Veður

Lægðirnar suður í hafi en verða nær­göngulli á næstu dögum

Atli Ísleifsson skrifar
Spákort fyrir klukkan 14 í dag.
Spákort fyrir klukkan 14 í dag. Veðurstofan

Talsverður lægðagangur er nú suður í hafi og verða lægðirnar nærgöngulli þegar líður að helginni. Veðurstofan gerir ráð fyrir að það verði yfirleitt fremur hæg austan- og norðaustanátt í dag.

Í hugleiðingum veðurfræðings segir að það verði víða rigning og slydda eða snjókoma til fjalla á norðanverðu landinu, en skýjað og dáliltar skúrir syðra.

Hiti verður nærri frostmarki fyrir norðan, en að ellefu stigum syðst.

„Austlægari á morgun, strekkingur syðst, en annars hægari. Dálítil rigning á suðvestantil, en annars skýjað með köflum og stöku skúrir eða él og heldur svalara. Hvessir enn á fimmtudag, hvassviðri syðst um kvöldið. Lítilsháttar rigning á sunnanverðu landinu, en smá skúrir eða él fyrir norðan,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á miðvikudag: Austan og norðaustan 5-13 m/s, hvassast með suðurströndinni. Rigning öðru hvoru á Suður- og Vesturlandi, en dálitlar skúrir eða él um landið norðaustanvert. Hiti frá frostmarki í innsveitum á Norðausturlandi, upp í 8 stig syðst.

Á fimmtudag: Austan og norðaustan 5-13 m/s, en 10-18 um kvöldið, hvassast við suðurströndina. Dálítil rigning öðru hvoru á Suður- og Vesturlandi, en annars stöku él. Hiti 0 til 6 stig.

Á föstudag: Gengur í austan- og norðaustanhvassviðri með rigningu, en smá slyddu eða snjókomu fyrir norðan. Hiti 0 til 5 stig.

Á laugardag: Líklega ákveðin norðaustanátt með rigningu eða slyddu og snjókomu til fjalla, en þurrviðrisunnan heiða. Áfram fremur svalt í veðri.

Á sunnudag: Útlit fyrir norðlæga átt með slyddu eða snjókomu norðaustantil, en annars bjart og svalt veður.

Á mánudag: Snýst líklega í austanátt með rigningu eða slyddu sunnantil.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×