Fótbolti

Einkunnir Íslands gegn Danmörku: Fyrirliðinn fremstur í svekkjandi tapi

Íþróttadeild Vísis skrifar
Byrjunarlið Íslands gegn Danmörku í 3. umferð Þjóðadeildarinnar.
Byrjunarlið Íslands gegn Danmörku í 3. umferð Þjóðadeildarinnar. Vísir / Hulda Margrét

Ísland mátti þola 0-1 tap gegn Danmörku í 3. umferð Þjóðadeildarinnar. Íslenska liðið reyndi fyrir sig í nýju leikkerfi sem hentaði vel varnarlega en þegar komið var fram á völlinn fundu þær fá færi. Fyrirliðinn og miðvörðurinn Glódís Perla Viggósdóttir stóð upp úr og var valin maður leiksins í liði Íslands. 

Telma Ívarsdóttir, markvörður [7]

Ekkert út á hana að setja í markinu, fast skot af mjög stuttu færi sem hún átti engan möguleika á að verja. Varði vel í tvígang og bjargaði marki í upphafi seinni hálfleiks. 

Guðný Árnadóttir, hægri bakvörður [6]

Átti fínan leik og gerði engin stór mistök en hefði getað lokað betur á fyrirgjöfina sem leiddi að marki Danmerkur.  

Glódís Perla Viggósdóttir, miðvörður [8]

Stóð vaktina með fyrirliðabandið í hjarta varnarinnar. Vann vel allan leikinn með Guðrúnu og tókst að leysa vel úr flestu sem Danirnir gerðu. Var sömuleiðis ógnandi fram á við í föstum leikatriðum og komst líklega næst því að skora af öllum leikmönnum Íslands þegar hún skallaði boltann í slánna úr hornspyrnu. 

Guðrún Árnadóttir, miðvörður [6]

Leysti stöðuna í fjarveru Ingibjargar Sigurðardóttur sem tók út leikbann í kvöld. Var ómeðvituð um sóknarmanninn fyrir aftan sig þegar markið var skorað, hefði mögulega getað gert betur þar. 

Sædís Rún Heiðarsdóttir, vinstri bakvörður [7]

Hennar fyrsti leikur sem byrjunarliðsmaður fyrir A-landslið Íslands. Danirnir vissu af því og einblíndu aðeins á hana í upphafi leiks en hún leysti úr því og varðist þeim vel. Er með frábæran fót en tókst ekki að sýna snilli sína nægilega vel í hornspyrnunum sem hún tók.

Selma Sól Magnúsdóttir, miðjumaður [6]

Steig vel niður og var mikilvægur uppspilspunktur þegar liðið spilaði út úr vörninni, sneri vel upp völlinn og kom boltanum í spil. Gerðist sek um slæm mistök í upphafi seinni hálfleiks en góð markvarsla Telmu bjargaði henni frá því að gefa mark.

Hildur Antonsdóttir, miðjumaður [5]

Fór minna fyrir henni en Selmu, komst ekki eins mikið á boltann í uppspilinu. Gerðist ekki sek um nein mistök en sýndi heldur ekkert sem er frásögu færandi. 

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, framliggjandi miðjumaður [7]

Allt uppspil Íslands fór í gegnum hana lengst framan af leiknum. Fann sér oft pláss milli manna á miðsvæðinu og var ógnandi en tókst ekki að skapa neitt dauðafæri fyrir sig né aðra. 

Agla María Albertsdóttir, hægri kantmaður [6]

Átti fínan leik og vann varnarvinnuna sína vel en hefði mátt sýna aðeins meiri sköpunargleði fram á við. 

Sandra Jessen, vinstri kantmaður [5]

Komst lítið á boltann, átti fína kafla en ógnaði marki Dananna ekki mikið. 

 Hlín Eiríksdóttir, framherji [7]

Barðist eins og berserkur í fremstu víglínu, alltaf til í að fá boltann og bakka á  varnarmanninn eða hoppa upp í skallabaráttu. Fékk fínt færi til að jafna leikinn undir blálokinn en hitti ekki boltann. 

Varamenn 

Hafrún Rakel Halldórsdóttir [6] – Kom inn fyrir Öglu Maríu á 62. mínútu

Ferskir fætur á réttum tímapunkti, pressaði vel og vann boltann en líkt og flestir í fremstu línu skapaði hún lítið í leiknum. 

Bryndís Arna Níelsdóttir [7] – Kom inn fyrir Söndru Jessen á 78. mínútu

Sá lítið af boltanum í sinni innkomu en sýndi ákefð og dugnað í fremstu línu. 

Alexandra Jóhannsdóttir – Kom inn fyrir Selmu Sól á 88. mínútu

Spilaði of fáar mínútur til að fá einkunn. 


Tengdar fréttir

Í beinni: Ísland - Danmörk | Gamla herraþjóðin kemur í heimsókn

Ísland varð að sætta sig við nístingssárt tap gegn Danmörku í þriðja leik sínum í A-deild Þjóðadeildarinnar í fótbolta kvenna, á Laugardalsvelli í kvöld. Íslendingar eru með þrjú stig í riðli 3 en Danir með fullt hús stiga eða níu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×