Tónlist

„Fyrir mér er listsköpun eilíf leit að sjálfinu“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Harmóníkuleikarinn Jónas Ásgeir Ásgeirsson var að senda frá sér plötuna Fikta.
Harmóníkuleikarinn Jónas Ásgeir Ásgeirsson var að senda frá sér plötuna Fikta. Niklas Ottander

Síðastliðinn föstudag sendi harmóníkuleikarinn Jónas Ásgeir Ásgeirsson frá plötuna FIKTA. Þar má finna íslensk verk en platan er gefin út með dönsku plötuútgáfunni Dacapo Records. Blaðamaður heyrði í Jónasi Ásgeiri.

Tileinkuð Guðmundi Samúelssyni

Aðspurður hvenær tónlistaráhuginn kviknaði fyrst segir Jónas:

„Ég byrjaði í forskóla hjá Tónskóla Eddu Borg þegar ég var sjö ára gamall. Þegar ég varð níu hóf ég harmóníkunám með Guðmundi Samúelssyni og fylgdi honum alla tíð fram að framhaldsstigsprófi 2013. Ári seinna hóf ég nám í Kaupmannahöfn við konunglega danska tónlistarháskólann. Ég útskrifaðist þaðan í september síðastliðnum með post-graduate gráðu. 

Guðmundur féll frá 2. október síðastliðinn og tileinka ég honum plötuna.“

Skapandi listamenn innblásturinn

Á plötunni eru einnig áður nær óþekkt verk eftir tvö mikilvægustu tónskáld Íslands á liðinni öld, Þorkel Sigurbjörnsson og Atla Heimi Sveinsson. Þessi verk voru í raun kveikurinn að FIKTA.

Jónasi Ásgeiri finnst mest spennandi að ögra stöðluðum listgreinum og listframsetningu.Tómas Örn Tómasson

„Það sem hefur veitt mér mestan innblástur er að vinna með skapandi listamönnum. Ég frumflutti verkið Fikta eftir Friðrik Margrétar-Guðmundsson 2018 sem platan er nefnd eftir. Það að hafa stuðlað að svona fallegu verki eftir ungt íslenskt tónskáld sem er vinur í þokkabót var afskaplega gefandi og mikil hvatning til að vinna að fleiri verkefnum með íslenskum listamönnum, þar á meðal þessari plötu. 

Annars finnst mér mest spennandi að ögra stöðluðum listgreinum og listframsetningu.

Mér líður best utan flokkunar, á milli væntinga. Utan comfort zone. Tímaritið Seismograf skrifaði gagnrýni um plötuna þar sem kom fram að hún væri leit að sjálfsímyndinni og sjálfstúlkun. 

Þar hittu þau naglann á höfuðið, fyrir mér er listsköpun eilíf leit að sjálfinu. Ef maður heldur að maður hafi fundið sinn sess, þá er tími til að leita á önnur mið.“

Áhrif faraldursins

Stærsta verk plötunnar er Accordion Concerto, harmóníkukonsert Finns Karlssonar sem saminn var fyrir Jónas árið 2020 og var hljóðritaður með kammersveitinni Elju og Bjarna Frímanni, stjórnanda. Konsertinn var verk ársins á íslensku tónlistarverðlaununum 2021 í flokknum sígild-og samtímatónlist. Flutningur hans hefur verið einstaklega litaður af covid og hefur hann einungis verið fluttur í Miðgarði í Varmahlíð með skertan áhorfendafjölda.

„Öllum flutningum síðan hefur verið aflýst vegna faraldursins, sex talsins í heildina. Höfuðborgarbúar fá hins vegar tækifæri til að hlýða á verkið á tónleikum Elju um næstu áramót. Accordion Concerto er fyrsti íslenski harmóníkukonsertinn saminn fyrir Íslending.“

Jónas Ásgeir Ásgeirsson lítur á listsköpun sem eilífa leit að sjálfinu og forðast það að staðna.Efi Anagnostidou

Dönsk plötuútgáfa með íslenskri tónlist

Eins og áður segir er platan gefin út af dönsku plötuútgáfunni Dacapo Records.

„Ég hafði samband við þau í mars 2021. Þau voru einmitt um þær mundir að fá það staðfest hjá styrktaraðilum þeirra að þau fengu leyfi til að vinna að verkefnum sem innihalda ekki danska tónlist. 

Þetta er því fyrsta verkefnið að ég held eftir þessa breytingu.“

Samhliða FIKTA fylgir listrænt tónlistarmyndband í leikstjórn Stephan Stephensen af krefjandi einleiksverki Atla Ingólfssonar, Radioflakes, en verkið verður einnig á plötunni. Sviðsmynd myndbandsins er listaverk frá listasýningunni Arctic Creatures eftir Hrafnkel Sigurðsson, Óskar Jónasson og Stefán Jónsson. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×