Fótbolti

Einkunnir Íslands gegn Þýskalandi: Engin framúrskarandi gegn feiknasterkum Þjóðverjum

Íþróttadeild Vísis skrifar
Byrjunarlið Íslands gegn Þýskalandi í Þjóðadeild kvenna 2023.
Byrjunarlið Íslands gegn Þýskalandi í Þjóðadeild kvenna 2023. VÍSIR / PAWEL

Íslenska landslið kvenna í knattspyrnu mátti þola 0-2 tap fyrir Þýskalandi í Þjóðadeildinni. Frá fyrstu mínútu var Ísland í nauðvörn gegn síógnandi Þjóðverjum. Þær héldu markinu hreinu út fyrri hálfleikinn en stíflan brast þegar Telma Ívarsdóttir gaf frá sér víti á 64. mínútu. Erfitt er að veita leikmönnum háar einkunnir eftir slíka frammistöðu en átta leikmenn Íslands eru jafnir með hæstu einkunn [6]. 

Telma Ívarsdóttir, markvörður [5]

Átti flottan leik og hefði líklega verið valin maður leiksins fram að fyrsta markinu, varði vel í nokkur skipti og hélt leiknum jöfnum í fyrri hálfleik. Það mátti þó sjá örfá skipti þar sem hún var ekki sú öruggasta í úthlaupum og fyrirgjöfum. Gaf á endanum víti og mark með ansi glæfralegu úthlaupi eftir háa fyrirgjöf sem endaði í hennar eigin markteig. 

Guðrún Arnardóttir, hægri bakvörður [4]

Leit betur út í miðvarðastöðunni síðast. Auðvelt að komast framhjá henni og ekki sannfærandi frammistaða í kvöld. 

Glódís Perla Viggósdóttir, miðvörður [4]

Var valin maður leiksins í síðasta leik en átti erfiðan dag í dag. Margar misheppnaðar sendingar og hún kom illa út úr báðum mörkunum, missti manninn frá sér í fyrra markinu og lokaði skotinu ekki nógu vel í seinna skiptið. 

Ingibjörg Sigurðardóttir, miðvörður [6]

Kom aftur inn í liðið eftir að hafa tekið út leikbann. Ekkert út á hennar frammistöðu að setja, þær þýsku fengu auðvitað sín færi en Ingibjörg gerðist ekki sek um nein slæm mistök. 

Sædís Rún Heiðarsdóttir, vinstri bakvörður [6]

Svipað hjá henni og Ingibjörgu, vinstri helmingur varnarlínunnar leit mun betur út í kvöld. Allar áttu þær erfitt með að koma boltanum í spil samt. 

Selma Sól Magnúsdóttir, miðjumaður [6]

Voru báðar tvær, Selma og Hildur, mjög fastar fyrir á miðjunni og mættu þeim þýsku alltaf í baráttunni. Uppspilið gekk hins vegar ekki jafn vel.

Hildur Antonsdóttir, miðjumaður [6]

Lagði sig alla fram í kvöld, það verður ekki tekið af henni en gekk illa að koma boltanum í spil.

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, framliggjandi miðjumaður [5]

Sýndi lítið í þessum leik, komst ekki mikið á boltann og fékk lítið af færum til að sýna snilli sína. Fékk reyndar fínt færi undir lokin þar sem virtist brotið á henni en ekkert dæmt. 

Hafrún Rakel Halldórsdóttir, hægri kantmaður [6]

Kom inn í liðið fyrir Öglu Maríu, varnarsinnuð breyting og Hafrún sinnti varnarvinnunni vel í þessum leik. en bauð ekki upp á mikið fram á við.

Sandra Jessen, vinstri kantmaður [5]

Svipuð saga að segja af henni og Hafrúnu, sinnti varnarvinnunni vel en bauð ekki upp á neitt þegar farið var fram á völlinn.

Hlín Eiríksdóttir, framherji [6]

Ekkert út á hennar framlag að setja, barðist eins og berserkur í fremstu víglínu en fékk litla þjónustu frá liðsfélögum sínum í færasköpuninni.

Varamenn 

Diljá Ýr Zomers [6] - Kom inn fyrir Söndru Jessen á 72. mínútu

Spilaði lítið en kom með orku inn á völlinn sem Ísland þurfti nauðsynlega á að halda. Fékk svo dauðafæri á 85. mínútu sem henni tókst ekki að nýta. 

Alexandra Jóhannsdóttir [6] - Kom inn fyrir Hildi Antonsdóttur á 72. mínútu

Ferskir fætur en komst lítið á boltann í sinni innkomu. 

Bryndís Arna Níelsdóttir - Kom inn fyrir Hlín Eiríksdóttur á 86. mínútu

Spilaði of lítið til að fá einkunn.

Amanda Andradóttir - Kom inn fyrir Selmu Sól á 86. mínútu

Spilaði of lítið til að fá einkunn. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×