„Gæti ekki hugsað mér að vera neins staðar annars staðar“ Stefán Árni Pálsson skrifar 25. september 2023 19:31 Kári Árnason hefur verið yfirmaður knattspyrnumála síðustu tvö tímabil í víkinni. vísir/arnar Kári Árnason yfirmaður knattspyrnumála hjá Víkingum segir að samheldni innan félagsins hafi skilað því á þann stað sem það er í dag. Tímabilið karla- og kvennamegin hefur verið lyginni líkast.
Víkingur varð í gær Íslandsmeistari í Bestu deild karla þegar KR náði í stig gegn Valsmönnum og ljóst var að Valur gæti ekki með neinu móti náð Víkingum að stigum. Kári hefur verið yfirmaður knattspyrnumála hjá félaginu undanfarin 2 ár. „Það er mikill meðbyr í félaginu núna en það er líka gríðarleg vinnusemi á bak við þetta báðum megin. Þetta eru allt þjálfarar sem leggja mikið á sig, stjórnarmenn og bara allir í félaginu og ég held að árangur karlaliðsins hafi smitað út frá sér og búið til trú kvennamegin. Stjórnin síðan tvíefldist bak við það og ætlaði sér að gera eitthvað,“ segir Kári og heldur áfram. „Svo þessi bikarmeistaratitill var eitthvað sem við bjuggumst ekki við en þær stóðu sig frábærlega,“ segir Kári en Víkingar urðu bikarmeistarar kvenna í sumar, og þá lið í næstefstu deild. Karlaliðið hefur nú unnið sex af síðustu níu titlunum sem í boði eru. Kári segist ekki beint hafa gert ráð fyrir þessum árangri þegar hann var yngri. „Við höfum ekki verið líklegir í gegnum tíðina en núna er búið að mynda einhvern svona fullkominn storm í Víkinni og það er ótrúlega metnaðarfullt fólk alls staðar í félaginu. Ég gæti ekki hugsað mér að vera nein staðar annars staðar.“ Kári spáir leiknum gegn Blikum í kvöld 2-0 fyrir sínum mönnum.
Besta deild karla Fótbolti Íslenski boltinn Víkingur Reykjavík Mest lesið Lengri heimferð bíður KR-inga og Egill kallar eftir Akraborginni Íslenski boltinn Mínútu þögn fyrir fyrsta leik Liverpool síðan Jota féll frá Enski boltinn Enginn sá tölvupóstinn frá UEFA Sport Í beinni: FH - KA | Fallbaráttuslagur í Kaplakrika Íslenski boltinn Rio Ferdinand húðskammar Arsenal stuðningsmenn Enski boltinn Það verða tónleikar í hálfleik á úrslitum HM félagsliða Sport Messi slær enn eitt metið Fótbolti „Við erum klárlega að fara í alvöru slagsmál“ Íslenski boltinn Grealish líkast til á förum en elskar samt City „meira en allt“ Enski boltinn Fjarvera Gyökeres gera félagaskiptin hans „flóknari“ Enski boltinn Fleiri fréttir Í beinni: FH - KA | Fallbaráttuslagur í Kaplakrika Lengri heimferð bíður KR-inga og Egill kallar eftir Akraborginni „Við erum klárlega að fara í alvöru slagsmál“ Njarðvík slapp með stig frá Húsavík Uppgjörið: Vestri í úrslit í fyrsta skipti Ekki pláss fyrir Rúnar í flugvélinni: „Ég fórnaði mér í þetta“ Lárus Orri byrjaður að bæta við sig „Við erum að gera eitthvað rétt“ Á góðum stað fyrir mikil átök Safna stuðningsfólki í fría rútu með fljótandi veigar Shaina boðin hjartanlega velkomin aftur í Hamingjuna Sólarbann, freistingar og kokhraustir Albanir Óli Jóh skellihló að viðtali Heimis Stúkumenn ekki sammála um hvort Valsmenn geti orðið meistarar KA fékk færri athugasemdir en Crystal Palace Sjáðu Árna bjarga sjálfum sér en fá svo á sig jöfnunarmark langt utan af velli Uppgjörið: FH - Stjarnan 1-1 | Jafntefli vonbrigði fyrir alla Sjáðu Hallgrím Mar klára KR-ingana á fjórum mínútum „Ekki komnir á þann stað að geta tekið leiki og klárað þá“ Uppgjörið: KR - KA 1-2 | KA úr fallsæti „Búnir að vera á smá hrakhólum“ Uppgjörið: ÍBV - Víkingur 0-0 | Hundleiðinlegt í Eyjum Hundur vildi prófa nýja gervigrasið og fór inn á völlinn í Eyjum Uppgjörið: ÍA - Fram 0-1 | Vuk heldur áfram að skora Uppgjörið: Vestri - Valur 0-2 | Valur heldur pressu á Víkingum ÍR á toppinn en fjögur rauð spjöld og allt vitlaust í lokin Allison með fyrsta markið á nýjum Hásteinsvelli Mæta Víkingum á nýlögðu gervigrasi í Eyjum Ásgeir og Hrannar heiðruðu Jota Sjáðu glæsimark Óla Vals og öll hin í Mosfellsbæ Sjá meira