Veður

Smá­lægðir og lægða­drög á sveimi við landið

Atli Ísleifsson skrifar
Frost á landinu verður víða núll til sjö stig, en frostlaust með suðurströndinni.
Frost á landinu verður víða núll til sjö stig, en frostlaust með suðurströndinni. Vísir/Vilhelm

Smálægðir og lægðadrög eru nú á sveimi við landið og verður fremur hæg suðvestlæg átt ríkjandi. Það verður þurrt að kalla norðaustanlands, en annars staðar él á víð og dreif.

Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að það verði vaxandi vestanátt og efnismeiri él seint í kvöld og nótt, einnig áfram á morgun, en úrkomulaust að kalla eystra.

Það mun svo draga heldur úr vindi og éljum annað kvöld. Frost á landinu verður víða núll til sjö stig, en frostlaust með suðurströndinni.

„Á miðvikudag er búist við lægðardragi frá Grænlandhafi, sem hreyfist norðaustur yfir landið. Hvessir þá talsvert úr austri og fer að snjóa, en hlýnar jafnframt þ.a. rignir við suðurströndina. Þegar lægðadragið er komi yfir Norður- og Austurland, snýst í stífa vestan- og norðvestanátt með éljagangi og kólnar í veðri,“ segir á vef Veðurstofunnar.

Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag: Vestan og norðvestan 8-15 m/s og él, en þurrt að kalla austantil. Úrkomuminna síðdegis. Frost 0 til 8 stig, minnst syðst.

Á miðvikudag: Gengur í austlæga átt, 8-15 m/s með snjókomu, en slyddu eða rigningu syðst og heldur hlýnandi veðri. Snýst í norðan- og norðvestanátt með éljagangi seinnipartinn og kólnar aftur.

Á fimmtudag: Norðan og norðvestan 8-15 m/s og éljagangur eða snjókoma, en bjart með köflum sunnan heiða. Talsvert frost.

 Á föstudag (vetrarsólstöður), laugardag (Þorláksmessa) og sunnudag (aðfangadagur jóla):

Útlit fyrir áframhaldandi norðlæga átt með éljum víða um land, en bjartviðri syðra. Harðnandi frost.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×