Lífið

Bréf John Lennons til Paul McCartney á uppboði

Elísabet Hanna skrifar
Mynd sem var tekin af vinunum árið 1964.
Mynd sem var tekin af vinunum árið 1964. Getty/William Vanderson

Bréf John Lennons til Paul McCartney sem skrifað var árið 1971 er nú á uppboði. Bréfið er þrjár blaðsíður að lengd og í því stendur meðal annars: „Ég hélt að þú værir búinn að ná því á þessum tímapunkti að ég er JOHNOGYOKO.“

Talið er að bréfið muni seljast á allt að 40.000 dollara á uppboðinu eða um 5.493.600 íslenskar krónur. Samkvæmt upplýsingum frá uppboðshaldara er bréfið svar John Lennons við viðtali sem tekið var við Paul McCartney og birtist í Melody Maker þenn 20. nóvember 1971. Í viðtalinu deildi Paul meðal annars hugsunum sínum um upplausn Bítlanna, John og Yoko Ono.

Vildi að bréfið yrði birt sem svar við viðtali Pauls

„John var svo reiður þegar hann las viðtalið að hann sendi þetta þriggja blaðsíðna, undirritaða og handskrifaða bréf, stílað á Paul, til Melody Maker, til birtingar, og bað þá, með eigin rithönd, um jafnan tíma,“ stendur einnig í skráningunni fyrir uppboðið. Svo fór að bréfið var birt þann 4. desember 1971 í tímaritinu Melody Maker.

Bréfið sem um ræðir.Vefur Gotta Have Rock and Roll.

Gagnrýnir Paul

Bréfið er stílað á Paul og þáverandi eiginkonu hans Lindu McCartney. Í því byrjaði Lennon á að snerta á fjármálunum í kringum Apple Records. Síðan lýsti hann viðskiptatengdu símtali þeirra á milli og sakar Paul um að hafa farið á bakvið sig við kaup á hlutabréfum í Northern Songs.

Hann gagnrýnir Paul einnig fyrir óákveðni hans og augljósan falskan barnaleika í að takast á við fjárhagsvandamál þess að brjóta upp hljómsveitina og segir að það sé ekki eins auðvelt og að „skrifa undir pappírsbút.“

Bítlarnir George Harrison, John Lennon, Paul McCartney og Ringo Starr.Getty/Bettmann

Vildi ekki hittast án Lindu og Yoko

Lennon endaði bréfið með því að fullyrða að hann bæri engin illindi til Pauls og að þeir vildu í grunninn sömu hlutina.  Hann sagðist vera opinn fyrir því að hittast. En bætti svo við: „Það sem gerði okkur virkilega furða var að biðja um það að hittast ÁN LINDU OG YOKO. Ég veit að þú ert kalhæðinn! En við skulum ekki ganga of langt! 

„Ég hélt að þú værir búinn að ná því á þessum tímapunkti að ég er JOHNOGYOKO,"

Tengdar fréttir

Segir Lennon hafa sundrað Bítlunum

Bítillinn Paul McCartney segist hafa í tæp fimmtíu ár ranglega verið sakaður um að bera ábyrgð á því að hljómsveitin goðsagnakennda hætti. Í nýju viðtali segir hann John Lennon hafa gengið frá Bítlunum.

John Lennon hefði orðið áttræður í dag

John Ono Lennon hefði orðið áttræður í dag hefði hann lifað og er þess minnst með ýmsum hætti um allan heim. Tendrað verður á Friðarsúlunni í Viðey klukkan níu í kvöld og verður sent út beint frá athöfninni á vef borgarinnar og listaverksins sjálfs.

Paul McCartney tróð óvænt upp á fornum slóðum

Paul McCartney kom aðdáendum í heimaborginni Liverpool á óvart í vikunni með óvæntum tónleikum í Cavern klúbbnum þar sem Bítlarnir slógu fyrst í gegn í upphafi sjöunda áratugarins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×