Veður

Hvass­viðri á landinu og gular við­varanir taka gildi í kvöld

Atli Ísleifsson skrifar
Reikna má með áframhaldandi suðaustan hvassviðri eða stormur á morgun og bætir heldur í úrkomu um sunnan- og vestanvert landið.
Reikna má með áframhaldandi suðaustan hvassviðri eða stormur á morgun og bætir heldur í úrkomu um sunnan- og vestanvert landið. Vísir/RAX

Veðurstofan gerir ráð fyrir að það verði suðaustan hvassviðri á landinu í dag með dálítilli vætu suðvestan og vestantil þar sem verður heldur úrkomumeira suðaustanlands. Gular viðvaranir taka gildi á Faxaflóasvæðinu, Suðurlandi og miðhálenginu í kvöld.

Í hugleiðingum veðurfræðings segir að það verði heldur hægari vindur og bjartviðri norðan heiða. Hiti á landinu verður á bilinu tvö til tólf stig.

Það bætir svo í vind á Suður- og Suðvesturlandi í kvöld og taka þá gular viðvaranir taka gildi vegna hvassviðris eða storms. Má þannig búast við mjög snörpum vindhviðum við fjöll, staðbundið yfir 35 metrum á sekúndu, einkum á Kjalarnesi, við Hafnarfjall, undir Eyjafjöllum og á sunnanverðu Reykjanesi.

Gular viðvaranir vegna hvassviðis eða storms taka gildi á landinu í kvöld.Veðurstofan

Viðvaranirnar eru í gildi fram á annað kvöld.

Áframhaldandi suðaustan hvassviðri eða stormur á morgun og bætir heldur í úrkomu um sunnan- og vestanvert landið.

Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag: Suðaustan 13-23 m/s, hvassast við suðurströndina. Rigning, talsverð suðaustantil, en bjartara og þurrt að kalla norðantil. Hiti 5 til 12 stig.

Á föstudag: Suðaustlæg átt, 8-13 m/s, en 13-18 norðaustantil. Rigning, talsverð suðaustanlands, en dregur úr úrkomu um vestan- og norðanvert landið síðdegis. Hiti 6 til 12 stig.

Á laugardag: Suðaustlæg átt með rigningu, en bjartviðri fyrir norðan. Hiti 5 til 10 stig.

Á sunnudag og mánudag: Hæg austlæg eða breytileg átt og víða dálitlar skúrir. Kólnar í veðri.

Á þriðjudag: Útlit fyrir suðlæga átt með rigningu eða slyddu, en bjart norðaustantil.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×