Innlent

Lítil á­hætta fólgin í breytingu á sölu Parkódíns en mikil­vægt að hafa varann á

Fanndís Birna Logadóttir skrifar
Valgerður Rúnarsdóttir, yfirlæknir á Vogi, segir mikilvægt að hafa í huga að um ópíóða sé að ræða, þó hann sé í litlu magni.
Valgerður Rúnarsdóttir, yfirlæknir á Vogi, segir mikilvægt að hafa í huga að um ópíóða sé að ræða, þó hann sé í litlu magni.

Yfirlæknir á Vogi hefur litlar áhyggjur af því að sjúklingar sem greinst hafa með Covid-19 fái Parkódín án lyfseðils í litlu magni en segir þó mikilvægt að hafa varann á þar sem um ávanabindandi lyf er að ræða. Tímabundin heimild Lyfjastofnunar gildir í rúman mánuð en takmarkanir verða settar á hverjir geta fengið lyfið.

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins greindi frá því í tilkynningu í morgun að breytingin hafi verið gerð til að létta undir með heilsugæslunni þar sem margir eru að greinast með veiruna og hafa læknar ávísað lyfinu til að slá á hósta.

Nokkur umræða hefur skapast á samfélagsmiðlum um að þessi breyting gæti haft slæm áhrif þar sem kódein er ávanabindandi morfínlyf. Valgerður bendir á að Parkódín hafi ekki verið lyfseðilsskylt á tímabili en því var breytt árið 2005.

„Þegar það var ekki lyfseðilsskylt, og í sjálfu sér ekkert eftirlit með því hvað fólk fékk mikið, þá var lítill hópur sem var í vandræðum með það og var kannski að fara í mörg apótek á dag að kaupa og voru virkilega háð kódeininu,“ segir Valgerður Rúnarsdóttir, yfirlæknir á Vogi.

Til að hægt sé að kaupa lyfið í lausasölu þarf að framvísa vottorði úr Heilsuveru um staðfest smit sem er ekki eldra en mánaðargamalt. Hver einstaklingur getur keypt tíu töflur af lyfinu að fengnu samþykki lyfjafræðings og verður hver ávísun skráð.

Hafa ekki undan við að skrifa út lyf

Sigríður Dóra Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, segir að breytingin hafi verið gerð þar sem stöðvarnar hafa ekki undan við að senda lyf. Aðspurð um hvort fólk geti misnotað þetta fyrirkomulag segir Sigríður það vissulega hægt.

„Með þessa lyfjaávísun eins og allar lyfjaávísanir, ef fólk ætlar að svindla út og ná sér í meira lyf en það þarf þá getur það gert það,“ segir Sigríður en bætir við að takmörk séu á og að fólk geti ekki gengið að því sem gefnu að það fái að kaupa lyfið.

„Þú þarft að vera með greiningu og það er lyfsalinn sem tekur ákvörðun um að afgreiða lyfið, þannig hann verður að hafa forsendur til þess,“ segir Sigríður. Um er að ræða sama fyrirkomulag og er þegar til staðar til að mynda með neyðarpilluna en lyfsalinn getur einnig séð hvort einstaklingur hafi fengið lyfið nýlega og neitað að gefa það út á þeim forsendum.

Valgerður segir að með þeim skilmerkjum sé takmörkuð áhætta á ferð, en þó einhver. Mikilvægt sé að um sé að ræða lítið magn og að fylgst sé með ávísunum, þannig fólk flakki ekki milli apóteka og fái tíu töflur á hverjum degi.

„Það er full ástæða til þess að vera meðvitaður um það að þetta sé ópíóði, þetta er ávanabindandi og á að nota í sem allra stystan tíma og sem fæstar töflur,“ segir Valgerður. „Þetta er ópíóði, þó þetta sé lítið magn, og hann getur valdið fíkn og ávanabindingu.“


Tengdar fréttir

Íslendingar nota mest af hættulegum lyfjum

Íslendingar nota langmest af tauga- og geðlyfjum af öllum Norðurlandaþjóðunum. Fíknigeðlæknir segir það séríslenskt, og mjög banvænt, að blanda saman mörgum ávanabindandi lyfjum en halda sig ekki við eitt kjörefni. Þetta gerir afeitrun og meðferð sömuleiðis flóknari og fólk fellur frekar vegna þess að freistingarnar eru út um allt.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×