Tónlist

„Tónlist hefur verið minn persónulegi sálfræðingur frá því að ég byrjaði fyrst að semja“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Eydís Helena Evensen gaf út EP plötuna Frost áttunda apríl síðastliðinn.
Eydís Helena Evensen gaf út EP plötuna Frost áttunda apríl síðastliðinn. Saga Sig/Aðsend

Eydís Helena Evensen er skapandi listakona með meiru sem ber ýmsa hatta á borð við tónskáld og píanóleikara. Hún sendi frá sér EP plötuna Frost síðastliðna helgi en þar er að finna fjögur tónverk eftir Eydísi. Samhliða plötunni sendu Eydís og maki hennar Einar Egils frá sér myndverk við lagið Dawn is near. Blaðamaður hafði samband við Eydísi og fékk að skyggnast inn í hennar listræna hugarheim.

Hvaðan sækirðu innblástur í nýju plötuna?

Ég hef sótt innblástur í gegnum ýmsa tilfinningalega atburði síðustu fimm ára, en íslensk veðrátta og þyngd vetrarins spilaði sömuleiðis stórt hlutverk á Frost

Ég fann persónulega enn þá meira fyrir skammdeginu og öllu sem því fylgir síðastliðinn vetur miðað við fyrsta veturinn minn eftir heimkomu og út frá þeim tilfinningum varð verkið Svartnætti til. 

Síðasta verk plötunnar The Light I er að lokum nokkurs konar óður til vorsins eftir harðan og dimman vetur.

Vorinu fylgir oft betri tíð og vonin svífur um. Saga Sig/Aðsend

Hefur hún verið lengi í bígerð?

Ég byrjaði að taka upp með Valgeiri Sigurðssyni í lok janúar í Greenhouse Studios og hún var tilbúin rúmum mánuði síðar, allt ferlið tók um það bil fjóra mánuði í heild.

Geturðu sagt mér frá ferli ykkar Einars við að vinna myndverkið?

Okkur Einari langaði til þess að skapa myndverk sem gæti tekið áhorfandann í tímalaust ferðalag, en tónverkið Dawn is Near þróaðist út frá persónulegu áfalli. Við fengum Anton Smára tökumann með okkur í lið til þess að skjóta kvöld senurnar innandyra, svo flökkuðum við Einar um Suðurlandið til þess að mynda allar senur utandyra. 

Hugmynd verksins þróaðist í átt að því að vinna umhverfis kertastjaka og morgunbirtu sem tengist kjarna verksins; að finna okkar innra ljós í gegnum erfiðleika og ferðast í átt að friðsamlegri dögun.

Hvaða áhrif hefur listsköpun þín á sjálfa þig?

Það mætti segja að tónlist hafi verið minn persónulegi sálfræðingur frá því að ég byrjaði fyrst að semja tónlist. Píanóið hefur verið minn griðastaður og því hefur tónlist og sköpun einungis haft jákvæð áhrif á mitt líf. 

Þegar ég spila á hljóðfærið mitt þá líður mér eins og ég geti tjáð mig á hreinskilin máta og unnið þaðan úr þeim tilfinningum.

Hvernig er tilfinningin að senda frá sér persónulegt listaverk?

Það getur verið bæði ógnvekjandi og frelsandi á sama tíma, þó mest af öllu eru það forréttindi sem ég er mjög þakklát fyrir.

Eydís segir tónlist og sköpun einungis hafa haft jákvæð áhrif á líf sitt.Saga Sig/Aðsend

Hvað er á döfinni?

Ég er að vinna að nokkrum upptökum fyrir komandi verkefni, ásamt því að undirbúa mig fyrir tónleikahald yfir sumartímann í Evrópu.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×