bashar Murad keppir í Söngvakeppni sjónvarpsins. Vísir/Vilhelm

Palestínski tónlistarmaðurinn Bashar Murad mun keppa í Söngvakeppni sjónvarpsins. Murad er landsmönnum kunnugur en hann gaf út lag með hljómsveitinni Hatara, eftir Eurovision ævintýri sveitarinnar í Tel Aviv árið 2019.

Öruggar heimildir fréttastofu herma að hann muni stíga á svið í söngvakeppninni, sem hefst 17. febrúar næstkomandi á RÚV. Keppendurnir verða kynntir til leiks næstkomandi laugardag, 27. janúar, og ríkir mikil leynd um hverjir taka þátt eins og hefð segir til um. 

Þó ríkir ekki meiri leynd en svo um málið að nýlega tók Unnsteinn Manuel Stefánsson, einn kynna Söngvakeppninnar, viðtal við Bashar Murad í Vesturbæjarlauginni. Heyrðist Murad segja frá því að hann væri á landinu vegna háleynilegs verkefnis, sem hann gæti ekki greint nánar frá að svo stöddu. 

Murad hefur nokkur tengsl við íslenska Eurovision-menningu en hann gaf út lag með Eurovision-keppendunum í Hatara í kjölfar keppnisferðar þeirra í Tel Aviv. 

Eins og frægt er orðið keppti Hatari fyrir Íslands hönd í Eurovision í Tel Aviv árið 2019 með laginu Hatrið mun sigra. Lagið og atriðið eitt og sér vakti mikla athygli en ekki síst gjörningur Hatara á úrslitakvöldinu, þegar sveitin dró fram palestínska fánann í beinni útsendingu til að sýna Palestínumönnum stuðning. 

Aðeins nokkrum dögum eftir úrslitakvöldið í Tel Aviv gaf Hatari út nýtt lag með palestínska popplistamanninum Bashar Murad. Lagið heitir Klefi/Samed (صامد). Murad er hingsegin listamaður og býr í austurhluta Jerúsalem. Í umfjöllun fréttastofu um útgáfu lagsins á sínum tíma segir að hann semji bæði lög og texta og reyni með list sinn að mölva staðalímyndir og ögra þeirri mynd sem sífellt sé dregin upp af Palestínumönnum. 

Í viðtali sem Murad veitti fréttastofu eftir útgáfu lagsins sagði hann mikilvægt fyrir fólk að heyra hvernig lífi Palestínumenn lifi. Hversdagslegt líf þeirra sé bæði venjulegt og óvenjulegt á sama tíma. Þá hafi komið honum á óvart hversu vel Íslendingar eru að sér í málefnum Palestínumanna.

Þess má geta að í reglum Söngvakeppninnar er sett það skilyrði að öll lög skuli flutt á íslensku í forkeppninni en að þau lög sem komist áfram í úrslitin skuli flutt á því tungumáli sem höfundur hyggist flytja lagið á í Eurovision. 

Murad er eini keppandinn sem vitað er um en alls taka tíu þátt í Söngvakeppninni - fimm í fyrri undankeppninni og fimm í þeirri seinni. Rúnar Freyr Gíslason, framkvæmdastjóri keppninnar, segir í samtali við fréttastofu að einn af þeim tíu, sem var valinn til að taka þátt, hafi afþakkað boðið í lok síðasta árs. Þrátt fyrir það taki tíu þátt svo einhverjum hefur verið boðið að fylla í skarðið.

Bashar Murad svaraði ekki fyrirspurn fréttastofu um þátttöku hans í keppninni í dag. Þá vildi Rúnar Freyr Gíslason, framkvæmdastjóri keppninnar, ekki tjá sig um málið í samtali við fréttastofu.


Tengdar fréttir

Grunar að palestínskur söngvari keppi í Söngvakeppninni

Tónlistarkonuna Ágústu Evu Erlendsdóttur grunar að palestínskur tónlistarmaður taki þátt í Söngvakeppni sjónvarpsins í ár. Það sé ástæða þess að Ríkisútvarpið ætli ekki að taka ákvörðun um þátttöku í Eurovision fyrr en niðurstöður Söngvakeppninnar liggja fyrir. Palestínski tónlistarmaðurinn Bashar Murad hefur verið nefndur sem keppandi. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×