Íslenski boltinn

„Á heima­velli munum við að sjálf­sögðu reyna að lyfta okkur hærra upp á völlinn“

Runólfur Trausti Þórhallsson og Jón Már Ferro skrifa
Rúnar er enn að reyna finna réttu blönduna hjá KR en lið hans hefur glímt við mikil meiðsli og forföll í sumar.
Rúnar er enn að reyna finna réttu blönduna hjá KR en lið hans hefur glímt við mikil meiðsli og forföll í sumar. Vísir/Hulda Margrét

Rúnar Kristinsson ræddi við Vísi fyrir leik KR og pólska liðsins Pogoń Szczecin í síðari leik liðanna í undankeppni Evrópudeildarinnar. Hann segir að leikplanið verði ekkert ósvipað og í fyrri leiknum en hans lið þurfi einfaldlega að gera hlutina betur.

„Ægir Jarl Jónasson var í leikbanni í fyrri leiknum og ætti því að koma inn í hópinn núna, að öðru leyti er þetta bara sami hópur,“ sagði Rúnar og játti því að það gætu orðið einhverjar breytingar á byrjunarliði KR.

„Ég reikna með því að við gerum breytingar á byrjunarliðinu og reynum að prófa okkur áfram í því sem við erum að gera. Við erum búnir að vera í smá brekku undanfarið, við erum að reyna finna lausnir á því öllu eins og maður gerir þegar maður lendir í veseni og hlutirnir eru ekki að ganga upp þá þarf maður stundum að breyta. Allavega laga það sem hefur ekki gegnið upp undanfarið.“

„Við erum á milljón að vinna í því og þessi leikur getur hjálpað okkur í því að reyna. Vonandi ef að við náum í góðan leik, þá getur það gefið okkur smá sjálfstraust og trú að það sem við erum að reyna gera.“

„Við vonumst til að við séum að finna rétta liðið, réttu leikaðferðina og það allt. Við höfum verið í smá basli, út af ýmsum hlutum höfum við ekki náð að spila nægilega vel í sumar og nýta þá sénsa sem við höfum fengið til að bæði vinna leiki og gera betur í mörgum leikjum.”

Mun nálgast leikinn á svipaðan hátt

„Við munum kannski þora að stíga aðeins hærra á þá stundum og pressa þá aðeins meira en við gerðum í fyrri leiknum.“

„Það er náttúrulega hættulegt að blindast af því að við höfum náð að pressa þá í seinni hálfleik. Við fengum fleiri hornspyrnur í seinni hálfleik, við komumst oftar upp völlinn og fengum ágætis færi til að skora annað mark. Á sama tíma er staðan náttúrulega orðin 4-0 og þeir kannski örlítið búnir að slaka á. Það er oft erfitt að gera sér grein fyrir hvað gerði það að verkum að við gátum lyft okkur hærra upp á völlinn.“

„Það er eitthvað sem við erum vanari að gera, reyna pressa hærra á vellinum. Á heimavelli munum að sjálfsögðu reyna að lyfta okkur hærra upp á völlinn en engu að síður þá eru þeir bara það góðir í fótbolta að þeir munu þrýsta okkur til baka.“

„Við munum halda áfram að reyna verjast eins og við gerðum og ætluðum að gera á móti þeim í fyrri leiknum. Við gerðum það bara illa, við viljum gera svipaða hluti og reyna bara að bæta þá og gera þá betur. Ég held að planið sem slíkt hefði getað virkað ef við hefðum bara gert hlutina aðeins betur. Svo verður það bara að koma í ljós á morgun.“

Um árangur KR í Evrópu 

„Ég er náttúrlega búinn að spila svo marga Evrópuleiki, undanfarin ár hafa ekki gengið vel hjá okkur. Við erum búnir að lenda á móti Celtic tvisvar og Molde tvisvar og það eru erfiðir leikir. Við höfum svo sem ekki farið vel út úr því og maður hefur prófað að liggja til baka, maður hefur prófað að breyta um kerfi. Við höfum prófað að pressa inn á milli. Það hefur ekki gengið, maður verður að vera trúr sínu og reyna að spila sinn eigin leik. Ekki hugsa allt of mikið um andstæðinginn, engu að síður vitum við að við þurfum að verjast betur.“

