Íslenski boltinn

„Frammi­staðan gefur okkur byr undir báða vængi hvað fram­haldið varðar“

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Rúnar Páll, þjálfari Fylkis.
Rúnar Páll, þjálfari Fylkis. Vísir/Diego

Fylkir tapaði naumlega gegn Val á Hlíðarenda í Bestu deild karla í knattspyrnu, lokatölur 2-1 í kvöld. Fylkismenn voru heilt yfir betra liðið og sköpuðu sér mörk marktækifæri sem þeim tókst ekki að nýta.

„Ég er bara hrikalega stoltur af frammistöðu liðsins, við vorum hrikalega öflugir í dag. Fáum á okkur aulamörk, finnst mér, algjör óþarfi. Bæði í fyrsta markinu ... og svo skotið utan af teig [seinna markið] sem við hefðum átt að koma í veg fyrir.“ sagði Rúnar Páll, þjálfari Fylkis, eftir leik.

Hann segir sitt lið hafa spilað vel í dag og ekki gefið Valsmönnum færi á sér, en var svekktur með færanýtingu liðsins og þótti úrslit leiksins ekki endurspegla hvort liðið hafi spilað betur.

„Valsmenn sköpuðu ekki mörg færi í þessum leik, fengu ekkert tækifæri til þess. Aftur á móti fáum við þrjú, fjögur jafnvel opin færi í fyrri hálfleik sem við hefðum átt að skora úr. Þetta voru ekki sanngjörn úrslit, mér finnst það ekki.“

Fylkir sitja í 11. sæti deildarinnar eftir 14 umferðir. Þjálfarinn er þó bjartsýnn á framhaldið.

„Frammistaðan gefur okkur byr undir báða vængi hvað framhaldið varðar, ef við höldum áfram að spila svona, þá kvíði ég engu.“

Síðustu þrír leikir Fylkis hafa verið gegn efstu þremur liðum deildarinnar, næst spilar liðið við HK á heimavelli. Þrátt fyrir að mæta slakari andstæðingum þýðir ekkert að gefa eftir í baráttunni,“ segir Rúnar.

„Allir þessir leikir eru drulluerfiðir, við þurfum að hafa helvíti mikið fyrir þeim og þurfum að leggja okkur svona mikið fram til þess að fá eitthvað út úr þessu, alveg sama hvað liðin heita.“

„Nú erum við búnir að mæta toppliðum með geggjaðan mannskap og nú förum við að mæta liðum sem eru nær okkur í töflunni... við getum byggt rosalega mikið á þessari frammistöðu í þessum leikjum á móti toppliðunum. En við fáum ekkert ókeypis í þessu,“ sagði Rúnar Páll að endingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×