Íslenski boltinn

KR-ingar skoruðu fimm mörk hjá Val og byrja vel undir stjórn Ryder

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kristján Flóki Finnbogason er kominn með þrjú mörk í Reykjavíkurmótinu.
Kristján Flóki Finnbogason er kominn með þrjú mörk í Reykjavíkurmótinu. vísir/bára

KR vann 5-2 sigur á Val í Reykjavíkurmóti karla í fótbolta í Egilshöllinni í dag en leikurinn fór fram á mjög óvenjulegum tíma eða klukkan 11.00 á virkum degi.

KR-ingar eru að byrja vel undir stjórn Gregg Oliver Ryder en liðið vann 4-2 sigur á Fram í sömu keppni fyrir fimm dögum.

Tveir sigrar og níu mörk í tveimur fyrstu leikjunum boða vissulega góða tíma í Vesturbænum á komandi sumri.

Það skiptir líka máli fyrir KR ef Kristján Flóki Finnbogason ætlar að komast aftur í gang.

Kristján Flóki var með tvö mörk og eina stoðsendingu í leiknum í dag. Benoný Breki Andrésson kom inn af bekknum og skoraði tvö mörk í seinni hálfleiknum en fyrsta mark KR-liðsins skoraði Ægir Jarl Jónasson.

Birkir Heimisson og Guðmundur Andri Tryggvason skoruðu mörk Valsmanna sem höfðu unnið 7-1 sigur á Þrótti í sínum fyrsta leik.

Luke Morgan Conrad Rae skoraði tvö mörk í sigrinum á Fram en var með tvær stoðsendingar í leiknum í dag. Hann er leikmaður sem KR-ingar eiga inni frá því síðasta sumar þegar hann fékk ekki mörg tækifæri.

Kristján Flóki skoraði líka fjórða mark KR-inga í 4-2 sigri á Fram og er því kominn með þrjú mörk í fyrsti tveimur leikjum liðsins á undirbúningstímabilinu.

Upplýsingar um markaskorara eru fengnar frá vefsíðunni fótbolti.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×