Tónlist

Myndaveisla: Opnun tónlistarforlagsins Wise Music Iceland

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
inga Magnes Weisshappel er rekstarstjóri Wise Music Iceland.
inga Magnes Weisshappel er rekstarstjóri Wise Music Iceland. Cat Gundry-Beck

Alþjóðlega tónlistarforlagið Wise Music Group mun opna höfuðstöðvar hér í Reykjavík undir nafninu Wise Music Iceland og því var fagnað með veislu í Ásmundarsal í fyrradag. Inga Magnes Weisshappel er rekstrarstjóri Wise Music Iceland en blaðamaður hitti hana í kaffi og fékk að heyra nánar frá.

Ævintýralegt símtal

Inga Magnes er útskrifað tónskáld og fór í kvikmyndatónlist eftir útskrift. Það gekk mjög vel og ætlaði hún ekki endilega að færa sig annað fyrr en hún fékk áhugavert símtal frá vini sínum.

„Hann segir mér að breskur maður sé að leita að einhverjum frá Íslandi til að vera music supervisor eða sjá um tónlistarstjórnun á Íslandi. Sem er starf sem er í ekki raun til á Íslandi, þetta er þó mjög þekkt í til dæmis Bandaríkjunum og Bretlandi.“

Það var margt um manninn í Ásmundarsal í opnunarteiti Wise Music Iceland. Listaverkin eru eftir Helenu Margréti.Cat Gundry-Beck

Í kjölfarið fer Inga í viðtal og fær starfið. Þá er hún send til Kaupmannahafnar í þjálfun.

„Að því loknu var ég bara send út í djúpu laugina, ég kem heim og er að vinna sem tónlistarstjórnandi fyrir Wise Music Group á Íslandi. Þetta er starf innan íslenska kvikmyndabransans þannig ég er að halda utan um tónlist í kvikmyndum í verkefnum sem ég tek að mér, hjálpa til við að ráða tónskáld og fleira. Þetta er því svona yfirumsjón með allri músík og öllu sem því fylgir.

Þetta gengur mjög vel og það var skortur hér á Íslandi á þessu starfi. 

Þetta skiptir miklu máli fyrir tónlistarfólkið líka, fyrir til dæmis tónlistarmenn sem langar að fara að semja fyrir kvikmyndir eða vilja fá tónlistina sína inn í kvikmyndabransann. 

Þannig að ég er jafn mikið að vinna fyrir tónlistarfólkið og ég er að vinna fyrir framleiðandann. Þetta er góð leið fyrir mig til að hjálpa þeim líka að fá tækifæri.“

Inga Magnes Weisshappel, Charlotte Paludan, Steven Tallamy og Loui Törnqvist starfa öll hjá Wise Music.Cat Gundry-Beck

Fyrsta alþjóðlega tónlistarforlagið

Inga vinnur bæði með íslensku og erlendu tónlistarfólki og segir hún erlend tónskáld sýna Íslandi mikinn áhuga. Þetta hefur gengið mjög vel og fyrir nokkrum mánuðum síðan ákveður Wise Music að koma líka með tónlistarforlag (e. music publishing) til Íslands.

„Þeim finnst íslenskt tónlistarfólk svo flott og hæfileikaríkt en það hefur verið lítil alþjóðleg tenging og erfitt fyrir íslenskt tónlistarfólk að komast út. Þetta var því ákveðið og mér var boðið að taka yfir þetta. Það er því að fara af stað núna og við erum að fara að opna höfuðstöðvar hérlendis. Ég verð því bæði tónlistarstjórnandi (e. music supervision) og með umsjón yfir tónlistarforlaginu.

Þetta er í fyrsta sinn sem alþjóðlegt tónlistarforlag er að opna hér heima og þetta er mjög góð viðbót við þau forlög sem eru hér núna. INNI Music og Iceland Sync eru hér heima með mjög góða þekkingu á íslenska tónlistarheiminum og við erum í miklu sambandi við þau.“

Inga segir markmiðið vera að hjálpa íslensku tónlistarfólki að komast út og fá alþjóðlegri dreifingu.

„Svo erum við mikið að pæla í kvikmyndatónlist og viljum hjálpa íslensku tónlistarfólki að koma lögunum sínum inn í alþjóðlega kvikmyndabransann.“

Inga Magnes hlakkar til að geta aukið samvinnu milli Íslands og hins stóra heims.Cat Gundry-Beck

Fjölskyldufyrirtæki

Wise Music Group er upprunalega fjölskyldufyrirtæki sem hefur fjárfest í öðrum fjölskyldufyrirtækjum víða um heim.

„Allar höfuðstöðvarnar koma því frá litlum fjölskyldufyrirtækjum og maður finnur fyrir því í samstarfinu. Fólkið er keyrt áfram af mikilli ástríðu og þetta er allt jarðbundið og yndislegt fólk. Þau eru að koma hingað til lands til að kynnast íslensku listafólki og vonandi geta hjálpað bransanum að þróast og stækka.“

Forlagið ætlar sér að fara hægt af stað að sögn Ingu.

„Við erum ekki að taka marga inn, við viljum fá færri og sinna þeim mjög vel. Draumurinn er svo að við í samstarfi við hin tónlistarforlögin getum komið þessari senu betur af stað.“

Wise Music Iceland fagnaði komu sinni til landsins með veislu.Cat Gundry-Beck

Myndaveisla frá veislu í Ásmundarsal

Í gær fagnaði Wise Music Group komu sinni til landsins með pomp og prakt í Ásmundarsal. Fyrr um daginn voru þau með tónlistarforlags panel með ÚTON en Inga segir þau vinna mikið með þeim.

„Við vildum svo fagna því að þessar höfuðstöðvar séu að opna með partýi,“ segir Inga og bætir að lokum við:

Wise Music Group er líka með fullt af flottu tónlistarfólki um allan heim og margir listamenn sem vilja mjög mikið koma til Íslands. Tónskáld sem vilja íslensk verkefni, vinna með íslenskum leikstjóra, koma fram á íslenskum tónlistarhátíðum og vera partur af íslensku senunni. 

Við erum því að koma Íslendingum út og í leiðinni opna dyrnar fyrir alþjóðlegum tónlistarmönnum.“ 

Hér fyrir neðan má sjá nokkrar vel valdar myndir frá opnunarteitinu:



Plötusnúðurinn Benni B-Ruff hélt uppi stemningu með góðum tónum.Cat Gundry-Beck

Inga Magnes býður gesti velkomna. Verk Helenu Margrétar njóta sín í bakgrunni.Cat Gundry-Beck

Sophia Blume, David Holley, Inga Magnes Weisshappel, Loui Törnqvist, Marcus Wise, Michael Ohst, Charlotte Paludan og Steven Tallamy.Cat Gundry-Beck
Tónlistarmaðurinn Ólafur Arnalds skemmti sér vel.Cat Gundry-Beck

Steven Tallamy, Ólafur Arnalds, Loui Törnqvist og Michael Ohst.Cat Gundry-Beck

Áhugasamir tónlistarunnendur sameinuðust í Ásmundarsal.Cat Gundry-Beck

Stuð og stemning.Cat Gundry-Beck

Tengdar fréttir

Óli Palli poppar Skagann upp

Skaga- og útvarpsmaðurinn Ólafur Páll Gunnarsson, betur þekktur sem Óli Palli, hefur verið í önnum við að skipuleggja mikla tónlistarhátíð í sínum heimabæ.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×