Veður

Á­fram hvass­viðri eða stormur en dregur úr vindi og úr­komu í kvöld

Atli Ísleifsson skrifar
Þegar líður á daginn hvessir á Suðausturlandi og þá einkum í Öræfum.
Þegar líður á daginn hvessir á Suðausturlandi og þá einkum í Öræfum. Vísir/RAX

Veðurstofan gerir ráð fyrir norðaustan hvassviðri eða stormi í dag þar sem einna hvassast verður á Vestfjörðum og austast á landinu. Að sama skapi má búast við vindhviðum yfir 40 metra á sekúndu við fjöll.

Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að talsverð rigning verði á austanverðu landinu, en mun minni úrkoma annars staðar og lengst af þurrt sunnan- og vestanlands.

„Þegar líður á daginn hvessir einnig á Suðausturlandi og þá einkum í Öræfum.

Dregur talsvert úr vindi og úrkomu seint í kvöld og nótt, en áfram strekkings norðaustanátt á morgun og væta á köflum fyrir norðan og austan. Eins kólnar smám saman og viðbúið að gráni í fjöll þar sem úrkomu gætir.

Gular veðurviðvaranir vegna rigningar eru í gildi fyrir Austurland og Austfirði út daginn í dag. Vegna aukinnar hættu á aurskriðum og tjóni á mannvirkjum er í gildi appelsínugul viðvörun fyrir Austfirði til miðnættis,“ segir á vef Veðurstofunnar.

Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á miðvikudag: Norðaustan 10-18 m/s, en hægari með kvöldinu. Lítilsháttar rigning á Norður- og Austurlandi, en annars léttskýjað. Hiti 5 til 12 stig, hlýjast syðst.

Á fimmtudag: Norðlæg átt, 8-15 m/s og smáskúrir eða él, hvassast austast, en bjartviðri sunnan heiða. Hiti 1 til 8 stig yfir daginn, mildast syðst, en líkur á næturfrosti.

Á föstudag: Norðankaldi, skúrir eða él fyrir norðan og austan, en annars þurrt að kalla. Svalt í veðri, en mildara syðst.

Á laugardag (haustjafndægur): Austlæg eða breytileg átt, skýjað og dálítil væta, einkum sunnan- og vestanlands. Hlýnar dálítið.

Á sunnudag: Norðaustanátt og rigning með köflum, en léttskýjað suðvestantil. Hiti 1 til 6 stig.

Á mánudag: Útlit fyrir fremur kalda norðanátt. Dálítil él fyrir norðan, væta austast, en bjartviðri sunnan- og vestanlands.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×