Íslenski boltinn

Í blíðu og stríðu: „Ég ætla fá að standa fyrir það sem ég vil standa fyrir“

Aron Guðmundsson skrifar
Hjónin Sif Atladóttir og Björn Sigurbjörnsson standa saman í gegnum súrt og sætt í boltanum
Hjónin Sif Atladóttir og Björn Sigurbjörnsson standa saman í gegnum súrt og sætt í boltanum Vísir/Sigurjón Ólason

Hjónin Björn Sigur­björns­son og Sif Atla­dóttir hafa staðið í ströngu með kvenna­liði Sel­foss í Bestu deild kvenna í fót­bolta á yfir­standandi tíma­bili. Fall Sel­fyssinga úr Bestu deildinni hefur verið stað­fest en Björn er þjálfari liðsins og Sif leik­maður.

Tap Sel­fyssinga gegn Eyja­konum á dögunum sáu til þess að Sel­foss getur ekki bjargað sér frá falli í Bestu deildinni á þessu tíma­bili. Liðið mun leika í Lengju­deildinni á næsta tíma­bili eftir lær­dóms­ríkt en erfitt tíma­bil til þessa.

„Til­finningin var þung þegar fall okkar var stað­fest en eins og þú segir þá var þetta niður­staða sem við höfðum séð að væri mögu­lega í kortunum,“ segir Björn, þjálfari Sel­fyssinga. „Mér fannst eigin­lega sárast að falla á þessari fyrstu hindrun okkar í úr­slita­keppninni af því að mér fannst við þar spila, lík­lega, einn af okkar betri leikjum á yfir­standandi tíma­bili. Maður hefði gjarnan vilja sjá þessa orku fyrr á tíma­bilinu hjá liðinu en nú tekur við nýr dagur, við erum á lífi og erum heilsu­hraust. Fé­lagið á eftir að lifa þetta af, það er engin spurning.“

Reynslan muni styrkja félagið

Trúin, á að bjarga sér frá falli, bjó í liði Sel­fyssinga allt þar til að fallið var stað­fest eins og Sif greinir frá

„Maður tapar ekkert trúnni þó það sé erfitt og maður hefur alveg verið í þessari stöðu áður og þekkti því gleði­til­finninguna sem fylgdi því þegar að maður bjargar sér frá falli,“ segir Sif. „Þetta féll ekki með okkur í ár en þessi reynsla á eftir að styrkja fé­lagið þegar að við náum að greina hvað fór á mis hjá okkur“

Úr leik Selfoss og FH fyrr í sumarVísir/Hulda Margrét

Björn segist hafa farið yfir það aftur og aftur með sjálfum sér hvað hafi farið úr­skeiðis Lær­dóms­ferlið af þessu erfiða gengi sé mikið.

„Það er ýmis­legt sem fór á mis. Við fáum til okkar þrjá er­lenda leik­menn og ætluðum að fækka um eitt út­lendingsí­gildi milli ára, reyna að gefa ungu stelpunum okkar stærra hlut­verk. Tvær af þeim hurfu á braut áður en við byrjuðum tíma­bilið og sú þriðja var hrein­lega ekki alveg nógu góð í þetta. Þær voru mjög öflugar þessar tvær sem fóru, en ekki í höfðinu, og þá fórum við að reyna fylla upp í okkar skörð með láns­mönnum sem gáfu allt sem þær áttu.

Þetta var partur af því sem fór úr­skeiðis hjá okkur og ég hef farið yfir það aftur og aftur í hausnum á mér á hverju við höfum farið á mis. Ég finn það líka bara á sjálfum mér yfir þetta tíma­bil að ég hef þroskast miklu meira á þessu tíma­bili sem þjálfari heldur en á mínu fyrsta tíma­bili sem aðal­þjálfari í meistara­flokki í fyrra. Ég hef lært miklu meira af þessu þunga gengi heldur en miðlungs­gengið á síðasta tíma­bili.“

Vissu að þau myndu lenda í smá brekku 

Björn segist hafa vilja standa fyrir ýmis­legt sem þjálfari, hluti og eigin­leika sem hann hafi þurft að bakka með á yfir­standandi tíma­bili.

„Það er ýmis­legt sem maður vill standa fyrir sem maður bakkar með af því að það gengur ekki eins og maður óskaði eftir. Það geri ég ekki aftur, ég ætla fá að standa fyrir það sem ég vil standa fyrir og halda mig við mína hug­mynda­fræði.“

Björn Sigurbjörnsson, þjálfari SelfossVísir/Pawel

Það voru ýmis teikn á lofti fyrir tíma­bilið að það gæti orðið smá brekka en Sif missti þó aldrei vonina og trúnna á liðinu.

„Ég vissi að við myndum lenda í smá brekku eftir að við misstum þessa sterku leik­menn frá okkur, liðið myndi þurfa að spila sig saman en fót­boltinn er dá­sam­legur á þann hátt að vonin yfir­gefur mann aldrei, hún er alltaf til staðar. Í grunninn eru þetta bara ellefu leik­menn á móti ellefu og maður getur alltaf unnið leikinn alveg sama hvað.

Við ætluðum okkur að vera hærra í töflunni en stundum á maður bara svona tíma­bil, stundum er þetta erfitt og brekka. Eins og Bjössi segir þá lærir maður miklu meira af svona tíma­bili heldur en þegar að allt flýtur vel. Nú lítum við ein­staklingarnir, leik­mennirnir og fé­lagið inn á við og gröfum svo­lítið í það sem fór úr­skeiðis og hvernig við getum lagað það. Maður lærir mest af mis­tökunum.“

Framtíðin björt

Efni­viðurinn sem knatt­spyrnu­deild Sel­foss býr að í ungum leik­mönnum er þó góður að sögn Björns.

„Ég er sjálfur starfandi í akademíunni hér með skólanum og ég sé bæði stráka og stelpur sem er stutt í að taki að sér hlut­verk sem leik­menn hjá fé­laginu. Við höfum spilað á ungu liði á tíma­bilinu og það er búið að vera mikið af tæki­færum. Við höfum blóðgað margar stelpur á þessum tveimur árum og það er kannski það sem ég er hvað stoltastur af. Hér hafa margir ungir leik­menn fengið tæki­færi til þess að stíga sín fyrstu skref í meistara­flokki og þá eru fleiri sem munu gera það á næstu árum.“

Við­talið við hjónin Sif Atla­dóttur og Björn Sigur­björns­son hjá knatt­spyrnu­liði Sel­foss má sjá í heild sinni hér fyrir neðan:

Klippa: Saman í boltanum í blíðu og stríðu



Fleiri fréttir

Sjá meira


×