Tónlist

Mið­­nætur­­söngvar Taylor Swift opin­bera þrá­hugsanir og drauma

Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar
Hér má sjá titla þrettán upprunalegu lagana.
Hér má sjá titla þrettán upprunalegu lagana. Taylor Swift/Instagram

Ný plata Taylor Swift „Midnights“ birtist á helstu tónlistarveitum í nótt. Platan er stútfull af nýjum lögum, nánar til tekið tuttugu talsins. Platan einkennist af einskonar rafpoppi og er uppfull af einstakri textasmíð Swift sem aðdáendur og aðrir áhugasamir ættu að geta tengt við.

Síðustu tvær plötur sem Swift hefur gefið út hafa verið nýjar upptökur af eldri plötum og er nýja platan því velkomin tilbreyting. Aðdáendur Swift, alla jafna kallaðir Swifties, hafa beðið eftir plötunni með mikilli eftirvæntingu. Swift tilkynnti útgáfu nýju plötunnar í lok ágústmánaðar.

Þegar platan var kynnt lýsti Swift henni sem samansafni laga sem samin voru á miðnætti, sögum af ógnvænlegum stundum og draumórum. „Sögur af þrettán svefnlausum nóttum frá mismunandi stigum lífs míns,“ skrifaði Swift.

Platan átti upprunalega að innihalda þrettán lög en eins og aðdáendur Swift vita þá er þrettán happatala hennar. Þremur klukkustundum eftir að platan kom á helstu tónlistarveitur sendi Swift frá sér tíst þar sem hún sagði að það hefðu verið „önnur lög sem skrifuð voru á leiðinni að þessum töfrandi þrettán.“ Í kjölfarið var lengri útgáfa plötunnar sett á Spotify og inniheldur sú útgáfa heil tuttugu lög.

Platan greinir frá allskyns næturstundum og fer úr því að vera rómantísk og ljúf yfir í að vera þung og dularfull. 

Það var þó ekki nóg fyrir tónlistarkonuna heldur birtist fyrsta tónlistarmyndband plötunnar á YouTube í morgun. Myndbandið er gert við lagið „Anti-Hero“ og bauð Swift aðdáendum sínum að sjá senur úr matröðum sínum og þráhugsunum raungerast. 

Myndbandið má sjá hér að ofan. 

Í myndbandinu má til dæmis sjá framtíðar „börn“ Swift syrgja andlát hennar þegar hún er orðin öldruð kona. Þegar erfðaskrá hennar er lesin upp kemur í ljós að hún lét öll auðæfi sín, fyrir utan 13 sent, renna til katta sinna; Meredith Grey Swift, Oliviu Benson Swift og Benjamins Button Swift. Kettirnir eru allir nefndir eftir persónum úr sjónvarpsþáttum eða bíómyndum. Meredith Grey úr Grey's Anatomy, Oliviu Benson úr Law and Order og Benjamin Button úr The Curious Case of Benjamin Button. Hér að neðan má sjá Swift ásamt kettinum Oliviu. 

„Tónlist Taylor Swift er gjöf til heimsins“

Viðbrögð Swifties við nýju plötunni hafa ekki látið á sér standa. Af tístum sumra að dæma hefur platan hitt þau harkalega í hjartastað. 

Rithöfundurinn John Green segir tónlist Swift gjöf til heimsins. Leikkonan Reese Witherspoon lýsti yfir eftirvæntingu sinni stuttu áður en platan kom út. 

Spurningin er hvort platan veki jafn mikla lukku meðal þeirra sem eru ekki gallharðir aðdáendur tónlistarkonunnar. Nú dæmir hver fyrir sig en hægt er að hlusta á lengri útgáfu plötunnar hér fyrir neðan. 


Tengdar fréttir

Hvað er svona merki­legt við All Too Well og nýju plötuna hennar Taylor?

Níu árum eftir útgáfu Red, einnar vinsælustu plötu poppstjörnunnar Taylor Swift, hefur hún gefið plötuna út að nýju. Red (Taylor's Version) hefur verið mál málanna meðal netverja frá því að hún kom út á föstudag og ný stuttmynd við lagið All Too Well hefur skekið samfélag netverja.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×