Kennie Chopart í leik gegn Celtic árið 2020.Ian MacNicol/Getty Images

„Varnarleikurinn sem við spiluðum og höfum spilað á að ganga. Við þurfum bara að gera það mikið betur heldur en við höfum verið að gera. Þora líka að hafa boltann meira, eins og í fyrri leiknum á móti Pogón vorum við rosalega fljótir að missa boltann eftir að við unnum hann og gerðum rosalega lítið við hann sérstaklega í fyrri hálfleik.“

„Það var kannski smá hræðsla og við þjálfararnir búnir að setja leikinn upp á ákveðinn hátt. Stundum þegar maður segir einhverja hluti þá er það tekið full bókstaflega. Við þorðum ekki alveg að setja boltann niður á jörðina og spila. Hefðum mátt gera meira af því, það voru alveg möguleikar.“

Hafa enn trú

„Auðvitað höfum við trú á því, auðvitað langar okkur að komast áfram, við þurfum að vinna 3-0, við vitum að það verður mjög erfitt en í fótbolta getur allt gerst. Það getur komið rautt spjald eftir fimm mínútur, þá breytast leikir. Við viljum bara reyna að gera betur en við gerðum síðast.“

„Mikilvægt að við náum í stig, eitt eða þrjú. Það skiptir máli fyrir okkur sem félag safna stigum í baráttunni um að vera á betri stað þegar dregið er næst. Að sama skapi hjálpa íslensku liðunum í að safna punktum í þetta allt saman þannig að íslensku liðin fái kannski betri drætti þegar dregið er, vera í efri styrkleikaflokkun heldur en í neðri. Eins og við vorum núna, það skiptir miklu máli fyrir að komast aðeins lengra í keppnunum og fá betri leiki.“

Að endingu var Rúnar spurður út í lið gestanna.

„Kamil Grosicki, númer11 á vinstri vængnum. Pólskur landsliðsmaður sem er búinn að spila á Englandi og víðar. Hann er kannski þeirra hættulegasti sóknarvopn. Vinstri vængurinn þeirra var mjög öflugur að þræða sig í gegn. Vinstri bakvörðurinn þeirra líka, Luís Mata.“

„Sá sem er að spila fremstur á miðju hjá þeim Sebastian Kowalczyk. Þannig að vinstri vængurinn þeirra Luis Mata, Grosicki og Kowalczyk, þeir voru að tengja mjög vel saman.“

„Þetta er nánast sama lið, sama byrjunarlið og spilaði flesta leiki hjá þeim í deildinni hjá þeim í fyrra, litlar breytingar. Eina breytingin er þjálfarinn og hann er gera mjög svipaða hluti og fyrri þjálfari, ekki miklar áherslubreytingar. Þetta er bara ofboðslega vel þjálfað lið. Þeir eru með Spánverja, Austuríkismann, Grikkja og Pólverja í vörninni. Pólskan landsliðsmann á kantinum, Brasilíumann á hægri kantinum, Serba frammi og svo þrjá Pólverja á miðjunni. Þetta eru allt hörku leikmenn.“ 

„Ósáttir með að tapa svona stórt.“

„Við erum samt sem áður ósáttir við að tapa svona stórt en þetta er smá munur á atvinnumönnunum og okkur sem erum hér heima. Hlutirnir ganga aðeins hraðar, sendingarnar eru fastari, hreyfingin og tímasetningin á hlaupum hjá þeim er betri en hjá okkur. Sést kannski best á því í leiknum, að þegar við náum boltanum þá erum við í smá veseni með að ná honum bara niður á jörðina og spila honum.“

„Það er meiri hraði í spilinu hjá þeim þar sem leikmennirnir eru topp klassa atvinnumenn. Þetta er hörku lið sem er búið að lenda núna tvö ár í röð í 3.sæti í pólsku deildinni sem er mjög sterk deild,“ sagði Rúnar að lokum.

KR mætir Pogoń Szczecin klukkan 18.15 á Meistaravöllum annað kvöld. Leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 4. Klukkan 21.15 er Sambandsdeildar uppgjörið á sínum stað.


Besta deildin er á Stöð 2 Sport. Smelltu hér til að horfa á leiki og þætti. Besta deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 kr. á mánuði og má kaupa hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×